Morgunblaðið - 21.07.2014, Side 7
ÍÞRÓTTIR 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2014
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
VÍKINGUR R.-FJÖLNIR
Á VÍKINGSVELLI 21. JÚLÍ KL. 19:15
Fyrstu 50 áskrifendurnir fá tvo miða á leikinn.
Mættu á völlinn og framvísaðu Moggaklúbbskortinu
við innganginn til að fá miða.
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
Pepsi-deild kvenna
Valur – Þór/KA ....................................... 1:1
Elín metta Jensen 64. – Andrea Mist Páls-
dóttir 90. Rautt spjald: Mist Edvardsdóttir
(Val) 30.
Staðan:
Stjarnan 9 8 0 1 34:7 24
Breiðablik 9 6 1 2 27:8 19
Þór/KA 10 5 3 2 14:10 18
Fylkir 9 5 2 2 8:5 17
Selfoss 9 5 1 3 22:16 16
Valur 10 4 3 3 20:16 15
ÍBV 9 4 0 5 18:14 12
FH 9 2 2 5 7:30 8
Afturelding 9 1 0 8 6:29 3
ÍA 9 0 0 9 4:25 0
1. deild kvenna A
Fjölnir – Hamrarnir................................. 4:0
Haukar – BÍ/Bolungarvík ....................... 4:0
Staðan:
HK/Víkingur 10 8 1 1 37:5 25
Fjölnir 8 7 0 1 21:3 21
Grindavík 9 6 1 2 19:9 19
Haukar 10 5 1 4 24:16 16
Tindastóll 10 4 3 3 16:20 15
Víkingur Ó. 10 4 2 4 12:17 14
BÍ/Bolungarvík 10 2 1 7 3:26 7
Hamrarnir 9 2 0 7 6:22 6
Keflavík 10 0 1 9 5:25 1
1. deild kvenna B
Þróttur R. – Völsungur............................ 7:0
Fjarðabyggð – Fram................................ 0:0
ÍR – Sindri................................................. 0:0
Staðan:
KR 9 9 0 0 30:7 27
Höttur 9 5 4 0 27:5 19
Þróttur R. 9 6 1 2 20:6 19
Álftanes 11 6 1 4 19:12 19
Fram 9 5 1 3 19:12 16
ÍR 9 2 2 5 6:15 8
Fjarðabyggð 8 1 1 6 7:26 4
Völsungur 9 1 0 8 9:26 3
Sindri 9 1 0 8 4:32 3
England
Bristol – Liverpool .................................. 1:3
Katrín Ómarsdóttir var í byrjunarliði
Liverpool og skoraði annað mark liðsins.
Henni var skipt af velli í síðari hálfleik.
KNATTSPYRNA
Valur og Þór/KA gerðu 1:1 jafntefli í fyrsta leik 10. umferðar í Pepsi-deild
kvenna í gær en Valskonur fengu á sig jöfnunarmarkið í uppbótartíma.
Mist Edvardsdóttir í Val fékk að líta rauða spjaldið eftir einungis 30. mín-
útna leik en það var hins vegar Valskonan Elín Metta Jensen sem skoraði
fyrsta mark leiksins. Tíu talsins virtust Valskonur ætla að innbyrða stigin
þrjú en Andrea Mist Pálsdóttir, 15 ára dóttir Páls Viðar Gíslasonar, þjálf-
ara karlaliðs Þórs, var á öðru máli þegar hún jafnaði metin í uppbótartíma.
Bæði lið gengu svekkt af velli í gær. Gengi Valskvenna hefur verið langt
fyrir neðan væntingar í sumar. Þær sitja áfram í 6. sæti deildarinnar með
15 stig. Þór/KA þurfti nauðsynlega á sigri að halda í baráttunni í efri hluta
deildarinnar en er áfram í 3. sætinu eftir gærdaginn. peturhreins@mbl.is
Valskonur enn í vanda
Harka Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði Þórs/KA og Rakel Logadóttir, fyr-
irliði Vals, í baráttu um boltann. Lára Einarsdóttir fylgist með.
Morgunblaðið/Eggert
SUND
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
thorkell@mbl.is
Anton Sveinn McKee úr Sundfélag-
inu Ægi náði um helgina fjórtánda
besta tíma ársins í heiminum í 200
metra bringusundi karla og tvíbætti
Íslandsmetið í greininni á L.A. boðs-
mótinu í sundi í Bandaríkjunum.
