Morgunblaðið - 29.05.2014, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014
HM Í BRASILÍU
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þrjátíu dagar til að fá alla heims-
byggðina til að muna eftir manni um
ókomin ár. Já, heimsmeistaramótið
sem hefst í Brasilíu í næsta mánuði
er ekki bara tækifæri til að landa
stærsta titli sem í boði er í knatt-
spyrnuheiminum heldur gefst mönn-
um á að stimpla sig inn í hug og
hjörtu fótboltafíkla um allan heim.
Hverjir standa undir nafni? Hverjir
slá óvænt í gegn? Hverjir valda öll-
um vonbrigðum, hverjir verða
skúrkarnir og hverjar verða hetj-
urnar? Við þessum spurningum fást
endanleg svör þegar líður á júl-
ímánuð en þangað til er hægt að spá
í spilin.
Það þarf engan sérfræðing til að
tippa á að menn á borð við Lionel
Messi, Cristiano Ronaldo, Neymar,
Arjen Robben, Andrés Iniesta og
Luis Suárez hafi það sem til þarf til
að verða stjörnur HM. Þeir eru allir
í hópi stærstu knattspyrnustjarna
heimsins. Í liðunum 32 sem keppa
um titilinn er hins vegar urmull
hæfileikaríkra leikmanna sem stolið
gætu senunni, og komið þessum
ágætu mönnum í skuggann. Morg-
unblaðið rýndi í hugsanlega senu-
þjófa mótsins.
Hverjir slá í gegn á HM í Brasilíu?
Fleiri koma til greina sem stjörnur
keppninnar en Lionel Messi, Cristiano
Ronaldo, Neymar, Arjen Robben,
Andrés Iniesta og Luis Suárez
Messi og senuþ
Xavi Pascual, þjálfari Spánarmeistara Barcelona í hand-
knattleik, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og er
hann nú bundinn því til ársins 2017.
Pascual tók við þjálfun Katalóníuliðsins árið 2009 og undir
hans stjórn hefur liðið orðið Spánarmeistari síðustu fjögur
árin en á nýliðnu tímabili vann liðið alla 30 deildarleiki sína.
Þá gerði Pascual Börsunga að Evrópumeisturum árið 2011
og getur um komandi helgi endurtekið það en Barcelona
mætir þýska liðinu Flensburg í undanúrslitum í Meist-
aradeildinni í Köln á laugardaginn. Sigurliðið mætir sigurlið-
inu úr rimmu Kiel og Veszprém þegar leikið verður til úrslita
um Evrópumeistaratitilinn á sunnudaginn.
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson ku vera búinn að semja við
Barcelona og spilar því undir stjórn Pascuals á næstu leiktíð en líklegt er að
Barcelona greini frá félagaskiptum Guðjón Vals í næstu viku.
gummih@mbl.is
Framlengdi við Börsunga
Xavi
Pascual
Víkingarnir frá Norðurlöndum, Aron Jóhannsson frá Íslandi
og Mikkel Diskerud frá Noregi, rsáu um markaskorun fyrir
Bandaríkin þegar Bandaríkjamenn unnu 2:0-sigur á Aserba-
ídsjan í fyrrinótt í vináttulandsleik í San Francisco. Leik-
urinn er liður í undirbúningi Bandaríkjanna fyrir heims-
meistaramótið í knattspyrnu sem hefst í Brasilíu í júní.
„Ég held að við getum verið mjög ánægðir með þennan
leik. Við höfum lagt ótrúlega hart að okkur á æfingum,“ var
haft eftir Aroni á vefsíðu CBS í Bandaríkjunum eftir leikinn
gegn Aserbaídsjan í fyrrinótt.
