Morgunblaðið - 31.03.2014, Page 32
MÁNUDAGUR 31. MARS 90. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Bara nokkur kíló í viðbót
2. Liverpool í toppsætið eftir …
3. Tvítugur með stungusár í …
4. Hóf að teikna í atvinnuleysi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Momentum heldur í
víking nú í apríl. Sveitinni var boðið
að spila á tónlistarhátíðinni Road-
burn í Hollandi en hátíðin mun einnig
standa fyrir frumflutningi á nýjustu
plötu sveitarinnar „The Freak is
Alive“. Af þessu tilefni heldur Mom-
entum tónleika á Gamla Gauknum 5.
apríl ásamt fleiri sveitum.
Momentum á tónlist-
arhátíð í Hollandi
Hinn heims-
þekkti ítalski pí-
anóleikari Domen-
ico Codispoti
spilar á tónleika-
röðinni Þriðju-
dagsklassík í
Garðabæ á morg-
un ásamt þeim
Sigrúnu Eðvalds-
dóttur fiðluleikara og Bryndísi Höllu
Gylfadóttur sellóleikara. Ingibjörg
Guðjónsdóttir er listrænn stjórnandi.
Codispoti leikur á
Þriðjudagsklassík
Bylgja Dís
Gunnarsdóttir
sópran kemur
fram á hádeg-
istónleikum í
Hafnarborg ásamt
Antoníu Hevesi
píanóleikara á
morgun klukkan
12. Yfirskrift tón-
leikanna er Ástin
er dauðans alvara og á efnisskránni
eru þekktar aríur eftir Verdi og Pucc-
ini.
Syngur um ástina
sem er dauðans alvara
Á þriðjudag Austlæg átt, víða 3-8 m/s og bjartviðri en 8-13 m/s og
súld syðst. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðvesturlandi.
Á miðvikud. og fimmtud. Suðaustan 8-13 m/s og lítilsháttar væta.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 8-18 m/s. Skýjað á Suðurlandi.
Hiti 3 til 12 stig að deginum, hlýjast á Suðvesturlandi en víða næt-
urfrost í innsveitum fyrir norðan.
VEÐUR
„Það er sérstaklega gaman
að standa uppi sem sigur-
vegari þegar keppnin er
svona hörð. Þannig að þetta
er alveg frábært,“ sagði
Norma Dögg Róbertsdóttir
við Morgunblaðið en hún varð
um helgina Íslandsmeistari í
fjölþraut kvenna í fimleikum í
fyrsta skipti. Ármann rauf 18
ára einokun Gerplu á
Íslandsmeistaratitlinum í
fjölþraut karla þegar Bjarki
Ásgeirsson sigraði. »2
Norma og Bjarki
Íslandsmeistarar
Luis Suárez skoraði eitt af mörkum
Liverpool þegar liðið skaust á topp
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu með stórsigri gegn Totten-
ham í gær, 4:0. Suárez sló þar með
met Robbies Fowlers yfir fjölda
marka á einu tímabili í ensku úr-
valsdeildinni en Úrúgvæinn frá-
bæri hefur nú skorað
29 mörk. Liverpool
er með tveggja
stiga forskot á
toppnum. »6
Suárez bætti met og
Liverpool á toppinn
Rafn Kumar Bonifacius vann
pabba sinn, Raj Bonifacius, í úr-
slitum Íslandsmótsins innanhúss
í tennis sem lauk í Tennishöllinni í
Kópavogi í gær. Í kvennaflokki
fagnaði Anna Soffía Grönholm
sigri en hún hafði betur á móti
Hjördísi Rósu Guðmundsdóttur í
úrslitaleiknum sem var jafn og
mjög spennandi. »7
Hafði betur á móti
föður sínum í úrslitum
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Rauður símaklefi í Lundúnastíln-
um, sem setja má niður til dæmis í
opnum skrifstofurýmum, var meðal
margra áhugaverðra gripa sem ís-
lenskir iðnframleiðendur sýndu á
Hönnunarmars í Hörpu um helg-
ina. „Við finnum aukinn skilning á
því að taka á vandamálum sem
snúa að hljóðvist á vinnustöðum.
