Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2014 5
Ímorgunsárið leggur kaffiilm yfirEyrina á Akureyri. Það er í rauða-bítið sem karlarnir í Nýju kaffi-brennslunni mæta á vaktina og með-
al fyrstu verka dagsins er að vigta
baunirnar í ofninn. Baunirnar, sem eru
fluttar inn til dæmis frá Brasilíu og Kól-
umbíu, fara í 100 kg skömmtum í
brennsluvélina og framleiðslan yfir daginn
er tvö til fjögur tonn. „Akureyringar eru
tryggir viðskiptavinir okkar. Vænn
skammtur af framleiðslunni er alltaf seld-
ur hér í bæ þótt mest fari auðvitað í versl-
anir syðra,“ segir Helgi Örlygsson fram-
kvæmdastjóri.
Löng hefð og mikil reynsla
Nýja kaffibrennslan á sér langa sögu.
Fyrirtækið er í dag í eigu Esjubergs hf. í
Reykjavík. Kaffibrennsla O. Johnson og
Kaaber var stofnuð árið 1924. Nokkrum
árum seinna eða 1931 stofnaði Stefán
Árnason á Akureyri sína kaffibrennslu,
sem KEA og Sambandið svo eignuðust og
ráku í áratugi. Þessara tveggja fyrirtækja
í millum var hörð samkeppni í áratugi, en
það var svo um aldamótin sem fyrirtækin
sameinuðust og fluttist þá öll kaffivinnsla
norður. Kom þar til að löng hefð og mikil
reynsla var fyrir hendi nyrðra og verk-
smiðjan þar í góðu standi.
„Þetta hefur verið farsæll rekstur og
okkur hefur gengið vel,“ segir Helgi Ör-
lygsson.
Í litlum bolla
Vörumerkjatryggð er þekkt hugtak í
markaðsfræðum. Hún er hins vegar ekkert
nýmæli, Akureyringar voru tryggir alltaf
Bragakaffinu en kaffi frá Kaaber ráðandi
syðra. Nú eru hins vegar báðar þessar teg-
undir framleiddar nyrðra, svo og Rúbín-
kaffið vinsæla. Einnig Diletto-kaffi fyrir
verslanir Bónuss og Íslandskaffi fyrir
Kaupás. Eru þá ýmsar afurðir ótaldar.
„Maður er alltaf að dreypa á kaffi og
leita hins rétta bragðs. Fæ mér því oft tíu
dropa í lítinn bolla, hvort sem það er hér í
vinnunni eða heima,“ segir Helgi sem hef-
ur starfað hjá Nýju kaffibrennslunni og
fyrirrennara þess í fjörutíu ár. Á þó mikið
í land svo hann nái Helga Ármanni Al-
freðssyni sem hefur starfað hjá fyrirtæk-
inu í tæp 67 ár og er enn að.
Systurfélagið sér um söluna
Nýja kaffibrennslan sinnir framleiðslu.
Systurfélagið O. Johnson & Kaaber sér al-
farið um sölu og dreifingu sunnan heiða,
sem fellur vel að annarri starfsemi, það er
heildsölu á matvöru og öðrum nauðsynjum
sem fást í búðum um allt land. sbs@mbl.is
Bragð Arnar Eyfjörð Helgason framleiðslustjóri mælir hita-
stig á kaffi fyrir smökkun. Vandað er til allra verka.
Bolli Ýmsum finnst kaffið bragðist best sé bollinn lítill. Slíkt
má þó einu gilda, því ætíð hressir sopinn er stundum sagt.
Handavinna Arnar Eyfjörð Helgason framleiðslustjóri, til
hægri, og Úlfar Steingrímsson raða kaffipokum í kassa
Smakk Kaffi og kaffi er sitthvor hluturinn og samanburður
því mikilvægur svo algjört úrvalskaffi renni á könnuna.
Innflutningur Kaffibaunirnar koma í sekkjum sem þeir Arnar
Eyfjörð Helgason og Hermann Kristjánsson handlanga í hús.
Lagfæringar Hermann Kristjánsson sem starfar við ýmsar
viðgerðir á verkstæðinu, bæði á vélbúnaði og kaffidælum.
Framleiða allt að fjögur kaffitonn á dag
Kaffikarlar Helgi Ármann Alfreðsson brennslustjóri, til vinstri sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í 67 ár. Til hægri er Helgi Örlygsson fram-
kvæmdastjóri Nýju kaffibrennslunnar sem hefur unnið hjá fyrirtækinu í 40 ár og á því talsvert í land að ná Helga hvað starfsaldur varðar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Úrval Ýmsar baunategundir sem bíða smökkunar og þess að verða síðar brenndar og malaðar svo úr megi brugga kaffi. Framleiðsla Nýju kaffi-
brennslunnar og því þarf talsvert úrval bauna, sem koma frá ýmsum löndum, til þess að geta sem best svarað ólíkum óskum viðskiptavinanna.
Innlit í atvinnulífið Nýja kaffibrennslan