Aron og Diskerud komu inn á sem varmamenn, Aron á 62.
mínútu þegar enn var markalaust, en setti svo sannarlega
svip sinn á leikinn og skoraði síðara mark leiksins með fallegum skalla. Banda-
ríkin leika næst gegn Tyrklandi í New Jersey á sunnudag og svo gegn Nígeríu í
Jacksonville í Flórída sex dögum síðar. Bandaríska liðið er svo með Gana,
Portúgal og Þýskalandi í riðli á HM, sannkölluðum dauðariðli. thorkell@mbl.is
Lagt á norðurlanda-ráðin
Aron
Jóhannsson
Borgunarbikar kvenna
2.umferð:
Þróttur R. – BÍ/Bolungarvík................... 3:0
Dregið til 16-liða úrslita í gær:
KR – FH
Breiðablik – Höttur
Þróttur R. – ÍR
Selfoss – ÍA
Afturelding – Valur
Álftanes – ÍBV
Þór/KA – Fylkir
Víkingur Ó. – Stjarnan
Leikirnir fara fram dagana 6. og 7. júlí.
Evrópukeppni U19 karla
Milliriðill á Írlandi:
Írland – Ísland.......................................... 2:1
Sam Byrne 51., 60. – Ævar Ingi Jóhann-
esson 67.
Serbía – Tyrkland .................................... 1:1
Ísland mætir Serbíu á morgun og Tyrk-
landi á mánudaginn. Sigurliðið í riðlinum
kemst í átta liða úrslitakeppnina um Evr-
ópumeistaratitilinn.
Vináttulandsleikir
Suður-Kórea – Túnis............................... 0:1
Zouhaier Dhaouadhi 45.
Danmörk – Svíþjóð.................................. 1:0
Daniel Agger 90.(víti)
Nígería – Skotland .................................. 2:2
Michael Uchebo 41., Uche Nwofor 90. –
Charles Mulgrew 10., Azubuike Egwuekwe
52.(sjálfsm.)
KNATTSPYRNA
Þýskaland
Umspil um sæti í A-deild:
Koblenz/Weibern – Trier................... 30:27
Hildur Þorgeirsdóttir skoraði 4 mörk
fyrir Koblenz/Weibern sem heldur sæti
sínu í deildinni. Liðið á einn leik eftir gegn
SG BBM Bietigheim á heimavelli næsta
laugardag.
Vináttulandsleikur karla
Svíþjóð – Noregur ................................ 21:25
HANDBOLTI
Úrslitakeppni NBA
Vesturdeild, úrslit:
Oklahoma City – San Antonio ........... 105:92
Staðan er 2:2 og fimmti leikurinn fer
fram í San Antonio næstu nótt, sá sjötti í
Oklahoma á laugardagskvöldið. Ef kemur
til oddaleiks verður hann í San Antonio að-
faranótt þriðjudags.
Indiana og Miami mættust í fimmta leik
sínum í Indianapolis í nótt en fyrir hann var
Miami með 3:1 forystu. Sjá mbl.is.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
4. deild karla:
Helgafellsvöllur: KFS – Stokkseyri ........ 14
Hertzvöllur: Léttir – Kormákur/Hvöt .... 14
Fylkisvöllur: Elliði – Skallagrímur.......... 16
Bessastaðav.: Álftanes – Hvíti riddarinn 20
Norðurálsvöllur: Kári – Snæfell .............. 20
Egilshöll, úti: Vængir Júpíters – Mídas .. 20
Kórinn, úti: Stál-úlfur – KB...................... 20
Samsungvöllur: Skínandi – Kría.............. 20
Í KVÖLD!
Þriðja heimsmeistarakeppni karla í
knattspyrnu fór fram í Frakklandi
4.-19. júní árið 1938. Fimmtán þjóðir
tóku þátt, tólf þeirra frá Evrópu.
Austurríki vann sér keppnisrétt en
hafði verið innlimað í Þýskaland
þegar keppnin fór fram og því voru
15 lið í stað 16 í keppninni.
Ítalía varð heimsmeistari í annað
skipti í röð og vann Ungverjaland,
4:2, í úrslitaleik í París að við-
stöddum 45.124 áhorfendum.
Brasilía vann Svíþjóð, 4:2, í úr-
slitaleik um bronsið í Bordeaux.
Frakkland, Sviss, Kúba og Tékkó-
slóvakía féllu út í 8-liða úrslitum.
Leonídas (1913-2004) frá Brasilíu
var markakóngur keppninnar með 7
mörk.
