Morgunblaðið - 10.06.2014, Page 6
McLaren kynnir nýjasta ofursportbíl sinn
Í 200 km/klst. á
átta sekúndum
Bílaframleiðandinn McLaren frumsýndi í gær nýjasta tromp sitt í sam-
keppninni við Ferrari, Lamborghini og Porsche um forskot á mark-
aðnum fyrir ofursportbíla. Téður bíll, McLaren 650s, er sannarlega eft-
irtektarvert ökutæki sem ugglaust mun kitla þá sem leggja upp úr
óbeisluðum hraðakstri. Verðið er þó í allra skaplegasta lagi fyrir of-
ursportara af þessu tagi, en bíllinn kostar í Bandaríkjunum „aðeins“
265.000 dali, eða sem nemur um 30 milljónum íslenskra króna.
641 hestur undir húddinu
Sem fyrr sagði var bíllinn heimsfrumsýndur í gær, mánudag, og fór
athöfnin fram í Kúala Lúmpúr.
Meðal þess sem vakti athygli viðstaddra hvað helst var sú stað-
reynd að bíllinn býr yfir 641 hestafli, sem knýr hann upp í 100 km/klst.
hraða á innan við 3 sekúndum. Vélin er 3,8-lítra twin-túrbo V-8 og skil-
ar hún togi upp á svimandi 678 Nm.
Í framhaldi af áðurnefndri hröðun frá 0-100 km/klst. nær bíllinn
200 km/klst. á 8,4 sekúndum. Hámarkshraðinn er síðan gefinn upp
sem 333 km/klst.
jonagnar@mbl.is
AFP
650s er ekki bara athygliverður á ferðinni heldur fanga vængjahurðirnar
augun hikstalaust þegar þeim er svipt upp með tilþrifum í kyrrstöðu.
McLaren 650s hefur talsvert voldugan framenda og verður ekki annað
sagt en að útlitið gefi fyrirheit um þann ógnarhraða sem bíllinn nær.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚNÍ 2014
6 BÍLAR
Guðfinnur
bíl fyrir þig!
Bjóðum 100% lán
í allt að 84 mánuði
B
ultaco, sem er með höf-
uðstöðvar sínar í Barce-
lona, er fornfrægt
merki sem hefur að
mestu legið í láginni síðan 1983.
Ljóst er af nýjustu hjólum fyr-
irtækisins að þar á bæ ætla
menn að koma inn á markaðinn
aftur með látum og stæl. Til þess
hefur Bultaco nú kynnt til sög-
unnar tvö spennandi rafknúin
mótorhjól, Rapitán og Rapitán
Sport, sem koma í sölu snemma
á næsta ári.
Rafknúin raketta
Þar sem hjólin eru knúin af
liþíumrafhlöðu er bensíntankur
óþarfur og það rými hefur hag-
anlega verið endurhugsað sem
geymsluhólf fyrir hjálminn.
Hjólið dregur um 145 kílómetra
á hleðslunni og tekur um fjórar
klukkustundir að fullhlaða.
Aflið er vel viðunandi – alltént
fyrir skynsama ökumenn – og ná
hjólin um 150 km/klst. hámarks-
hraða en rafmótorinn skilar 54
hestöflum og 125 Nm af togi. Er
þá ótalið að hjólin líta alveg
dægilega vel út, eins og sjá má á
meðfylgjandi myndum.
jonagnar@mbl.is
Bultaco Rapitán er mótorhjól sem tekið verður eftir
Rafmagnaður
vélfákur
Hér sést hvernig rýmið sem alla jafna gegnir hlutverki bensíntanks hýsir
nú hjálminn á milli þess sem hjólinu er ekið milli staða. Snilldarlausn.
Tankurinn sem inniheldur ekki dropa af bensíni heldur þjónar sem
hjálmageymsluhólf. Stórsnjöll hönnun sem eflaust er komin til að vera.
Ekki verður annað sagt en að prófíll Bultao Rapitán sé álitlegur. Hjólið er allt hið glæsilegasta og spennandi við-
bót í flóru mótorhjóla ekki síst þegar horft er til þess að það er rafknúið og er því hagkvæmt í ofanálag.
Það er ákveðinn sjarmi í því fólginn að sjá svolítið af stáli í stellinu og
alger óþarfi að dekka svona augnayndi með hlífum.
Þegar talað er um raf-
mótorhjól er hætt við
því að flestir fái upp í
hugann mynd af suð-
andi rafmagnsvespu
eða álíka saumavél.
Rafhjólin frá Bultaco
ættu að fá viðkomandi
til að skipta um skoð-
un.