Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.05.2014, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. MAÍ 2014
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Reykjavík, maí 2014
Aðalfundur
Vörubílstjórafélagsins Þróttar verður haldinn
í húsi félagsins að Sævarhöfða 12 miðviku-
daginn 14. maí nk. og hefst kl. 20.00.
Dagskrá aðalfundar skv. 27. gr. laga
Vörubílstjórafélagsins Þróttar.
Stjórnin.
Aðalsafnaðarfundur
Kársnessóknar 2014
Aðalsafnaðarfundur Kársnessóknar verður
sunnudaginn 11. maí 2014. Fundurinn hefst
klukkan 12.00 í safnaðarheimilinu Borgum.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd Kársnessóknar.
Tilboð/útboð
15612 – Kortlagning auðlinda í
ferðaþjónustu
Ríkiskaup, fyrir hönd Ferðamálastofu, óska eftir
tilboðum í kortlagningu á auðlindum ferðaþjón-
ustunnar sem aðdráttarafls fyrir ferðamenn á
landsvísu. Lokaafurð verkefnisins er gagna-
grunnur sem nýst getur hagsmunaaðilum við
þróun og uppbyggingu í ferðaþjónustu.
Verkefnið er fjórskipt:
Í fyrsta hluta skal lista upp stök (t.d. staði eða
náttúrufyrirbæri) eftir þematengdum korta-
þekjum.
Í öðrum hluta skal meta aðdráttarafl, aðgengi
og eignarhald í samvinnu við rýnihópa.
Í þriðja hluta skal m.a. skrá lýsingar og hnit
hvers staks sem fengið hafa matseinkunn 2
eða 3 í meðferð rýnihóps.
Í fjórða hluta skal stýra yfirferð gagna, skrá
viðeigandi breytingar og skila afurð verkefnis
með skráningu í gagnagrunn.
Markmið útboðsins er að fá sem flestar
lýsingar/fullunnin stök skráð í gagnagrunn fyrir
ráðstöfunarfjárhæð. Afhendingartími afurðar er
1. nóvember 2014. Valkostur um áframhaldandi
vinnu/verk/aukaverk í kjölfar þessa verks er
hugsanlegur en þó valkvæður af hendi kaupanda.
Gerðar eru þær kröfur til bjóðenda að þeir hafi
háskólagráðu sem nýtist til verksins, mjög góða
íslenskukunnáttu í ræðu og riti, staðgóða
þekkingu á ferðamennsku, sögu, menningu og
náttúru landsins, stundi fagleg vinnubrögð við
heimildarleit og framsetningu efnis, geti greint
aðalatriði frá aukaatriðum, séu jákvæðir og liprir í
samskiptum og hafi góða almenna tölvukunnáttu.
Hægt er að nálgast útboðsgögn á vefsvæði
útboðsins á www.rikiskaup.is miðvikudaginn
7. maí 2014.Tilboð verða opnuð í húsakynnum
Ríkiskaupa þriðjudaginn 20. maí 2014 kl. 14.00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Bækur til sölu
Skýrsla Lærða skólans í Reykjavík 1846–1886, Skýrsla Mennta-
skólans í Reykjavík 1887–1995, Skýrsla MA 1930–1977, Ársrit
Laugaskóla 1.–10. ár, Menntamál 1.–42. árg. Almanak Ólafs
Þorgeirssonar 1895–1955 lp., Almanak Þjóðvinafélgsins 1875–
2004, Læknablaðið 1915–1932,Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
1.–21. árg., Íslensk myndlist 1–2, Sýslumannaævir 1–5, Reykjaætt
1–5, Ættir Austur-Húnvetninga 1–4, MA-stúdentar 1–5,
Bíldudalsminning, Hornstrendingabók 1–3, Ódáðahraun 1–3.
Allar bækurnar innbundnar og í góðu standi.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Umsókn
um leyfi til makrílveiða árið 2014.
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um
leyfi til makrílveiða á árinu 2014.
Umsóknareyðublað um leyfi til veiða á
makríl árið 2014 má nálgast á vef Fiskistofu,
fiskistofa.is. Þar má einnig sjá reglugerð nr.
376/2014 um stjórn makrílveiða íslenskra
skipa árið 2014.
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur um
leyfi til veiða samkvæmt 2. tölulið 1. máls-
greinar 2. greinar reglugerðarinnar er til og
með 16. maí 2014.
Fiskistofa.
Tilkynningar
Til sölu
Sólar, borð, speglar, matadiskar og margt
fleira.Tilvalið fyrir bændagistingar og
sumarhótel.
Einnig eru til sölu tveir flyglar, annar þeirra
er mikið notaður en hinn í mjög góðu
ásigkomulagi
Upplýsingar í síma 533 1100 / 777 1424
eða á netfangið egill@eva.is
Til sölu
*Nýtt í auglýsingu
15638 Hjólaskófla fyrir Isavia.
Ríkiskaup, fyrir hönd Isavia, óska eftir tilboðum í
nýja/ónotaða hjólaskóflu á bilinu 25–27 tonn að
stærð og með a.m.k. 280 hestafla vél, án skóflu,
tilbúna til notkunar og afhendingar fyrir 1. sept-
ember 2014. Kaupandi óskar eftir, sem valkvæðum
möguleikum, að kaupa aðra hjólaskóflu fyrir 1.5.