Úrúgvæ og Argentína neituðu að
vera með í mótmælaskyni vegna
þess að keppnin færi í annað sinn í
röð fram í Evrópu. Brasilía, Kúba og
Indónesía voru fulltrúar Ameríku og
Asíu í keppninni.
S
A
G
A
H
M1938
Ítalía
Staða: Markvörður
Aldur: 22
Félagslið: Atlético Madrid
Það er best að byrja á byrjuninni. Markverðir hafa oftar en ekki sveipað sig
hetjuljóma á stórmótum enda er sviðið þeirra þegar að vítaspyrnukeppnum kem-
ur. Courtois er lykilmaður í sterku liði Belga sem margir spá velgengni á mótinu.
Þessi pollslaki tveggja metra kappi átti magnað tímabil með Spánarmeisturum
Atlético Madrid og var rétt um 2 mínútum frá því að verða Evrópumeistari. Á
leiðinni í úrslitaleikinn sló Atlético Chelsea út en Courtois hefur verið á láni hjá
spænska liðinu frá Chelsea. Nú velta menn því fyrir sér hvort hann taki sæti
Petr Cech sem hefur verið besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar.
Thibaut Courtois, Belgíu
Staða: Miðjumaður
Aldur: 24
Félagslið: Dortmund
Það væri hægt að nefna 6-7
miðjumenn úr þýska hópnum
sem gætu stolið senunni á
HM en við tippum helst á
Reus. Þessi 24 ára miðjumað-
ur Dortmundar leggur upp og
skorar mörk í öllum regnbogans
litum. Hann skoraði fimm mörk og
lagði upp þrjú í sex leikjum í und-
ankeppni HM, og setti 16 mörk í
30 deildarleikjum í vetur. Reus til-
heyrir hinni nýju „gullkynslóð“
Þjóðverja sem margir telja að
muni nú standa undir nafni og
skila Þýskalandi titli eftir tvö
brons og silfur í síðustu þremur
mótum. Hann er stöðugt orðaður
við mörg af stærstu félögum
Evrópu og verði hann sjálfum
sér líkur á HM munu þær radd-
ir ekkert þagna.
Marco Reus, Þýskalandi
Staða: Miðjumaður
Aldur: 24
Félagslið: Roma
Bosníumenn eru mættir til leiks á
HM í fyrsta sinn og til að þeim vegni
vel þarf „litli prinsinn“ Pjanic að
vera í stuði. Þessi 24 ára gamli fjöl-
hæfi miðjumaður hefur slegið í gegn
með Roma í vetur, verið einn besti
leikmaður seríu A og sýnt hve mikilli
sköpunargáfu hann býr yfir innan
fótboltavallarins, auk þess að skora
nokkur mörk sjálfur. Pjanic gat valið
á milli þess að spila fyrir Lúx-
emborg, Frakkland eða Bosníu en
kaus að spila fyrir Bosníu sem hefur
heldur betur reynst heilladrjúgt fyr-
ir þjóðina. Edin Dzeko og Vedad Ib-
isevic mega búast við draumasend-
ingum í von sinni um að skjóta
Bosníu sem lengst áfram.
Miralem Pjanic,
Bosníu
Staða: Miðvörður
Aldur: 28
Félagslið: Real Madrid
Spænska blaðið AS sló því upp í vik-
unni að með góðri frammistöðu á
HM gæti Ramos hæglega hlotið út-
nefningu sem besti knattspyrnu-
maður heims fyrir árið 2014. Það er
hárrétt en aðeins Fabio Cannavaro
og Franz Beckenbauer hafa hlotið
slíka útnefningu sem varnarmenn.
Markið sem Ramos skoraði í upp-
bótartíma gegn Atlético Madrid í úr-
slitaleik Meistaradeildarinnar, og
mörkin tvö gegn Bayern í undan-
úrslitum, vega þungt en hann hefur
vitaskuld fleira til brunns að bera.
Ramos er sá Spánverji sem yngstur
hefur náð 100 landsleikjum. Hann er
á hátindi ferilsins og tilheyrir liði
sem vel gæti varið titilinn sinn.
Sergio Ramos,
Spáni