Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2014 3
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands auglýsir eftir:
Hjúkrunarstjóra á hjúkrunar- og dvalardeild•
Ljósmóður á heilsugæslustöð•
Hjúkrunarfræðing til afleysingar í 1 ár•
Upplýsingar um störfin má finna á heimasíðu HSSA, www.hssa.is og
í síma 470-8600. Umsóknarfrestur er 15.maí.
Sveitarfélagið Hornafjörður / Hafnarbraut 27 / S: 4708000 / www.hornafjordur.is
Spennandi stöður hjá
Heilbrigðisstofnun
Suðausturlands
Hornafjörður er blómstrandi 2200 manna samfélag. Höfn, stærsti þéttbýlisstaðurinn er öflugur útgerðarbær.
Í sveitarfélaginu eru tveir grunnskólar og tveir leikskólar. Framhaldskóli og rannsóknasetur Háskóla
Íslands eru í Nýheimum Menningamiðstöð Hornafjarðar ásamt almenningsbókasafni, starfstöðvum Matís,
Nýsköpunarmiðstöðvar, Austurbrú framhaldsfræðslu og Búnaðarsambandi Suðurlands. Fjölbreytt félagsstarf
er í sveitarfélaginu, ný almenningssundlaug, íþróttahús, líkamsræktarstöð og knatthús. Samgöngur eru greiðar,
beint flug er til Hafnar og Strætó getur til Hafnar frá Reykjavík.
Árvakur óskar eftir að ráða starfsmann í
mötuneyti.
Í mötuneytinu er eldaður og framreiddur
matur fyrir starfsfólks Árvakurs hf., sem gefur
fyrir hádegismat, þrifum í eldhúsi, uppvaski,
þjónustu vegna funda og þess háttar. Eins er
mikilvægt að viðkomandi geti leyst matráð
af og þá eldað hádegismat fyrir allt að 100
manns.
Um er að ræða 50% starf, frá 10:00-14:00 en
viðkomandi þarf að vera tilbúinn í 100% starf
þegar leysa þarf matráð af.
Við leitum að starfsmanni sem hefur reynslu
af ofangreindu, er snyrtilegur, þjónustulipur og
störf upp úr miðjummaí.
Ljósbjörg Guðmundsdóttir, starfsmannastjóri
Árvakurs, í síma 569-1332. Umsóknarfrestur
er til 12. maí 2014
Umsóknir er hægt að fylla út á
mbl.is, neðst á forsíðu. Á umsóknar-
eyðublaðinu skal velja almenn
umsókn og tiltaka mötuneyti þegar
spurt er um ástæðu umsóknar.
Einnig er hægt að skila inn
umsókn merktri starfsmannahaldi
í afgreiðslu Morgunblaðsins að
Hádegismóum 2.
Starfsmaður í mötuneyti
Steypubílstjórar/
dælumenn
Vegna mikilla verkefna framundan er BM
Vallá að leita að kraftmiklum, duglegum og
samviskusömum starfsmönnum með meira-
próf og tækjaréttindi til starfa hjá fyrirtækinu.
Við erum að leita að steypubílstjórum og
dælustjórum. Starfsmönnum sem geta unnið
sjálfstætt, eru nákvæmir, hafa gaman af
mikilli vinnu og geta unnið undir álagi.
Bílstjórar eru í mörgum tilfellum í beinum
samskiptum við viðskiptavini og þurfa því að
hafa góða framkomu og þjónustulund.
Verið að leita að starfsmönnum í sumaraf-
leysingar með möguleika á lengri ráðningu.
Unnið er eftir bónuskerfi sem gefur aukna
tekjumöguleika.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður
Árnason í síma 412 5100. Sendið umsóknir
og fyrirspurnir á sigurdur@bmvalla.is
Bíldshöfða 7
Samkeppnisfærni Íslands í
samanburði við nágrannalönd
okkar er afar slæm ef við
horfum til
þess að
halda vel
menntuðu
fólki hér
heima.
Þetta sagði
Kristján
Þórður
Snæbjarn-
arson, for-
maður Raf-
iðnaðarsambands Íslands,
sem flutti aðalræðuna 1. maí á
baráttufundi verkalýðsfélag-
anna á Akureyri.
Geta unnið flest störf
Í ávarpi sínu gat Kristján
þess að íslenskir rafiðn-
aðarmenn hefðu á síðustu ár-
um mikið sótt í vinnu á Norð-
urlöndum. Fái þar góð laun.
