Morgunblaðið - 31.03.2014, Síða 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2014
Hann heitir BMW 320d xDrive GT og er nýjasti bíllinn í hinni nýju og frísklegu GT línu frá BMW.
Hærri sæti og meira rými fyrir farþega og farangur eru einkennandi fyrir bílinn en sportlegir eiginleikar
eru heldur ekki langt undan því 320d GT er búinn 184 hestafla dísilvél sem skilar 270 Nm í togi við
einungis 1.250 sn/mín. xDrive fjórhjóladrifið gefur þessum sportlega bíl forskotið á Íslandi.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
18
0
5FJÓRHJÓLADRIF
OG FALLEG HÖNNUN.
BMW 320d xDrive Gran Turismo - 5,1 l/100 km*
Verð frá 7.690.000 kr.
Hrein
akstursgleði
BMW
www.bmw.is
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
Stöðug aukning hefur verið á neyslu
mjólkurvara í Kína á meðan neyslan
hefur verið að dragast saman á mik-
ilvægum mörkuðum á borð við
Bandaríkin. Frá árinu 2003 til 2013
jókst þannig sala á mjólk næstum
fimmfalt á Kínamarkaði, sala á
mjólkurblönduðum drykkjum jókst
u.þ.b. þrettánfalt og jógúrtsalan
nærri áttfalt.
Businessweek greinir frá að kín-
verskir neytendur hafi kolfallið fyrir
drykkjarjógúrt, sem nýtur meiri hylli
þar í landi en þykkari gerðin sem
borða þarf með skeið. Er drykkjar-
jógúrt nú 18% af allri neyslu á fljót-
andi mjólkurvörum í Kína.
Er því spáð að neysla á fljótandi
mjólkurvörum muni aukast um 7% á
þessu ári og skýrist bæði af fólks-
fjölgun, breyttu byggðamystri og
hækkandi tekjum almennings.
Bandaríska landbúnaðarráðuneytið
hefur gert skýrslu um þessa þróun og
reiknar með að vaxandi eftirspurn í
Kína muni hafa hækkandi áhrif á
verð mjólkurvöru út úr hillum banda-
rískra verslana.
Árið 2013 voru 15% af bandarískri
mjólkurframleislu seld úr landi en
var 12% árið áður. Ostaútflutningur
einn og sér jókst nærri um helming
milli ára. Á sama tíma hafa þurrkar
verið að hrella iðnaðinn á stöðum eins
og Kaliforníu svo framboð er ekki
með mesta móti. Útkoman af þessu
er 21% hækkun á mjólkurverði í
Bandaríkjunum á þessu ári.
ai@mbl.is
Jógúrtþyrstir Kínverjar hafa áhrif
á mjólkurverð í Bandaríkjunum
Sala á mjólk og drykkjarjógurt í Kína hefur margfaldast und-
anfarinn áratug Útflutningur frá BNA eykst hratt milli ára
AFP
Eftirspurn Fólk að skoða úrvalið í kínverskri matvöruverslun. Neysla mjólkurvara hefur tekinn mikinn kipp í Kína.
Þróunin er ekki síst merkileg fyrir þær sakir að sögulega er lítil hefð fyrir neyslu mjólkurvara í SA-Asíu.
Síðasta vika var ekki góð fyrir banda-
rísk hlutabréf. Varð töluverð lækkun á
mörkuðum og þá einkum að netfyrir-
tæki og líftæknifyrirtæki stóðu sig
illa.
Fréttastofa Bloomberg skýrir þró-
un vikunnar með vaxandi spennu milli
Úkraínu og Rússlands og að fjárfestar
voru voru í söluskapi, innleysandi
hagnað af viðskiptum síðustu vikna.
Af hreyfingum vikunnar má m.a.
nefna að King Digital Entertainemt,
framleiðandi leiksins vinsæla Candy
Crush, lækkaði um 20% á fyrstu
þremur dögunum eftir að fyrirtækið
var skráð á markað og Citigroup
lækkaði um 5,7% eftir að hafa fallið á
álagsprófi bandaríska seðlabankans.
Netflix lækkaði um 12% vegna
áhyggna markaðarins af harðnandi
samkeppni frá Apple og Comcast og
Facebook tók 11% dýfu eftir að til-
kynnt var um kaup samfélagsvef-
risans á sýndarveruleikafyrirtækinu
Oculus VR fyrir heila tvo milljarða
dala.
Nasdaq vísitalan missti 2,8% í vik-
unni, Dow Jones vísitalan léttist um
0,1% og Standard & Poor‘s féll um
0,5%.
Milljörðum dala fátækari
Bloomberg áætlar að fyrir auðmenn
á borð við Mark Zuckerberg hafi liðin
vika verið ákaflega dýr. Fréttaveitan
reiknar það út að Zuckerberg hafi tap-
að 3,1 milljörðum dala samtals frá
mánudegi til föstudags. Zuckerberg
er sem stendur 22. ríkasti maður
heims og er eignasafn hans metið á 27
milljarða dala. Stofnendur Google,
Sergey Brin og Larry Page eru sam-
tals 3 milljörðum dala fátækari nú en
þeir voru á mánudag fyrir viku, og
Jeff Bezos stofnandi Amazon hefur
sennilega tapað 1,9 milljörðum, en
fyrirtækisins hlutabréf lækkuðu eftir
að það tilkynnti lækkun á gjaldi fyrir
gagnahýsingarþjónustu, degi eftir að
Google tilkynnti sams konar lækkun.
Ekki allir töpuðu fjárhæðum sem
slaga hátt upp í fjárlög íslenska rík-
isins. Vikan var ekki afleit fyrir Larry
Ellison, stofnanda Oracle. Fyrirtækið
jók markaðsvirði sitt um 5,5% í vik-
unni og jók þar með stærð eignasafns
Ellison um 1,7 milljarða dala, jafn-
virði um 192 milljarða króna.
ai@mbl.is
Vantraust Hlutabréf í Facebook
lækkuðu um 11% eftir kaup á Ocu-
lus VR. Mark Zuckerberg forstj.
Slæm vika
fyrir Nasdaq
Netflix og Facebook lækkuðu og drógu
tæknivísitöluna niður með sér