2015, með afhendingu innan 4 mánaða. Nánari
lýsing á hjólaskóflu og búnaði hennar er í
útboðsgögnum sem eru aðgengileg á vef
Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is. Tilboð verða opnuð
15. maí 2014 kl. 14.00 hjá Ríkiskaupum.
*15647 Sand-, salt- og pækildreifarar fyrir
Vegagerðina. Ríkiskaup, fyrir hönd Vegagerð-
innar, óska eftir tilboðum í fjóra nýja 7 m³ sand-,
salt- og pækildreifara, með u.þ.b. 3.000 lítra
pækiltönkum tilbúnum til notkunar og afhend-
ingar fyrir 15. september 2014. Nánari upplýsingar
er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengi-
leg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.
Tilboð verða opnuð 23. maí 2014 kl. 14.00 hjá
Ríkiskaupum.
*15640 Blóðskilunarþykkni o.fl., Landspítala
Ríkiskaup, fyrir hönd Landspítala, óska eftir
tilboðum í blóðskilunarþykkni, bíkarbónat til
blóðskilunar og hreinsiefni fyrir blóðskilunarvélar,
fyrir skilunardeild LSH. Nánari upplýsingar er að
finna í útboðsgögnum sem verða aðgengileg á
vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is.Tilboð verða
opnuð 19. júní 2014 kl. 11.00 hjá Ríkiskaupum.
Ellefu íþróttamenn fengu á
dögunum úthlutaðar þrjár
milljónir króna í afreksstyrki
úr Samfélagssjóði Lands-
bankans. Fjórir íþróttamenn
fengu 400 þúsund króna
styrk, en þeir eru allir í
fremstu röð. Sjö, sem kallaðir
eru afreksmenn framtíð-
arinnar, fengu 200 þúsund
krónur í styrk hver. Þetta er í
annað sinn sem Landsbank-
inn veitir afreksstyrki undir
þessum formerkjum og bár-
ust nú 177 umsóknir um þá.
Markmið styrkjanna er að
styðja við bakið á afreksfólki
sem iðkar einstaklings- eða
paraíþróttir, segir í frétt frá
Landsbankanum. Er þar tek-
ið fram að styrkirnir dreifast
vel milli íþróttagreina og fé-
laga. „Við leggjum áherslu á
að styðja þá sem þegar hafa
náð langt en einnig ungt og
efnilegt íþróttafólk. Með því
viljum við reyna að gera fleir-
um kleift að ná afburðaár-
angri á sínu sviði,“ segir í
fréttatilkynningu, haft eftir
Steinþóri Pálssyni, banka-
stjóra Landsbankans.
Júdó og skíði
Þau sem afreksstyrkina
fengu eru Guðmundur Sverr-
isson, spjótkastari í ÍR,
Helga María Vilhjálmsdóttir,
skíðakona í ÍR, Kári Gunn-
arsson, badmintonmaður í
TBR, og Sævar Birgisson,
skíðagöngumaður í Skíða-
félagi Ólafsfjarðar. Af þeim
sem afreksstyrkina hlutu má
nefna Önnu Sólveigu Snorra-
dóttur, kylfing úr Golf-
klúbbnum Keili, Egil Blöndal,
júdómann í Ungmennafélagi
Selfoss, og Emil Tuma Víg-
lundsson, hjólreiðamann í
Hjólreiðafélagi Reykjavíkur.
sbs@mbl.is
Eljusemi Afreksfólkið við úthlutun styrkja Landsbankans.
Íþróttamenn
efldir til afreka
Spjótkastari og kylfingur
Kjaranefnd Félags eldri
borgara í Reykjavík telur að
afnema eigi skerðingu
tryggingabóta aldraðra hjá
TR vegna greiðslna úr líf-
eyrissjóði. Í ályktun segir að
þegar lífeyrissjóðirnir voru
stofnaðir um 1970 hafi verið
gert ráð fyrir því að þeir
yrðu viðbót við almanna-
tryggingar, það er að sjóð-
irnir myndu ekki skerða líf-
eyri aldraðra frá
almannatryggingum. Í dag
sé skerðingin hins vegar
orðin svo mikil að óánægjan
ógni lífeyrissjóðunum og
tryggingakerfinu.
„Enda þótt ákvörðun um
skerðingu tryggingabóta
aldraðra hafi verið tekin af
alþingi og stjórnvöldum láta
margir lífeyrisþegar
óánægju sína bitna á lífeyr-
issjóðunum,“ segir í ályktun.
Mikið ranglæti
Í ályktun benda eldri
borgarar í Reykjavík á að
einhleypur lífeyrisþegi, sem
hafi 70 þús. kr. í lífeyri frá
lífeyrissjóði á mánuði, sæti
63 þús. kr. skerðingu á
mánuði hjá Trygg-
ingastofnun. Sá sem aldrei
hefur borgað neitt í lífeyr-
issjóð fái svipaða upphæð
greidda frá almannatrygg-
ingum og sjóðþeginn fær úr
lífeyrissjóði og frá Trygg-
ingastofnun. Þetta sé mikið
ranglæti sem kjaranefnd
skorar á ríkisstjórnina að
leiðrétta, í tveimur til þrem-
ur áföngum ef ekki vill bet-
ur. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spilað Dansinn dunar hjá eldri borgurum sem vilja bætt kjör.
Skerðing ógnar
lífeyriskerfinu
Eldri borgarar vilja breyttar
bætur Ríkisstjórn leiðrétti