Morgunblaðið - 25.03.2014, Qupperneq 27
tónlist í útvarpinu. Tíu ára fékk ég
mína fyrstu harmonikku og byrjaði
auðvitað strax að fikta. Reyndi að spila
eftir eyranu og pikka upp eina og eina
laglínu eftir einum eða tveimur körl-
um hér í sveitinni.
En sumarið 1960 hljóp á snærið hjá
mér. Karl Jónatansson harmonikku-
leikari var þá sundlaugarvörður á
Flúðum sumarlangt. Hann hefur ætl-
að að taka sér frí frá kennslunni. En
ég byrjaði auðvitað að suða í honum og
hann lét mig frá níðþung lög. Hefur
kannski búist við að ég gæfist upp. En
ég þrælaði mér í gegnum þetta og
lærði hjá honum í sex ár.“
Garðar hugði á framhaldsnám er-
lendis, en þá veiktist faðir hans. Hann
tók þá við búinu og hefur verið bóndi í
Hellisholtum frá 1976.
„Ég lék nú samt töluvert fyrir dansi
í Reykjavík á sjöunda áratugnum, með
Hljómsveit Óskars Cortes í Ingólfs-
café og síðan með Hljómsveit Ágústs
Guðmundssonar. En þetta var langt
að fara, 100 km akstur í bæinn og síð-
an aftur austur að dansleik loknum.
Um 1970 hætti ég svo í hljómsveitar-
bransanum í bænum. Ég spila samt
alltaf svolítið á dansleikjum Harm-
onikufélags Selfoss og með Félagi
harmonikuunnenda í Reykjavík. Auk
þess hef ég lengi safnað harmoniku-
tónlist og á líklega nokkur þúsund lög
til að hlusta á þegar næði gefst.“
Garðar hefur kennt við Tónlistar-
skóla Árnesinga á síðustu árum. Hann
hefur leikið inn á tvær 12 laga plötur
og gefið út tvo geisladiska, þann seinni
í desember sl.
„Klarinettið er hins vegar farið að
rykfalla. Það hentar ekki vel að spila
einn á klarinett uppi í sveit.“
Fjölskylda
Eiginkona Garðars er Anna E. Ip-
sen, f. 20.2. 1948, hjúkrunarstjóri í
Laugarási. Foreldrar hennar: Carl
Christian August Ipsen, f. 7.11. 1908,
d. 20.7. 1969, vélvirki, og Guðrún
Bjarnadóttir Ipsen, f. 8.7. 1911, d. 28.7.
2001, húsfreyja.
Börn Garðars og Önnu eru Karl Ol-
geir, f. 9.4. 1970, búsettur í Noregi,
kvæntur Astri Fossmo, f. 26.7. 1972.
og eiga þau tvo syni, Hákon og Mart-
in; Ásgeir Eyþór, f. 12.1. 1972, búsett-
ur á Hauganesi, kvæntur Gerðu Jó-
hannesdóttur, f. 12.12. 1974, og eru
þeirra börn Rúnar Smári, Dagný og
Sindri.
Foreldrar Garðars voru Olgeir Guð-
jónsson, f. 2.12. 1911, d. 20.4. 1976,
bóndi í Hellisholtum, og Svanborg
Guðmundsdóttir, f. 7.7. 1908, d. 18.8.
1981, húsfreyja.
Úr frændgarði Garðars Olgeirssonar
Garðar
Olgeirsson
Jóhanna Bergsteinsdóttir
húsfr. í Stóru-Mástungu
Kolbeinn Eiríksson
b. í Stóru-Mástungu
Guðfinna Kolbeinsdóttir
húsfr. í Dalbæ
Guðmundur Guðmundsson
b. í Dalbæ í Hrunam.hr.
Svanborg Guðmundsdóttir
húsfr. í Hellisholtum
(kjörmóðir)
Guðlaug Sigurðardóttir
húsfr. á Löngumýri
Guðmundur Guðmundsson
b. á Löngumýri á Skeiðum
Þuríður Grímsdóttir
húsfr. í Grímsfjósum
Jón Adolfsson
b. í Grímsfjósum á Stokkseyri
Kristjana Jónsdóttir
húsfr. í Auðsholti
Guðjón Jónsson
b. í Auðsholti í Biskupstungum
Olgeir Guðjónsson
b. í Hellisholtum í Hrunam.hr.
(kjörfaðir)
Sesselja Guðnadóttir
húsfr. á Syðra-Seli
Jón Jónsson
b. á Syðra-Seli í Hrunam.hr.
Í léttri sveiflu Helgi Kristjánsson, Papa Jazz, Garðar og Hreinn Vilhjálmsson.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2014
Salvör Nordal varði í desember sl.
doktorsritgerð sína, sem heitir Privacy
as a social concept, við heimspeki-
deild háskólans í Calgary í Kanada.
Eins og heiti ritgerðarinnar gefur til
kynna fjallar hún um friðhelgi einka-
lífsins eða persónuvernd. Þar eru færð
rök fyrir því að hugtakið „privacy“ sé
fyrst og fremst mótað af samfélags-
legum gildum og liggi til grundvallar í
samskiptum fólks og samskiptum ein-
staklinga við stofnanir. Hefðbundið er
að skilja hugtakið sem neikvæð rétt-
indi og vísi einkum til þess sem fólk
vill halda út af fyrir sig og sé einkamál.