Sannarlega eru mörg rök fyrir því
að fólk starfi í opnum rýmum, með
því verður til aðhald frá samstarfs-
fólki og stjórnun og flæði upplýs-
inga betra. En eins og öðru fylgja
þessu hins vegar ákveðin óþægindi,
til dæmis vegna hávaða og kliðs,“
segir Eyjólfur Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri Axis, í samtali við
Morgunblðið.
Næði fyrir mikilvæg símtöl
Hjá Axis, sem er við Smiðjuveg-
inn í Kópavogi, einbeita menn sér
að húsgagnaframleiðslu. „Mark-
aðurinn er að taka við sér. Um-
skiptin urðu um mitt síðasta ár og
sérstaklega er sala á skrifstofu-
húsgögnum að aukast. Kaupendur
leggja í dag mikla áherslu á að
notagildi húsgagnanna sé sem
mest,“ segir Eyjólfur.
Axis er í samstarfi við Sturlu Má
Jónsson innanhússarkitekt sem
hannaði sófann Einrúm sem kom á
markað á síðasta ári. Hátt þil klætt
hljóðdeyfandi ullarefni fylgir sóf-
anum og útkoman verður einskonar
skel þar sem fólk getur tyllt sér inn
þurfi það næðisstund, berist
því til dæmis mikilvægt
símtal. Sérstakri usb-
innstungu vegna raf-
hleðslu símtækja er
komið fyrir í sófanum
– og sami háttur er
hafður á með síma-
klefana. Þeir eru
einn fermetri að
flatarmáli, rauð-
málaðir og í milliklæðningu er
hljóðeinangrandi glerull.
Notagildi og
skemmtileg hönnun
„Við sameinum notagildi og
skemmtilega hönnun með símaklef-
unum. Teikningar Sturlu eru flott-
ar og smíðin, sem við lukum fyrir
nokkrum dögum, var ánægjulegt
verkefni. Svo förum við með þetta í
sölu á næstunni og eins og viðtök-
urnar hafa verið er ég bjartsýnn,“
segir Eyjólfur sem á Hönnunar-
mars kynnti ýmsa aðra muni sem
dregið geta úr hljóði og óþæg-
indum af þess völdum. Lausnir í því
sambandi hafa raunar verið einn
helsti þátturinn í þróunarstarfi Ax-
is síðustu misserin.
Lundúnastíll á skrifstofurnar
Hönnun og
hljóð Símaklef-
ar á sýningu
Morgunblaðið/Kristinn
Hönnunarmars Eyjólfur Eyjólfsson hjá Axis í símaklefanum sem vakti mikla athygli Hörpugesta um helgina.
Mikill fjöldi hönnuða og framleið-
enda tók þátt í Hönnunarmars að
þessu sinni. Afurðir þeirra eru af
ýmsum toga, þar má til dæmis
nefna húsgögn, skartgripi,
skó, sælgæti, föt, matvæli
og svo framvegis. Í einni
deiglu hafa ólíkar stefnur
og straumar mæst og er
fjölbreytnin eitt af því
sem gerir hátíðina
svo áhuga-
verða. „Hátíðin, sem fyrst var
haldin fyrir sex árum, hefur blásið
alveg nýju lífi í íslenska hönnun og
framleiðslu. Fyrir hrun var fólk
spennt fyrir flottum merkjum og
hvað varan kostaði skipti marga
litlu máli. Nú eru viðhorfin breytt
og mun jákvæðari gagnvart ís-
lenskri hönnun og framleiðslu og
fólk spáir meira í peninginn en áð-
ur var raunin,“ segir Eyjólfur Eyj-
ólfsson.
Fólk spáir meira í peninginn
FJÖLBREYTTAR AFURÐIR HÖNNUÐA OG FRAMLEIÐENDA
Sköpun Spáð í spilin.