Morgunblaðið - 31.03.2014, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.03.2014, Qupperneq 16
FRÉTTASKÝRING Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Í velferðarnefnd Alþingis er til umfjöllunar þingsálykt- unartillaga, sem sækir stuðning sinn til þingmanna allra flokka, þess efnis að Alþingi feli ríkisstjórn Íslands að fylgja eftir vitundarvakningu um málefni mænuskaða á alþjóðavett- vangi. Undanfarin ár hefur Mænu- skaðastofnun Íslands í samstarfi við stjórnvöld og fjölmarga aðra unnið mikið vakningarstarf á Íslandi og víðar um nauðsyn þess að lækning finnist við mænuskaða. Í greinar- gerð með þingsályktunartillögunni kemur fram að geysilegar framfarir hafi orðið í læknavísindum í meðferð á sjúkdómum eins og krabbameini, hjartasjúkdómum o.fl. sjúkdómum en á sama tíma hafi meðferð á mænuskaða lítið breyst í áratugi. Meðferð þeirra sem lamast vegna skaða á mænu einskorðast að mestu leyti við endurhæfingu til sjálfs- bjargar í hjólastól. Gerum lækningu að veruleika Ísland hefur undanfarin ár tal- að máli mænuskaða hjá alþjóða- stofnunum, félagasamtökum og ein- staklingum. Evrópuráðið og Norðurlandaráð hafa samþykkt ályktanir um aðgerðir til að draga úr skaðlegum afleiðingum mænuskaða og gera lækningu að veruleika. Ög- mundur Jónasson, þingmaður Vinstri Grænna, er einn flutnings- manna tillögunnar og segir hann það vekja athygli sína hvað víðtækur stuðningur er við málið á Alþingi og hvað mikið starf hefur verið unnið af Íslands hálfu í málaflokknum. „Ís- land hefur fylgt þessu máli eftir hjá alþjóðlegum stofnunum og Félag ís- lenskra bifreiðaeigenda hefur tekið málið upp hjá Alþjóðaaksturs- íþróttasambandinu, FIA, en nær helmingur þess fólks sem hlýtur skaða á mænu og lamast er vegna slysa í umferðinni.“ Miðlægur gagnagrunnur Frá því þær Auður Guðjóns- dóttir og Hrafnhildur G. Thorodd- sen stofnuðu Mænuskaðastofnun Ís- lands hefur mikið vatn runnið til sjávar. Haldin hafa verið námskeið og ráðstefnur hérlendis, m.a. ráð- stefna með 25 brautryðjendum á sviði rannsókna og meðferðar á mænuskaða. Gífurlegum upplýs- ingum hefur verið safnað saman um tilraunameðferðir í einn miðlægan gagnabanka og eru upplýsingar úr honum aðgengilegar á fimm tungu- málum. Í greinargerð þingsályktun- artillögunnar segir að hátt í 40 þús- und heilbrigðisstarfsmenn, lamað fólk og aðstandendur þess, frá 160 löndum, afli sér upplýsinga úr gagnabankanum mánaðarlega. Framganga Íslendinga hefur því tvímælalaust verið málaflokkn- um mikið gagn. Samstarf Norðurlanda Árið 2010 lagði Íslandsdeild Norðurlandaráðs fram tillögu á þingi ráðsins þess efnis að Norð- urlandaráð setti á fót sérfræð- ingahóp til að skoða rannsóknir og tilraunameðferðir á mænu- skaða og skila tillögum til úr- bóta. Ári síðar samþykkti Norðurlandaráðsþingið tillög- una í formi ályktunar um nor- rænt samstarf um mænuskaða. Nú hefur svo Norræna ráð- herranefndin samþykkt að koma á fót norræn- um verkefnahópi undir stjórn St. Olavs sjúkrahúss- ins í Þrándheimi í Noregi. Fyrsta skrefið í átt að lækningu Morgunblaðið/ÞÖK Lækning Litlar framfarir hafa orðið í meðferð við mænuskaða á und- anförnum áratugum en úrbót á að verða á því með hjálp Íslendinga. 