Íslenskir rafvirkjar ásamt
fólki í störfum af sama meiði
séu eftirsóttir til vinnu í Nor-
egi. Það fólk sé vel menntað
og hafi jafnvel breiðari þekk-
ingu á rafiðninni enda aðrir,
því minni sérhæfing sé í
námsleiðum hér heima en er-
lendis.
Útkoman sé því sú, að ís-
lenskir rafiðnaðarmenn geta
unnið allflest störf í faginu án
þess að þurfa að auka við
menntun sína. Vilji stjórnvöld
fá þetta fólk aftur heim þurfi
hins vegar að skapa jafnvægi
í efnahagsmálum.
Heimsmet handan
við hornið
„Stjórnvöld þurfa að grípa í
taumana ef þau ætla sér að
snúa skútunni við. Handan
við hornið bíður okkar
skuldaniðurfærsla. Heims-
metið í skuldaleiðréttingum.
Sem er væntanlega tilkomið
sökum þess að við eigum ein-
hverskonar heimsmet í verð-
bólgu,“ sagði Kristján Þórður
og hélt áfram:
„Skuldaniðurfærslan mun
skila sér í veski okkar flestra
til skamms tíma. En verði
ekkert að gert mun verðbólg-
an auka skuldir okkar aftur
og mögulega hraðar en ella.
Leiðréttingin getur gengið til
baka verði verðbólgan há aft-
ur! Við verðum því vænt-
anlega á svipuðum stað innan
skamms tíma nái þjóðin ekki
að styrkja gengi krónunnar.“
Forsendubrestur
í húsaleigu
Formaður Rafiðn-
aðarsambands Íslands gerði
stöðu fólks á húsaleigumark-
aði að umtalsefni í Akureyr-
arræðu sinni. Sagði þá sem
lægstar hefðu tekjurnar ekki
hafa bolmagn til að fjárfesta í
íbúðum né heldur greiða him-
inháa húsaleigu sem hefði í
mörgum tilvikum hækkað um
29% á einu ári. Mæta yrði
þessu fólki í aðstæðum sínum.
„Þetta fólk verður fyrir for-
sendubresti í dag líkt og í
kringum 2009. 29% hækkun á
einu ári er langt frá því að
vera boðleg,“ sagði Kristján
Þórður sem lagði áherslu á að
komið yrði til móts við þetta
fólk. Minnti þar á að Alþýðu-
samband Íslands hefði kynnt
lausnir í félagslega húsnæð-
iskerfinu, sem væru enn í
fullu gildi. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti
Akureyri Kjarasamningar, stöðugleiki og húsnæðismál voru
áberandi stef í barátturæðum á verkalýðsdeginum, 1. maí.
Stöðugleika svo
fólk snúi heim
Þröng á húsnæðismarkaði
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
Nýgerðum kjarasamningum
aðildarfélaga Bandalags há-
skólamanna við ríkið er fagnað
í ályktun aðalfundar banda-
lagsins sem haldinn var í vik-
unni. Þar segir að í samn-
ingnum hafi verið stigin
afgerandi skref í leiðréttingu á
þeirri kjararýrnun háskóla-
menntaðra í opinberri þjón-
ustu sem orðið hafi á und-
angengnum árum. Þá séu þær
leiðréttingar sem gerðar voru í
kjarasamningum ríkisins við
kennara í framhaldsskólum og
háskólum fagnaðarefni.
Í ályktun eru stjórnvöld
hvött til þess, í yfirstandandi
kjaraviðræðum milli ríkis og
aðildarfélaga BHM, að það
verði á óyggjandi hátt tekið til-
lit til mik-
ilvægis
framlags fé-
lagsmanna
BHM á ís-
lenskum
vinnumark-
aði.
„Þekking
er ekki að-
eins einn af
horn-
steinum íslensks atvinnulífs
heldur byggist öll framtíð-
aruppbygging í landinu á öflun
hennar, þróun og beitingu. Ís-
land má ekki við því að missa
þekkinguna úr landi,“ segir í
ályktun.
Formaður BHM er Guðlaug
Kristjánsdóttir. sbs@mbl.is
Afgerandi skref til
leiðréttingar stigin
Guðlaug
Kristjánsdóttir
BHM fagnar nýjum samningum