Morgunblaðið - 10.06.2014, Síða 4
Framendinn tekur í auknum mæli mið af stóra bróður, Sorento. Enda er ekki leiðum að líkjast þar.
F
yrir tuttugu og einu ári
kom KIA Sportage á
markað. Fyrsta kynslóð
seldist vel á árunum
1993-2004 og önnur kynslóð
gerði það sömuleiðis á árunum
2004-2010. Íslendingar hafa vel
kunnað að meta þennan næst-
stærsta bíl suðurkóreska fram-
leiðandans KIA og var þriðju
kynslóð hans fagnað vel þegar
hún kom árið 2010. Bíllinn er nú
kominn með góða andlitslyft-
ingu sem kynnt var hjá Öskju
þarsíðustu helgi.
Bíllinn sem prófaður var er
með 2,0 l dísilvél, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn og í einstaklega
skemmtilegri World Cup-útgáfu
sem er hlaðin aukabúnaði og
kostar 200.000 krónum meira
en hefðbundni sjálfskipti bíllinn,
eða 6.590.777 kr. Ódýrastur
fæst Sportage á 4.890.777 kr.
og er þá beinskiptur, fram-
hjóladrifinn og með 1,7 l vél.
Útlitsbreytingin
Fyrst ber að nefna að bíllinn
er mun hljóðlátari en áður enda
búið að betrumbæta hljóðein-
angrunina til muna. Það er vel
og í WCE-útfærslunni sem var
prófuð er fantafínt hljóðkerfi frá
Infinity sem kemur vel út í þess-
um hljóðláta bíl. Á stundum var
þetta eins og að sitja í tónleika-
sal.
Framendi bílsins er töluvert
breyttur og má þar nefna LED-
dagljósin og krómið og að aftan
eru LED-ljósin áberandi vel
heppnuð.
Að innan eru það mælarnir
sem eru orðnir eins og í stóra
bróður, Sorento. Allar helstu
upplýsingar er að finna á skjá
milli hraðamælis og snúnings-
mælis og ekki þarf lengur að
stökkva á milli valmynda til þess
að sjá útihitastigið heldur er
þetta allt mjög aðgengilegt og til
fyrirmyndar.
Innréttingin er vel hönnuð og
ekkert um það að alls kyns
stefnur og straumar í hönnun
mætist í framhlutanum, heldur
fær maður á tilfinninguna að
annaðhvort hafi hönnuðir verið
sammála um verkið eða að ein-
hver einn góður hafi fengið að
njóta sín.
Ríkulegur staðalbúnaður
Askja tekur Sportage inn
býsna vel búinn og á meðal þess
sem nú er staðalbúnaður í bíln-
um er sætishitari, sem að mati
undirritaðrar er dásamlegur
aukabúnaður sem víðar mætti
vera að finna. Annað sem vert
er að nefna hvað staðalbúnað
varðar eru bakkskynjarar, hiti í
aftursætum (og auðvitað fram-
sætum) og reyklitað gler. Annað
þarf ekki að nefna því það er allt
til staðar.
Bíllinn er nokkuð umhverf-
isvænn af jeppa að vera og er
CO-gildið frá 139 til 179 g á kíló-
metra.
Gerð var nokkuð nákvæm
mæling á eyðslu á langkeyrslu
og voru lokatölurnar 6,1 l á
hverja hundrað kílómetra. Það
verður að teljast mjög gott! Í
innanbæjarakstri var hún um sjö
lítrar.
Í heild má því segja að and-
litslyfting þessa vinsæla sportj-
eppa frá KIA komi vel út og
neytendur fái vel útbúinn bíl í
grunninn, hvort heldur sem þeir
taka þann ódýrasta á 4.890.777
kr. eða þann flottasta, World
Cup Edition, á 6.590.777 kr. eða
eitthvað þar á milli.
malin@mbl.is
Malín Brand reynsluekur KIA Sportage
Morgunblaðið/Malín Brand
Eins og sést er hinn nýi KIA Sportage fallegur bíll að sjá og þegar við bætast vel útilátinn staðalbúnaður og hagkvæm eyðsla blasir við að hér er kominn áhugaverður kostur.
Mikið breyttur í útliti og tækjakosti
Að aftan er bíllinn nokkuð áþekkur eldri kynslóðinni en áberandi LED-ljósin eru virkilega vel heppnuð.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2014
4 BÍLAR