Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Forðist deilur við yfirboðara í dag. Mundu að þolinmæðin þrautir vinnur allar. Treystu innsæi þínu. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt ábyrgð þín sé mikil og krefjist langra vinnudaga máttu ekki gleyma sjálf- um þér í öllum önnunum. Notaðu góðar að- stæður til þess að taka þér frí. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að leggja þig alla/n fram í samskiptum þínum við samstarfsfólk þitt í dag. Þér hættir til að hafa áhyggjur langt fram í tímann. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú gerir mikið fyrir aðra. Hafðu það að leiðarljósi að þakka fyrir það sem þú átt og hefur. Kærleikur þinn til allra vekur at- hygli. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þótt þú viljir mála á striga lífsins breiðar ögrandi línur er stundum betra að fara fínna í hlutina. Mundu að það kemur dagur eftir þennan. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú áttir kannski frekar von á dauða þínum en óvæntum glaðningi svo þú átt eftir að verða hissa. Vertu góð/ur við sjálfa/n þig og elskaðu þig þrátt fyrir galla þína. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú skiptir öllu að huga að heilsufarinu og gæta hófs í mat og drykk. Láttu flokka- deilur eiga sig, en vertu fljót/ur þegar til þín verður leitað um miðlun mála. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Reyndu að temja þér ráð- kænsku og háttvísi í samtölum við maka og nána vini í dag. Byrjaðu smátt og þá vex þér styrkur til að takast á við stærri mál. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert að leita að besta fé- laganum, bæði í viðskiptum og afþreyingu. Stundum verður draumur að veruleika, stundum ekki. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú vilt gefa öðrum ráð eða deila reynslu þinni með þér yngra fólki. Gleymdu þó ekki í allri gleðinni þeim sem standa þér næst og þurfa stuðning. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur góðan byr í seglin en þarft að gæta þess að fara ekki fram úr sjálfum/sjálfri þér. Hlustaðu og taktu eftir svip fólks þegar þú segir því nýjustu fréttir, það segir þér ýmislegt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft á aðstoð að halda til þess að hrinda áhugamáli þínu í framkvæmd. Reyndu að velja úr en ekki bara láta berast með straumnum. Eftir að það lá fyrir á sunnu-dagsmorgun að meirihlutinn var fallinn í Reykjavík en Dagur B. Eggertsson hafði boðað til „leyni- funda“ um myndun nýs meirihluta með Bjartri framtíð, Vinstri- grænum og Pírötum sendi Haf- steinn Reykjalín mér þessar vísur með þeim ummælum að margt væri sér til gamans gert. En bætti síðan við: „Allt uppi á borðum var eitt- hvað sem var slagorð hinna ýmsu manna fyrir kosningar, svo falla þeir á fyrsta prófi, – dapurlegt. Á leynifundum Dagsmenn dvelja dularfullir brugga ráð. Aðalmálin allir selja aumum sýna bara háð. Féllu þeir á fyrsta prófi, fundust bak við luktar dyr. Leyndin er svo langt úr hófi laumuspilið enn sem fyr. „Á bak við luktar dyr“ er ekki nýtt hugtak í pólitík. Það var talað um að fundað hefði verið „á bak við luktar dyr“ í Þjóðviljanum, þegar Steingrímur Hermannsson mynd- aði ríkisstjórn sína haustið 1988 með þeim Ólafi Ragnari Grímssyni og Jóni B. Hannibalssyni. En orða- sambandið „á bak við luktar dyr“ getur líka haft annan og geðfelld- ari blæ. Í Menntaskólanum á Ak- ureyri árið 1965 orti Gunnar Stef- ánsson fallega sonnettu