Morgunblaðið - 05.06.2014, Side 8

Morgunblaðið - 05.06.2014, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Andríki er, eins og fleiri, undr-andi á óvæntum yfirlýsingum:    Ekki fór fram hjá áhuga- mönnum um stjórnmál að kosninga- sjónvarp Rík- isútvarpsins var ekki upp á marga fiska, þótt það hafi að vísu verið betra en á Stöð 2, þar sem ekkert kosningasjónvarp var.    Þegar kemur að umræðum umstöðu mála og breytingar milli ára virðist fréttastofa Ríkisútvarps- ins til dæmis merkilega óburðug og ekki geta af eigin rammleik haldið uppi skarplegri greiningu á hlut- um. Þá var auðvitað furðulegt, svo ekki sé meira sagt, að bjóða upp á löng og yfirborðsleg viðtöl við grín- ista, sem báru auðvitað með sér að vera sóttir úr sömu áttinni, strax eftir fyrstu tölur.    Vefur Ríkisútvarpsins mun hafalegið niðri mestalla kosninga- nóttina, ef marka má samfelld orð fréttamanna sjálfra um það í kosn- ingasjónvarpinu. Nýr útvarpsstjóri er auðvitað ekki ánægður með það og boðar nú stóraukna áherslu á vefinn og „nýmiðla“. En hér er rétt að staldra alvar- lega við. Hvers vegna á ríkið að leggja „stóraukna áherslu á nýmiðla“? Er ekki nægilegt að ríkið haldi úti út- varpssendingum og sjónvarpssend- ingum?    Hvers vegna á að bæta við rík-isfjölmiðlun í „nýmiðlum“? Hvað hefðu menn sagt ef ríkið hefði hafið útgáfu dagblaðs? Ætla núverandi stjórnvöld að láta það viðgangast að ríkið hefji stórfellda fjölmiðlun í „nýmiðl- um“?“ Von að spurt sé STAKSTEINAR Veður víða um heim 4.6., kl. 18.00 Reykjavík 10 skýjað Bolungarvík 12 léttskýjað Akureyri 14 skýjað Nuuk 3 léttskýjað Þórshöfn 11 léttskýjað Ósló 13 skýjað Kaupmannahöfn 15 skýjað Stokkhólmur 16 skýjað Helsinki 23 heiðskírt Lúxemborg 13 skýjað Brussel 13 skýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 13 skúrir London 15 skýjað París 12 skúrir Amsterdam 16 léttskýjað Hamborg 22 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 22 léttskýjað Moskva 27 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 27 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 25 heiðskírt Róm 25 heiðskírt Aþena 21 skýjað Winnipeg 22 léttskýjað Montreal 18 skýjað New York 25 heiðskírt Chicago 16 alskýjað Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 5. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:13 23:41 ÍSAFJÖRÐUR 2:21 24:42 SIGLUFJÖRÐUR 2:01 24:29 DJÚPIVOGUR 2:31 23:21 Fjármála- og efnahagsráðuneytið krefst þess fyrir Héraðsdómi Suð- urlands að Landeigendafélagi Geysis ehf. verði bannað að rukka ferðamenn sem fara inn á Geysis- svæðið. Jafnframt er þess krafist að lögbann sem sýslumaður setti á gjaldtöku félagsins í mars og apríl verði staðfest. Fyrirtaka var í málinu í gær. Var því frestað til loka þessa mánaðar, en búist er við að aðalmeðferð verði í lok ágúst. Ríkið á goshverina á Geysissvæð- inu og er ásamt félagsmönnum Landeigendafélagsins, sem stofnað var haustið 2012, eigandi að landinu umhverfis þá. Meðeigendur ríkisins hófu gjaldtöku inn á svæðið í mars síðastliðnum í óþökk ríkisins sem í apríl fékk sett lögbann á aðgerð- irnar. Landeigendafélagið hefur ekki viljað greina frá því hve margir ferðamenn greiddu aðgangseyri í þær þrjár vikur sem gjaldtakan stóð yfir. Hver ferðamaður var krafinn um 600 krónur fyrir að fara um svæðið. Rökin fyrir gjaldtökunni voru þau að Geysissvæðið þyldi ekki þann gríðarlega fjölda gesta sem sækja það ár hvert. Sögðu talsmenn Land- eigendafélagsins að svæðið lægi undir skemmdum. Samtök ferðaþjónustunnar voru meðal þeirra sem lýstu sig and- snúna gjaldtökunni. Talsmenn þeirra sögðu fyrirvarann allt of stuttan og vildu að Landeigenda- félag Geysis tæki þátt í undirbún- ingi að náttúrupassanum sem hefur verið í bígerð í iðnaðarráðuneytinu. Tilkynnt var í síðustu viku að hverasvæðið við Geysi fengi úthlut- aðar fimmtán milljónir króna úr Framkvæmdasjóði ferðamanna- staða til uppbyggingar og verndar- aðgerða á ferðamannastöðum í sum- ar. Féð er ætlað til framkvæmda á stígum og öryggisgrindverkum. Landeigendur í Reykjahlíð í Mý- vatnssveit ætluðu að rukka ferða- menn um 800 krónur fyrir að skoða Dettifoss, Leirhnjúk og hverina austan Námaskarðs, og átti gjald- takan að hefjast 1. júní en ekkert varð af því. Morgunblaðið/Golli Gjaldtaka Deilur urðu þegar Landeigendafélag Geysis rukkaði aðgangseyri. Bannað verði að rukka við Geysi  Ríkið stefnir Landeigendafélaginu Áttu fullt af græjum sem liggja ótengdar? Leyfðu okkur að aðstoða! S: 444 9911 – hjalp@taeknisveitin.is – www.taeknisveitin.is Tengjum heimabíóið Setjum upp þráðlaust net Standsetjum nýju tölvuna Tengjum saman ólíkar græjur Sjónvarpsmerki í öll sjónvörpin Lagnavinna á heimilinu ...og margt, margt fleira! Hvað gerum við? TÆKNISVEITIN til þjónustu reiðubúin! Við komum til þín, veitum ráðgjöf, setjum tækin upp, gerum við, leggjum lagnir, tengjum tækin saman við önnur og fáum allt til að virka. Svo færðu kennslu líka ef þörf er á því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.