Morgunblaðið - 31.03.2014, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa
þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Vertu
þvert á móti víðsýn/n og vingjarnleg/ur – þá
mun þér ganga flest í haginn.
20. apríl - 20. maí
Naut Leikgleði er mikilvægur þáttur snilligáf-
unnar. Segðu eitthvað. Mundu að ekkert er
dýrmætara í heimi hér en heilsan.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gæðadagur er í vændum og þú
leggur þitt af mörkum með snilligáfu þinni.
Notaðu tímann til að byggja þig upp. Frítími
þýðir skemmtun sem byggir mann upp.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Heimurinn hefur upp á ýmislegt að
bjóða; ævintýri handan hornsins. Gættu þess
þó að þú gangir ekki of nærri þér í þeim efn-
um, heilsan á að vera í fyrsta sæti þessa dag-
ana og þú veist það.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú verður þú að taka þig saman í andlit-
inu og fara vandlega í gegnum fjármálin.
Gættu þess bara að ofmetnast ekki, því
dramb er falli næst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Skoðanaágreiningur kemur hugs-
anlega upp á milli þín og einhvers nákomins í
dag. Sumum finnst það frábært, öðrum
hræðilegt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Eitthvað nýtt bíður þín við hvert fótmál.
Ef þú hefur gaman af vinnunni þarftu aldrei
að láta þig hafa það að fara í vinnuna heldur
gerirðu það með glöðu geði.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Forvitni þín leiðir þig á ókunnar
slóðir þar sem óvænt verkefni bíða þín. En
þér er óhætt að treysta eðlisávísun þinni í
bland við hæfilegan skammt af raunsæi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það gengur ekki alltaf upp að
halda öllu fyrir sig. Aðeins með góðum sam-
skiptum áttu möguleika á því að ná tilskildum
árangri.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Farðu ekki of geyst í hlutina þótt
þér finnist þú fær í flestan sjó. Rödd hjartans
þarf að fá að njóta sín; það er nóg af hinu í
heiminum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ástríðurnar sem ólga innra með
þér gera þig bæði lifandi og svolítið stjórn-
lausa/n. Hikaðu ekki við að leita til vina þinna
eftir aðstoð þegar þú þarft á að halda, þeir
eru allt í kringum þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er gott tækifæri til að skoða sam-
skipti þín við aðra. Tímasetningin er stórkost-
leg. Láttu sem ekkert sé þótt einhver mótbyr
verði. Allt fer vel.
Sigrún Haraldsdóttir birti myndaf fósturgeitinni sinni Tösku
frá Háafelli. Jón Gissurarson stóðst
ekki mátið:
Allvel þetta um ég veit,
ykkur það nú kynni.
Þessi litla ljúfa geit
líkist fóstru sinni.
Sigrún brást auðvitað skjótt við:
Geitin er víst þver og þrá,
þrjósk og samningstreg,
hefur augu heið og blá,
hornótt eins og ég.
Bjarna Stefáni Konráðssyni líst
ekki á blikuna frekar en öðrum
áhangendum Manchester United:
Ég man við vorum „men“ gegn „boys“
en maður núna þegir,
því undir þessum auma Moyes
við erum hræðilegir.
Bjarki Karlsson áttar sig á vand-
anum sem er við að glíma:
Bændur sem í basli
bera um gæftir von
neita nýju drasli,
nota Ferguson.
Annars heyrði Bjarki af því að
verið væri að deila út netmyntinni
auroracoin til Íslendinga:
Í gær var ég bágstaddur, blankur og
staur,
hjá bönkunum svartválistaður
en nú er ég vellríkur, voldugur gaur
og veinandi sjúklega glaður
– það er sko ekki neitt þvaður –
því þrjátíu og einn komma átta AUR
ókunnur færði mér maður.
Helgi Björnsson er vongóður eða
hvað?
Hér verða ekki blankheit í bæ,
í búðirnar mun ég spana.
Það verður gaman þegar ég fæ
þykjustupeningana.
Limruskáldið Anton Helgi Jóns-
son bregður á leik í limru:
Við umberum fáráðlingsfíra
samt finnst manni erfitt að skýra
hví orðin er rútína
að einrækta pútína
sem einmenningsheimsveldum stýra.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af limru, Ferguson
og þykjustupeningum
Í klípu
„ÞETTA ER VISSULEGA DRAPPLITAÐ, EN
KANNSKI AÐEINS UM OF. HELDURÐU AÐ
ÞAÐ VERÐI ÞREYTANDI TIL LENGDAR?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HVERNIG ÁTTI ÉG AÐ GISKA Á
RÉTTA STÆRÐ Í GEGNUM SÍMA?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þessi sérstaka
tilfinning þegar þið
eruð saman.