16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Um 42 áreru liðinfrá því að Nixon Banda- ríkjaforseti fór í sögulega heim- sókn sína til Rauða-Kína, og opnaði þar með á aukin samskipti ríkjanna tveggja, sem höfðu vart talast við frá lokum kín- verska borgarastríðsins 1949. Atburðurinn er með réttu tal- inn einn af þeim merkari í sögu kalda stríðsins, þar sem hann sýndi að Kínverjar væru ekki tilbúnir til þess að vera taglhnýtingar Sovétsins í blindni, heldur vildu koma ár sinni betur fyrir borð í al- þjóðakerfi eftirstríðsáranna. Bandaríkjamenn á móti gátu nýtt sér ríginn á milli Sovét- ríkjanna og Kína til þess að bæta stöðu sína í kalda stríð- inu. En svo féll múrinn og kalda stríðinu lauk. Upp- gangur Kínverja síðan þá hefur verið með ólíkindum, og ljóst að veldi þeirra hefur enn ekki náð hápunkti sínum. Á sama tíma hefur grafið undan stöðu Bandaríkjanna jafnt og þétt. Þess vegna hafa ýmsir spáð því síðustu tuttugu árin að Kínverjar muni taka fram úr Banda- ríkjamönnum fyrr en varir. Þó að líklega sé ýmislegt of- sagt í þeim spádómum er því þó ekki að neita að valda- jafnvægið á milli þessara tveggja ríkja hefur breyst allnokkuð á síðustu árum, Kínverjum í vil. Kínverjar hafa með aukn- um mætti látið meira til sín taka á síðustu misserum en áratugina á undan. Líklega þurfa Bandaríkjamenn ekki að óttast kín- verskt hervald, nema að því leyti til sem það ógnar þeim ríkjum Asíu sem hafa leitað til Bandaríkjanna um að treysta öryggi sitt, og helsta hættan á árekstri ríkjanna tveggja liggur ein- mitt þar. Mikilvægt er því að Kínverjar fái ekki á tilfinn- inguna að þeir geti komist upp með viðlíka framgöngu og sést hefur á Krímskaga. Síðustu vikurnar hafa ýmis orð verið látin falla um að nýtt kalt stríð sé í uppsigl- ingu á milli Rússlands og vesturveldanna. Sé það virki- lega svo geta Bandaríkja- menn alls ekki treyst því að tengslin við Kína verði með sama hætti og í því gamla. Með falli sovét-kommúnism- ans féll ein helsta ástæðan fyrir ríg Kínverja við Rússa. Þeir hafa því ekki sömu hvata og fyrr til þess að leita sterkari tengsla við Vestur- lönd, en um leið eru komnir miklir hvatar til þess að standa með Pútín. Þessa til- hneigingu má nú þegar sjá í viðbrögðum Kínverja við Krímskagadeilunni. Kínverjar eru því nú í lykilstöðu til þess að nýta sér ríginn á milli Vesturlanda og Rússlands á komandi árum. Hvort sem nýtt kalt stríð verður að veruleika eða ekki er ljóst að hvorki Bandaríkin né önnur ríki á Vesturlöndum geta óskað þess að Kínverjar verði of nánir Pútín. Ef nýr öxull í alþjóðamálum myndast á milli Moskvu og Peking er ekki víst að annar Nixon muni finnast í bráð til þess að brjóta hann upp. Aukin óvissa ríkir í samskiptum risaveldisins og stórveldanna} Horft yfir Kyrrahafið Lítil áherslahefur verið lögð á það í Reykjavík á þessu kjörtímabili að taka á þeim sóða- skap og eigna- spjöllum sem veggjakrot er. Fyrir nokkrum árum var kappkostað að hreinsa borgina af krotinu og árangurinn var verulegur. Á þessu kjörtímabili hefur verið stöðugt dregið úr við- leitni borgarinnar til að minnka veggjakrot og afleið- ingarnar leyna sér ekki. Óþrifnaðurinn og eignaspjöllin fara hratt vaxandi á nýjan leik. Nú er innan við tíunda hluta þeirrar fjárhæðar varið í bar- áttuna gegn veggjakrotinu sem borgaryfirvöld vörðu í hana fyrir nokkr- um árum. Núver- andi borgar- yfirvöld virðast enda ekki hafa sér- stakar áhyggjur af því þó að borgin breyti um svip með auknu veggjakroti. Ef til vill þykir einhverjum, til dæmis þeim sem telja til fyrirmyndar að leyfa órækt að taka við af snyrtilegum gras- blettum borgarlandsins, sem veggjakrot sé ekki sérstakt vandamál. Vera kann að þetta sé skýringin á áhugaleysi borgaryfirvalda. Borgarbúar, sem margir hverjir hafa sjálfir orðið fórn- arlömb krotaranna, eru þó án efa áhugasamir um að tekið verði á þessu af