Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.04.2014, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2014
Skipstjóri / Vélstjóri
Dögun ehf. leitar að skipstjóra og yfirvélstjóra á rækjuskipið RÖST SK-17. Leitað er að
skipstjóra með reynslu af togveiðum, helst á rækju. Vélstjóri þarf að vera með a.m.k.
VS-III ré9ndi og með reynslu :l sjós, helst sem yfirvélstjóri.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf,
með tölvupós: :l: hjalmar@dogun.is og olafur@dogun.is. Nánari upplýsingar veita Hjálmar
Vilhjálmsson og Ólafur Óskarsson í síma 588-7666.
Dögun ehf. var stofnað árið 1983. Fyrirtækið stundar rækjuvinnslu og útgerð, og er með aðsetur á Sauðárkróki.
DÖGUN
Leikskólinn Örk
á Hvolsvelli auglýsir eftir
aðstoðar-
leikskólastjóra og
leikskólakennurum
í 100% stöðu við leikskólann Örk á
Hvolsvelli. Um er að ræða framtíðarstarf og
sumarafleysingu.
Leikskólinn Örk er 4 deilda leikskóli þar sem
starfa 95 börn og 28 kennarar og
starfsmenn. Uppeldisstefna Arkarinnar
byggir á hugmyndafræði hugsmíðahyggju.
Verkefni:
Staðgengill leikskólastjóra.
Starfar eftir starfslýsingu.
Menntun:
Leikskólakennaramenntun áskilin.
Framhaldsmenntun í stjórnun og/eða
reynsla af stjórnun.
Hæfni:
Kennarar og starfsmenn leikskólans þurfa að
búa yfir færni í mannlegum samskiptum,
sýna frumkvæði, sjálfstæði og hafa metnað
fyrir starfi sínu og vera tilbúnir að vinna að
uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í
samræmi við námskrá og í nánu samstarfi
við stjórnendur leikskólans.
Ef ekki fæst fagfólk til starfa er áhugasömum
sem hafa hug á því að starfa með börnum
hvattir til að sækja um starf í leikskólanum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags
leikskólakennara.
Umsóknarfrestur er til 23. apríl nk.
Hægt er að sækja um á heimasíðu
leikskólans http://www.leikskolinn.is/ork.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Árný
Jóna Sigurðardóttir leikskólastjóri í síma
488 4270 eða með tölvupósti á
leikskoli@hvolsvollur.
Prentmet er framsækin prentsmiðja með höfuðstöðvar
að Lynghálsi 1 í Reykjavík og útibú á Akranesi og Selfossi
Prentmet ehf. óskar eftir öflugum sölumanni til starfa.
Meðal verkefna er eftirfarandi:
- Fyrirtækjaheimsóknir.
- Taka á móti viðskiptavinum.
- Ráðgjöf til viðskiptavina.
- Afla nýrra viðskiptavina.
Þekking og hæfni:
- Reynsla og þekking á prentverki.
- Reynsla og þekking á sölumennsku.
- Jákvæðni, metnaður og fagmennska.
- Frumkvæði og dugnaður.
- Heiðarleiki.
Við mat á umsóknum verður tekið sérstakt tillit til reynslu
og þekkingar umsækjenda.
Prentmet býður upp á hágæða prentun þar sem hraði, gæði
og persónuleg þjónusta fara vel saman í framleiðslunni.
Lögð er rík áhersla á að starfsfólki líði vel á vinnustað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir framkvæmdastjóri
mannauðssviðs, ingasteina@prentmet.is, s. 856 0601.
Atvinnuumsókn er á prentmet.is/um-okkur/atvinnuumsokn.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl n.k.
Öflugur sölumaður
óskast
Ert þú að leita að fjölbreyttu
og spennandi framtíðarstarfi?
Hefur þú lokið háskólaprófi? (B.A./B.S./B.Ed.)
Við Menntavísindasvið Háskóla Íslands er boðið upp á tveggja ára
meistaranám sem veitir þér starfsréttindi að námi loknu
» Leikskólakennari
Menntunarfræði leikskóla M.Ed. er tveggja ára 120 eininga nám og ætlað þeim sem lokið hafa
B.A./B.S./B.Ed. prófi. Hægt er að velja á milli stað- og fjarnáms en skyldumæting er í staðlotur
og vettvangsnám.
» Grunnskólakennari
Kennslufræði grunnskóla er 120e meistaranám í náms- og kennslufræði og er ætlað þeim sem hafa
lokið bakkalárgráðu (B.A./B.S./B.Ed.) sem felur í sér að minnsta kosti 120e í kennslugrein grunnskóla.
Gráðan veitir einnig heimild til að kenna viðkomandi grein í fyrstu áföngum framhaldsskóla. Hægt er
að velja á milli stað- og fjarnáms en skyldumæting er í staðlotur og vettvangsnám.
» Framhaldsskólakennari
Námið er ætlað þeim sem vilja afla sér réttinda til að kenna sérgrein sína í framhaldsskóla og heim-
ildar til að kenna hana á unglingastigi í grunnskóla. Í náminu fléttast saman bóklegt nám og starfs-
þjálfun á vettvangi. Gráðan veitir heimild til að kenna í framhaldsskóla. Námið veitir réttindi til að
kenna sérgrein í framhaldsskóla og heimild til að kenna hana á unglingastigi í grunnskóla.
Kjarnanámskeið eru kennd í staðnámi en
að öðru leyti er val milli stað- og fjarnáms.
Við inntöku í framhaldsnám á meistarastigi
gildir sú meginregla að umsækjandi hafi
lokið fyrstu háskólagráðu (B.A./B.S./B.Ed.).
Kennsla á þessum námsleiðum fer fram á
íslensku og er kennt í staðnámi og fjarnámi.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl
Sótt er um á heimasíðu Háskóla Íslands www.hi.is
» Nánari upplýsingar veitir Sigríður Pétursdóttir deildarstjóri
Kennaradeildar við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
í síma 525 5917 eða í tölvupósti kennaradeild@hi.is
Vélamaður – bílstjóri
Malbikunarstöðin Höfði h/f óskar eftir:
1. Vélamanni á malbikunarvél
2. Bílstjóra á trailer
Upplýsingar veitir verkstjóri í síma 693 5870
milli kl. 7.30 og 17.00 virka daga.
www. radum. i s
radum@radum. i s
S ím i 519 6770