MAMMA, Á ÖLLUM
ÞESSUM ÁRUM SEM
PABBI HEFUR FARIÐ
TIL ENGLANDS AÐ
RÆNA OG RUPLA ...
... HEFURÐU EINHVERN-
TÍMANN ÓSKAÐ ÞESS AÐ
HANN KÆMI MEÐ EITTHVAÐ
SÉRSTAKT TIL BAKA?
JÁ, MINNI
MATARLYST.
GÓÐAN DAG,
HERRA FÚLL.
ÉG ER SVO GLAÐUR Í
DAG AÐ ÞÚ GETUR ENGAN
VEGINN SPILLT ÞVÍ!
ER ÞETTA
BRAUÐRISTIN?
INNISKÓRNIR
ÞÍNIR ERU
TILBÚNIR.
Víkverji er B-manneskja. Á þvíleikur enginn vafi. Það þýðir að á
morgnana segja líkami hans og sál
honum að hann eigi að vera sofandi,
en upp úr kvöldmat kemur alla jafna
yfir hann mikið sköpunar- og vinnu-
stuð sem nær hámarki um miðnætti.
Að minnsta kosti þá daga sem hann
hefur sofið frameftir.
Og Víkverji er síður en svo einn á
báti hvað þetta varðar. Fólk hefur
skipt sér í A- og B-fylkingar lengur
en Víkverji hefur dregið andann.
x x x
Það er undarlegt að þessir tveirþjóðflokkar skuli búa í sama
landi, þurfa að fara eftir sömu
reglum og, upp til hópa, sækja nám
og vinnu á sama tíma.
Víkverja datt í hug, á sínum yngri
árum, að sniðugast væri að tvínýta
alla innviði þjóðfélagsins, og spara
þannig stóra fjármuni, bæði hjá hin-
um opinbera og í einkageiranum.
Þá myndu vinnustaðir, mennta-
stofnanir og aðrir staðir fyllast af
A-fólki snemma á hverjum morgni –
A-kennarar myndu kenna A-nem-
endum, A-starfsfólk sinnti verk-
efnum fyrir A-viðskiptavini undir
stjórn A-yfirmanna og þar frameftir
götunum.
Að loknum átta tíma vinnudegi
færi A-fólkið heim og B-fólkið kæmi í
staðinn. Settist í sömu sæti og fengist
við sömu verk, bara á öðrum tíma sól-
arhrings.
x x x
Með þessu minnkaði þörfin fyriralla yfirbyggingu um helming,
þar sem vinnustaðir, stofnanir og
skólar stæðu ekki lengur tóm megnið
af sólarhringnum.
En líklega myndi þetta leiða til
eins konar aðskilnaðarstefnu, þar
sem sumir staðir væru bara fyrir A-
fólk, eða aðeins B-fólk mætti sækja
um ákveðin störf.
Og aðskilnaðarstefna er kannski
ekki akkúrat það sem íslenskt sam-
félag þarf í dag.
Því leggur Víkverji frekar til að
klukkan verði færð aftur um eina eða
tvær klukkustundir, yfir vetrartím-
ann, til að þessir tveir hópar A- og B-
fólks mætist í miðjunni. Það myndi
bæta andlega líðan, framleiðni og þar
með hagvöxt. víkverji@mbl.is
Víkverji
Því að Drottinn er góður, miskunn
hans varir að eilífu og trúfesti hans frá
kyni til kyns.
(Sálmarnir 100:5)
Aukablað
alla þriðjudagaHeilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is
ZumbaKvennaleikfimi
Zumba
Dansaðu þig í formmeð
einföldum sporum,
skemmtilegri tónlist og
góðum félagsskap.
Jafnt fyrir byrjendur
sem lengra komna.
• Þriðjud. og fimmtud. kl. 16:30
• Þjálfari: Hjördís - 4 vikur
• Hefst 1. apríl.
• Verð kr. 13.900
(2x í viku)
Kven
Góð leik
sem vilja
betur. Fj
styrktaræ
• Mánud
og föst
• Þjálfari:
íþróttaf
• Hefst 3
• Verð k
(3x í vik
naleikfimi
fimi fyrir allar konur
styrkja sig og líða
ölbreyttar
fingar. 4 vikur.
., miðvikud.
ud. kl. 16:30
ræðingur
1. mars.
r. 15.900
u)
Skráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is