Í ritgerðinni er þessi skilningur gagn-
rýndur og því haldið fram að friðhelgi
lúti að því hvernig við deilum upplýs-
ingum og svæði með öðrum, því sé
vænlegra að huga að persónuvernd og
vernd friðhelgi út frá skyldum eða því
hvernig fólk virðir upplýsingar og
svæði annarra. Í þessu samhengi er
fjallað um bæði fullkomnar og
ófullkomnar skyldur og tengsl
skyldna við traust. Í ritgerðinni er
fjallað um margvísleg dæmi þar
sem reynir mjög á rétt fólks til
friðhelgi einkalífsins eins og
vandamál tengd lífsýnasöfnum og
erfðaupplýsingum.
Salvör er fædd. 21.11. 1962. Hún lauk BA-prófi í heimspeki frá HÍ 1989 og M.Phil-
prófi í heimspeki frá University of Stirling í Skotlandi 1992.
Salvör hefur gegnt starfi forstöðumanns Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands
frá 2001. Hún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum á síðustu árum, hún var
meðal annars formaður stjórnlagaráðs og var skipuð af Alþingi í starfshóp um
siðfræði og starfshætti sem starfaði með Rannsóknarnefnd Alþingis árin 2009
og 2010.
Salvör á tvo drengi, Pál fæddan 1997 og Jóhannes fæddan 2002.
Foreldrar Salvarar: Jóhannes Nordal, f. 11.5. 1924, fyrrv. seðlabankastjóri, og
Dóra Guðjónsdóttir, f. 28.2. 1928, húsmóðir og píanóleikari.
Doktor
Salvör
Nordal
95 ára
Samúel Jóhann Elíasson
85 ára
Hedwig Elísabet Meyer
Margrét Eiríksdóttir
80 ára
Ingunn Guðmundsdóttir
Samúel Alfreðsson
75 ára
Björn Þórðarson
Friðjón Pálsson
70 ára
Guðmundur Guðjónsson
Rafn Gunnarsson
Wilfredo Burabod
60 ára
Arnór Arnórsson
Elín Mjöll Jónasdóttir
Guðmunda Helen
Þórisdóttir
Jón Lárus Ingvason
Ólafía Jóna Eiríksdóttir
Pétur Kúld Kjartansson
Unnsteinn Jónsson
Yngvi Þór Stefánsson
Þóra Ragnarsdóttir
Örn Leós Stefánsson
50 ára
Berglind Finnbogadóttir
Einar Ólafsson
Guðmundur Egill
Sigurðsson
Halldór Magnússon
Jón Guðmann Þórisson
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Rungnapa Channakorn
Sólveig Jónsdóttir
Þórarinn Steingrímsson
Þórarinn Vignir Ólafsson
Þórður Úlfar Ragnarsson
40 ára
Agnieszka Darnowska
Árný Lilja Garðarsdóttir
Dariusz Slodowy
Erla Jónsdóttir
Fríða Kristinsdóttir
Guðbjörg Erlín
Guðmundsdóttir
Hanna Sigurrós
Ásmundsdóttir
Íris Dögg Gísladóttir
Magdalena Katarzyna
Pokorska
Magnús Baldur
Kristjánsson
María Ásdís Stefánsdóttir
Sigurjón Jónsson
Sigurjón Magnús Skúlason
Svana Margrét Davíðsdóttir
30 ára
Anna Hlíf Árnadóttir
Auðbergur Þór Óskarsson
Damian Sebastian Hadera
Gunnar Már Jónsson
Haukur Sigurbjörnsson
Helga Þóra Eysteinsdóttir
Hjalti Sigurbjörnsson
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Ragna Gerður Jóelsdóttir
Swati Nitin Kunjir
Þórdís Jóna Guðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Sylvía býr í Njarð-
vík, lauk stúdentsprófi frá
FS og er að hefja störf á
áhafnavakt Icelandair.
Sonur: Sigurður Karl
Guðmundsson, f. 2010.
Foreldrar: Sigurður
Guðnason, f. 1960, starfs-
maður hjá TM í Reykja-
nesbæ, og Sonja Karls-
dóttir, f. 1965, hársnyrtir.
Stjúpmóðir: Margrét
Sander, f. 1959, fram-
kvæmdastjóri hjá Deloitte
í Reykjanesbæ.
Sylvía Rós
Sigurðardóttir
30 ára Brynjar ólst upp í
Reykjavík, lauk sveins-
prófi í múrverki frá Iðn-
skólanum í Reykjavík og
rekur eigið verktakafyrir-
tæki.
Maki: Elísa Óðinsdóttir, f.
1989, háskólanemi.
Börn: Bjarki, f. 2002, og
Karen Líf, f. 2007.
Foreldrar: Kolbrún Birg-
isdóttir, f. 1967, húsfreyja,
og Ólafur Marinósson, f.
1963, húsasmíðameistari
í Noregi.
Brynjar Þór
Ólafsson
30 ára Erlendsína ólst
upp í Keflavík og er nú
dagmóðir.
Maki: Örvar Snær Birkis-
son, f. 1989, nemi í flug-
virkjun.
Synir: Atli Aiden, f. 2005,
og Birkir Snær, f. 2010.
Foreldrar: Lovísa Ósk Er-
lendsdóttir, f. 1965, vinn-
ur á leikskóla, og Garðar
Garðarsson, f. 1960,
framkvæmdastj. Stjúp-
faðir: Hallvarður Þ. Jóns-
son pípulagningamaður.
Erlendsína Ýr
Garðarsdóttir
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Ertu þreytt á að vera þreytt?
Getur verið að þig vanti járn?
Magnaðar járn- og bætiefnablöndur
úr lífrænt ræktuðum jurtum
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum