Morgunblaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur Landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson neyddist til þess að draga sig út úr lands-
liðshópnum í gær vegna meiðsla. Hann gengst undir aðgerð á hné í Eskilstuna í Svíþjóð á þriðjudaginn 4
Íþróttir
mbl.is
BIKARINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þátttöku FH í bikarkeppni karla í
fótbolta lauk á KR-vellinum í gær-
kvöld þegar stórveldin tvö mættust
þar í 32ja liða úrslitum keppninnar.
Baldur Sigurðsson skoraði sig-
urmark KR-inga, 1:0, með fínum
skalla á 38. mínútu eftir góða fyr-
irgjöf frá Gary Martin. Sjöunda
markið sem Baldur skorar gegn FH
á síðustu árum.
Jón Ragnar Jónsson, hægri bak-
vörður FH, fékk rauða spjaldið á 80.
mínútu fyrir að brjóta illa á Baldri.
Sex mörk Stjörnunnar
Stjarnan lék Selfyssinga grátt í
Garðabænum og vann auðveldan sig-
ur á 1. deildarliðinu, 6:0. Baldvin
Sturluson og Ólafur Karl Finsen
skoruðu á fyrstu 15 mínútunum og í
seinni hálfleik gerðu þeir sitt markið
hvor, ásamt því að Michael Præst og
Atli Freyr Ottesen komust líka á
blað. Luka Jagacic, króatíski leik-
maðurinn hjá Selfyssingum, fékk
rauða spjaldið á 77. mínútu og verður
í banni í næsta leik þeirra í 1. deild-
inni sem er gegn HK næsta mánu-
dagskvöld.
Fjölnir lenti í basli með 2. deildarlið
Dalvíkur/Reynis í Egilshöllinni en
sigraði 1:0. Christopher Tsonis skor-
aði sigurmarkið skömmu fyrir hlé.
BÍ/Bolungarvík vann 2. deildarlið
Fjarðabyggðar, 4:2, á Ísafirði. Dan-
inn Mark Tubæk skoraði tvö fyrstu
mörkin og þeir Andri Rúnar Bjarna-
son og Kýpurbúinn Andreras Pachip-
is bættu við mörkum. Hákon Þór Sóf-
usson og Víkingur Pálmason skoruðu
fyrir Fjarðabyggð, fyrsta og síðasta
mark leiksins.
ÍR vann Aftureldingu í víta-
spyrnukeppni eftir 1:1 jafntefli.
Leikir Víkings R. – Grindavíkur,
KFG – Þróttar R. og Augnabliks –
Keflavíkur hófust það seint að þeim
var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Ljóst var þó að Keflavík og
Þróttur færu áfram. Allt um það á
mbl.is.
Morgunblaðið/Ómar
Sterkur KR-ingurinn Farid Zato stekkur manna hæst og skallar boltann í viðureign KR og FH í Frostaskjólinu. KR er komið í 16-liða úrslit keppninnar.
KR sendi FH út úr bikarnum
Morgunblaðið/Ómar
Barningur Þorri Geir Rúnarsson og Elton Livramento, sóknarmaður frá
Grænhöfðaeyjum, í baráttu um boltann í leik Stjörnunnar og Selfoss.
Baldur Sigurðsson var FH enn erf-
iður Jón Ragnar fékk rauða spjaldið
Ísak Rafnsson,
stórskytta úr FH
og varnarjaxl,
hefur ákveðið að
spila áfram með
FH. „Ég er ekki
búinn að skrifa
undir en það er
samt ljóst að ég
spila áfram með
FH. Ég mun gera
tveggja ára
samning en fái ég tilboð frá útlönd-
um eftir næsta tímabil þá mun FH
ekki standa í vegi fyrir mér að fara.
Það voru lið hér heima sem buðu
mér samning en ég hef tekið þá
ákvörðun að halda kyrru fyrir og
vonandi næ ég að vinna titil áður en
ég fer eitthvað annað,“ sagði Ísak
við Morgunblaðið í gær. Ísak skoð-
aði aðstæður hjá þýska liðinu Cob-
urg fyrr í þessum mánuði en erlend
félög hafa verið að fylgjast með
leikmanninum. „Stefnan hjá mér er
að komast út og það hefur verið
markmið mitt lengi. Nú er bara að
ná góðu tímabili og að ég fái að
njóta mín í sókninni. Ég er ekki
tilbúinn, 22 ára gamall, að spila
bara sem varnarmaður,“ sagði
Ísak. gummih@mbl.is
Ísak ætlar að
vera um kyrrt
hjá FH-ingum
Ísak
Rafnsson
29. maí 1990
Kristján Arason er Evrópumeist-
ari bikarhafa í handknattleik
með spænska fé-
laginu Teka og
verður þar með
fyrstur Íslendinga
til að vinna Evr-
ópumeistaratitil í
flokkaíþrótt. Teka
sigrar Drott frá
Svíþjóð, 23:18, í seinni úrslita-
leiknum á sínum heimavelli og
vinnur einvígið með þremur
mörkum samanlagt. Kristján
skorar 4 mörk í leiknum.
29. maí 1999
Örn Arnarson er sigursælasti
keppandi Smáþjóðaleikanna í
Liechtenstein en hann sigrar í
öllum sjö greinum sínum í sund-
keppni leikanna. Um leið tekur
hann þátt í að setja þrjú Íslands-
met í boðsundsgreinunum með
sveitum Íslands. Íslensku kepp-
endurnir vinna 44 gull af 72 á
leikunum.
29. maí 2010
Kvennalandslið Íslands í hand-
knattleik tryggir sér sæti í loka-
keppni Evrópumótsins í fyrsta
sinn. Liðið bíður lægri hlut í
Austurríki, 26:23, en heimaliðið
þurfti fimm marka sigur til að
komast áfram á kostnað Íslands.
Hrafnhildur Skúladóttir skorar 8
mörk í leiknum.
Á ÞESSUM DEGI