Anton synti á tímanum 2:10,72 mín.
í A-úrslitum sem dugði honum til sig-
urs. Þar með bætti hann Íslandsmet
sitt sem hafði staðið í nokkrar
klukkustundir eða síðan í undanrás-
unum, en þá synti hann á 2:12,23 mín.
Þá bætti hann einnig Íslandsmet
sitt í 400 metra skriðsundi á mótinu
um 31 hundraðshluta úr sekúndu
þegar hann synti á 3:54,67 mín. og
hafnaði í fjórða sæti í þeirri grein á
mótinu.
„Maður er búinn að æfa vel í allt
sumar og það er gaman að það sé að
skila sér,“ sagði Anton Sveinn þegar
Morgunblaðið heyrði í honum í gær.
Anton ákvað að fara ekki á
Evrópumótið í sundi í sumar þrátt
fyrir að hafa þátttökurétt á því, og
einbeita sér frekar að því að æfa vel í
Bandaríkjunum og keppa á mótum
þar. „Ég er samt kominn með lág-
mark fyrir HM næsta sumar í 200 m
bringusundinu eftir þetta mót. Ég
veit reyndar ekki hvort mótið er við-
urkennt af Alþjóða sundsambandinu
þannig lágmarkið sé gilt fyrir HM
eða hvort ég þarf að koma heim til Ís-
lands og ná því þar. En ég veit alla-
vega á hvaða tíma ég get synt þessa
grein núna,“ sagði Anton.
Allt spurning um áherslur
Anton var áður meira í þolsunds-
greinum og á Íslandsmet í 800 m og
1.500 m skriðsundum en einbeitir sér
nú meira að styttri greinum. „Ég held
að ég sé nú hættur að synda 1.500
metrana en úthaldið er samt í fínu
lagi. Þetta er bara spurning um
áherslur. Maður heldur kannski í 400
metrana í eitt til tvö ár í viðbót, en svo
einbeitir maður sér bara að bringu-
sundinu fyrst árangurinn er orðinn
svona,“ sagði Anton Sveinn sem telur
árangur sinn um helgina staðfestingu
á því að hann eigi fullt erindi í undan-
úrslit hið minnsta á stærstu sundmót-
unum.
Morgunblaðið/Golli
Í miklum ham Anton Sveinn McKee virðist vera í góðu formi og tvíbætti Ís-
landsmetið í 200 m bringusundi og bætti metið í 400 m skriðsundi.
Anton
á uppleið
Tvíbætti Íslandsmetið í 200 m
bringusundi 14. besti tími heims í ár
Dregið var í gærkvöld í riðla fyrir heims-
meistaramót karla í handknattleik sem verður
haldið í Katar í janúar á næsta ári. Tveir ís-
lenskir þjálfarar verða á mótinu, þeir Guð-
mundur Guðmundsson sem stýrir Danmörku
og Patrekur Jóhannesson þjálfari Austur-
ríkis.
Danir verða í riðli með Þýskalandi sem fékk
óvænt keppnisrétt á HM þrátt fyrir að hafa
mistekist að vinna sér hann í gegnum for-
keppnina í Evrópu og þykir ákvörðun Alþjóða
handboltasambandsins að hleypa Þýskalandi
á HM afar umdeild. Önnur lið með Þýskalandi
og Danmörku í D-riðli mótsins verða Rúss-
land, Argentína, Barein og svo Pólverjar sem
slógu einmitt Þýskaland út í forkeppni HM.
Patrekur og Austurríkismenn leika í B-riðli
HM í Katar með Króatíu, Makedóníu, Túnis,
Íran og svo Bosníu Hersegóvínu sem sló ein-
mitt Ísland út í forkeppninni. thorkell@mbl.is
Guðmundur mætir Þjóðverjunum á HM í Katar
Danmörk Guðmundur Guð-
mundsson stýrir Dönum.
Austurríki Patrekur Jó-
hannesson stýrir Austurríki
HM 2015 í handbolta
» A-riðill
Spánn
Slóvenía
Katar
Hvíta-Rússland
Brasilía
Síle
» B-riðill
Króatía
Bosnía Her-
egóvína
Makedónía
Austurríki
Túnis
Íran
» C-riðill
Frakkland
Svíþjóð
Alsír
Tékkland
Egyptaland
Sam. arabísku
furstadæmin
» D-riðill
Danmörk
Pólland
Rússland
Argentína
Barein
Þýskaland