alvöru. Núverandi borgar- yfirvöld sýna lítinn vilja til að draga úr veggjakroti} Sóðaskapur og eignaspjöll Í flestum blundar nettur lygari. Frek- ar steiktur dagur er á morgun, 1. apríl, dagur til að ljúga eða gabba eins og lygin kallast á nærgætnara tungumáli. Eini munurinn á deg- inum á morgun og hinum 364 dögum ársins er sá að á morgun er lygin aðeins augljósari. Við getum líka platað á morgun sárasaklaus í fasi, eins og það sé okkur framandi og fjar- lægt að skrökva – komi hreinlega flatt upp á okkur að það sé í alvörunni leyfilegt þennan eina dag. Þeir sem láta þannig eru bestu lygararnir. Trúlega er óþarft að opna sérstaklega fyrir lygar einn dag á ári. Við erum öll innan þeirrar girðingar hvort sem er. Lygarnar spanna víða tilveruna, einstaklingurinn lýg- ur, almannarómur lýgur. Við segjumst ekki vera heima, né á landinu eða jörðinni þegar einhver sem okkur langar ekki að hitta hringir eða dinglar. Við ljúgum til að vernda aðra. Segjum félögum okkar sem voru haugafullir í gærkvöldi að þeir hafi bara verið hressir meðan þeir voru martröð árshátíðarinnar. Við bústum egóið og ljúgum því að hafa farið í saf- aríferð eða gengið á Esjuna um hánótt. Við ljúgum að fólki að við ljúgum ekki. Ófyrirleitin en vitur að því er við teljum, lygin er okkar framlag til samfélagsins, til að það fúnkeri. Að þessu sögðu, og nú er þetta alls ekki út í bláinn, því helstu fræðimenn sem hafa grandskoðað þessi mál hafa staðfest þetta sem við öll vissum, að 60% prósent okkar komast ekki í gegnum 10 mínútna samtal án þess að ljúga, ég sá einu sinni þátt um það á Dis- covery Channel. (Ég lýg því, ég sá aldrei umræddan þátt, en las mér til um hann.) Það fræðafólk sagði jafnframt að óheið- arleikinn væri okkar meðal við mörgu. En að þessu sögðu þá þurfum við trúlega engan aukatíma í listinni að ljúga og 1. apríl verður því alltaf furðulegri og furðulegri eftir því sem maður þrælar sér meira í gegnum þessar pælingar. Það er spurning fyrir hvern 1. apríl er og hverjum hann kemur að gagni. Við erum öll södd lygadaga okkar og þurfum ekki að fá útrás á samborgurum okkar á morgun. Trú- lega eru þó besservisserar þarna úti sem þurfa á degi að halda til að hía á samborgara sína en þá mætti líka íhuga að færa meiri metnað í lygarnar. Alvöru hlaupa- apríl-lygi væri auðvitað að segja einhverjum að það sé lík undir borðstofuborði, til dæmis í matarboði, og láta fólk hlaupa út. Eða þvottabjörn, eða kóngulóabú, eða kyrkislanga. Kannski er bara stund og staður til að útrýma þess- um degi og búa til dag sannleikans. Sannleikurinn er erfiður. Ekki langar mig að heyra neitt satt. Þess vegna er það áskorun. julia@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir Pistill Tímaskekkjan 1. apríl STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins, er aðalflutningsmaður þingsályktunartillögunnar sem hann segir tækifæri til að vinna markvisst að því að hleypa af stokkunum átaki í þágu lækn- ingar mænuskaða og Ísland geti beitt pólitískum áhrifum á alþjóðavísu til að svo megi verða. „Mænuskaðastofnun Ís- lands hefur þegar hafið und- irbúning að samstarfi við fyr- irtæki á frjálsum markaði sem geta komið að stofnun sjóðs til styrktar leit að lækningu. Hér erum við að tala um verulegar fjár- hæðir sem kæmu þá frá mjög fjársterkum aðilum um allan heim,“ segir Guðlaugur og vonar hann að forusta Ís- lands á al- þjóðavettvangi verði til þess að laða að slíka styrktaraðila. Fjármagn frá einkaaðilum PÓLITÍSKUR STUÐNINGUR Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.