Morgunblaðið - 10.06.2014, Side 8

Morgunblaðið - 10.06.2014, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2014 8 BÍLAR Bílaverkstæði Jóa býður upp á alla almenna þjónustu fyrir flestar gerðir bifreiða. með allt fyrir bílinn Dalvegi 16a - 201 Kópavogi | Sími: 564 5520 | bilajoa@bilajoa.is | www.bilajoa.is Opið mánudaga til fimmtudaga 8-17 föstudögum 8-15 Þarf bíllinn þinn á þjónustu að halda?564 5520 bilajoa.is S portbílafyrirtæki McLaren, McLaren Au- tomotive, er í mikilli sókn og það hefur náð þeim árangri að skila bæði rekstr- arhagnaði og hagnaði fyrir skatta árið 2013. Þetta þykir góð frammistaða á aðeins þriðja starfsári fyrirtækisins, en fyrsti sportbíllinn rann úr smiðju þess árið 2011. Hagnaður fyrir skatta í fyrra nam 4,5 milljónum sterlingspunda, um 855 milljónum króna, veltan nam 285,4 milljónum punda og hagnaður af rekstri, fyrir fjármagnsliði, 12,4 milljónum punda. „Frá byrjun hefur afkoma McLaren Automotive verið umfram áætlanir og betri en keppinautanna. Við höfum sett ný viðmið á sportbílamarkaði með úrvali módela sem rofið hafa múra vegna tækninýj- unga,“ segir Ron Dennis, framkvæmdastjóri fyr- irtækisins og formaður stjórnar McLaren Group og McLaren Automotive. „Að skila hagnaði svo árla á lífdögum fyrirtæk- isins er mikil viðurkenning fyrir hið frábæra starfs- lið McLaren Automotive og endurspeglar þeirra mikla framlag til starfseminnar,“ segir Dennis. agas@mbl.is Ofurbílar á fljúgandi ferð McLaren P1 bíllinn er griðungur mikill. Ljósmynd/McLaren Afkoma McLaren Automotive hefur verið með miklum ágætum, ef ekki ólíkindum. McLaren í gróða á aðeins þriðja starfsári N ýskráningar bifreiða í Bretlandi hafa aukist mánuð frá mánuði í rúm tvö ár. Nýliðinn maímánuður var sá 27. í röð sem nýskráningar aukast frá sama mánuði árið áður. Þetta hafði ekki gerst frá því á tímabilinu frá maí 1987 til júní 1989 en þá jukust sambærilegar nýskráningar 26 mánuði í röð. Alls voru nýskráðir 194.032 bílar í Bretlandi í maí sem er 7,7% aukning miðað við maí í fyrra. Mike Hawes, formaður samtaka fyrirtækja í bílgreinum (SMMT), segir þróunina end- urspegla trú neytenda á fram- tíðina og þeir hafi laðast að nýj- um bílum sem búnir eru nýstárlegum tæknibúnaði og eru sparneytnari. Ford Fiesta seldist mest allra módela í Bretlandi í maí og sömuleiðis fyrstu fimm mánuði ársins. Bíll þessi hefur lengi ver- ið í toppsæti sölulistanna þar í landi. Volkswagen Golf var næstsöluhæsti bíllinn í maí, rétt á undan Vauxhall Corsa. Í öðru sæti fyrir allt árið er hins vegar Ford Focus með 37.355 bíla miðað við 58.940 Fiesta. Corsa er í þriðja sæti (34.324), Golf fjórða (31.596), Vauxhall Astra í því fimmta (26.062) og Nissan Qashqai í því sjötta (20.834). Á tíu ára tímabili frá 2004 til 2013 jókst hlutdeild bíla með felgum úr málmblöndu sem staðalbúnað úr 65% í 87,1%. Þá var loftræstikerfi staðalbúnaður í 95,4 nýskráðra bíla 2013 en 75,3% bíla árið 2004. agas@mbl.is Fiestan flýgur út í Bretlandi Aukning 27 mánuði í röð Ford Fiesta selst feiknavel í Bretlandi og hefur gert um langan aldur. Það hefur vakið athygli, þegar skoðaðar eru tölur yfir bílasölu í Noregi það sem af er ári, að þriðja söluhæsta módelið eru bílar af gerðinni BMW. Aðeins bílar frá Volkswagen og Toyota hafa selst betur. Það sem kemur BMW til góða er að Norð- menn eru duglegastir allra þjóða að kaupa rafbíla. Þar stendur þýski bílsmiðurinn vel að vígi með i3-bílinn. En BMW-merkið var farið að sækja á og auka hlutdeild sína í bílamarkaðinum í Noregi áður en rafbílabylgjan skall á. Hefur hinn nýi X5-jepplingur rokið út og selst hann nú fimmfalt á við fyrri kynslóðina. Svipaða sögu er að segja um 5-seríuna og X1-bílinn. Þá fjölgar bílum af 2-seríunni og 4-seríunni jafnt og þétt á sölu- listum. Er því svo komið að farið er að tala um að BMW sé ekki lengur lúxusbíll vel efnaðra Norð- manna heldur alþýðubíll þar í landi. Það bar til tíðinda í aprílmánuði að Tesla Model S féll niður í fjórða sæti í rafbílasölu; mátti sjá Nissan Leaf, BMW i3 og VW e- up! skjótast fram úr. Hlutur raf- bíla í aprílsölunni var 10,4% og það sem af er ári er hún 13,5%. agas@mbl.is X5 rýkur út sem heitar lummur BMW orðinn al- þýðubíll í Noregi Morgunblaðið/Golli BMW X5 selst með allra besta móti meðal Norðmanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.