um vorið og ástina og byrjar svo: Ég bíð þín einn á bak við luktar dyr; brátt kliðar frjósamt regn við gættir all- ar og til mín vorið vinarrómi kallar og vekur hugans söngva líkt og fyr. Og úr annarri átt. Gísli Jónsson menntaskólakennari orti: Ég held að limrurnar siðprúða svekki (sumar eru þó lausar við hrekki) en býsna fásénar eru barasta penar – enda betra að þær séu það ekki. Og enn orti Gísli: Mælti Hannes í Hlésvíkurporti, þegar hagmælska verður að sporti margra ágætra manna, þá er erfitt að sanna hverja limruna hver maður orti. Halldór Blöndal. halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á bak við luktar dyr og tvær limrur Í klípu „ÞVÍ MIÐUR, LENGRA KEMSTU EKKI Á FERÐAPUNKTUNUM ÞÍNUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „GAT HANN EKKI HALDIÐ Í SÉR?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera alltaf jafn ungleg hvort í annars augum. STUNDUM DREYMIR MIG UM AÐ RIDDARI Á HVÍTUM HESTI KOMI OG BJÓÐI MÉR AÐ KOMA OG BÚA HAMINGJUSÖM Í RISASTÓRUM KASTALA MEÐ HONUM TIL ÆVILOKA! VERTU BARA VISS UM AÐ ÞAÐ SÉ EKKI VERÐTRYGGT LÁN Á KASTALANUM, OG AÐ HANN SÉ Í SKILUM MEÐ FASTEIGNAGJÖLDIN. VOFF! OFHÁTT. VOFF. OF LÁGT. ERTU ALDREI ÁNÆGÐUR? OF MIKIÐ NÖLDUR.Megi Mátturinn vera með okkur,“sagði oddviti Bjartrar fram- tíðar við Morgunblaðið um meiri- hlutaviðræðurnar. Víkverji verður að játa að hann renndi ekki grun í það að oddvitinn aðhylltist trú á hinn æðri Mátt sem sagt er frá í Stjörnu- stríðsmyndunum. Kannski sem betur fer, því að annars hefði Víkverji hugsanlega freistast til þess að kjósa hann, enda mikill áhugamaður sjálf- ur um Stjörnustríð. x x x Áhugi Víkverja á Stjörnustríðs-myndunum dvínaði þó nokkuð þegar George Lucas, höfundur þeirra, ákvað að búa til nýjar myndir í upphafi aldarinnar. Þar voru kynnt- ar til sögunnar alls kyns kynjaverur, sem áttu það helst sameiginlegt að vera nokkuð leiðinlegar, og mynd- irnar sjálfar voru þess eðlis að Vík- verja langaði helst til þess að ferðast aftur í tímann til þess að hindra sjálf- an sig í að fara á þær í bíó. x x x Á sama tíma ákvað Lucas að faraaftur yfir gömlu myndirnar og búa til svona „sérstaka“ útgáfu af þeim. Og vissulega voru þær sér- stakar, þar sem búið var að hnika til hinu og þessu, og þótti mörgum af gömlum aðdáendum myndanna það nálgast guðlast. Sjálfum stóð Vík- verja á sama að mestu leyti um breytingarnar, eða þar til hann keypti sér myndirnar á DVD-diski fyrir áratug eða svo. Vildi þá svo til, að Lucas hafði troðið einum af leik- urunum í nýju myndunum inn í eina af þekktustu senum síðustu mynd- arinnar. „Ófyrirgefanlegt!“ stundi Víkverji mæðulega, og hefur hann ekki horft á myndirnar síðan. x x x Nú hefur Víkverji enga sérstakaskoðun á úthlutun lóða til trú- félaga, en víða í útlöndum þekkjast dæmi þess að menn segi að þeir trúi á Máttinn, sem er alltumlykjandi í Stjörnustríðsmyndunum, og er það mikil friðsemdartrú. Víkverji veltir því fyrir sér hvort ekki væri ráð að koma hér upp eins og einu Jedi-hofi, þar sem iðkendur þessara trúar- bragða gætu hugleitt, og tengst Mættinum? víkverji@mbl.is Víkverji Orð dagsins: Hver, sem gjörir vilja Guðs, sá er bróðir minn, systir og móðir. (Mk. 3, 35.) GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Frá okkur færðu skyrturnar þínar tandurhreinar og nýstraujaðar Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380 ÞVOTTAHÚS EFNALAUG DÚKALEIGA mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.