Morgunblaðið - 20.06.2014, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.2014, Blaðsíða 1
ÍÞRÓTTIR Einstefna Fáheyrðir yfirburðir þegar Ísland sigraði Möltu 5:0 í undankeppni HM á Laugardalsvellinum. Malta varðist af krafti í eigin vítateig allan tímann og hélt markaskorinu niðri. Elín skoraði tvö mörk. 4 Íþróttir mbl.is ekki þeim í hag. Wayne Rooney skoraði loksins en tvö töp í fyrstu tveimur leikjunum þýðir að þeir verða að treysta á að Ítalía vinni Kostaríka í kvöld. Annars eru þeir á heimleið. Úrúgvæ er með þrjú stig í þessum frábæra riðli og eru í góðri stöðu. Suárez er hornsteinn í þessu liði en það eru fleiri góðir leikmenn í hópnum. Þeir virðast hins vegar ná því að vera frábærir þegar títtnefndi Liverpool-maðurinn er með. Það gerir hann ekki síður að einum besta leikmanni heims, hvað aðrir verða drífandi með í kjölfarið. Nú verður gaman að sjá hvernig leikur Ítalíu og Kostaríka fer í kvöld. England þarf að treysta á að Ítalir vinni báða sína leiki ef þeir ætla að halda lífi í möguleikum sínum í þess- um riðli. Ef Ítalía tapar eða gerir jafntefli fylgja Englendingar í fót- spor sjúkraþjálfara síns og fara heim úr riðlakeppninni. Ekki ökkla- brotnir þó, en niðurlægðir. Það má rétt ímynda sér móttökurnar heima. Suárez skaut England á kaf  Skoraði bæði mörkin í sigri Úrúgvæ AFP Mótherjar Luis Suárez hughreystir Steven Gerrard, fyrirliða sinn hjá Liverpool, eftir sigur Úrúgvæ í gærkvöldi. Það voru margir liðsfélagar Suárez í liði Englendinga í gær en hann sá við þeim með tveimur mörkum. D-RIÐILL Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Síðan það var staðfest að Luis Suá- rez myndi vera leikfær fyrir Úrú- gvæ gegn Englendingum þá var al- veg ljóst að hann mundi vera í stóru hlutverki. Ég hafði allt eins getað skrifað fyrirsögnina þá strax. Raun- in var sú að hann var að sjálfsögðu í aðalhlutverki og hetja sinna manna, skoraði tvö mörk og kafsigldi Eng- lendinga í 2:1 sigri Úrúgvæ. Ef eitt- hvað hefur verið skrifað í skýin í gegnum tíðina þá er það ekkert á við þetta. Englendingar spiluðu vel gegn Ítalíu í fyrstu umferð en töpuðu. Þeir spiluðu ekki vel í gærkvöldi gegn Úrúgvæ og töpuðu. Það er með hreinum ólíkindum hvað ekkert gengur upp hjá þeim á stórmótum, sama hvort þeir spila vel eða ekki. Það eru úrslitin sem telja og þau eru ræðum varðandi Alfreð. Real Sociedad hafnaði í sjöunda sæti spænsku 1. deildarinnar á síðasta tímabili, á eftir Atlético Madríd, Barce- lona, Real Madr- íd, Athletic Bilbao, Sevilla og Villarreal. Liðið var með jafnmörg stig og Villarreal sem náði sæti í Evrópudeild UEFA en missti af því á útkomu í innbyrðis leikjum félag- anna. Real Sociedad er frá borginni San Sebastián í Baskahéruðum Norður- Spánar, skammt frá frönsku landa- mærunum. Félagið er eitt af þeim stærri og fornfrægari á Spáni og varð meistari árin 1981 og 1982. Alfreð varð markakóngur hol- lensku úrvalsdeildarinnar í vetur með 29 mörk í 31 leik og hefur á tveimur tímabilum þar skorað 53 mörk í 62 leikjum í úrvalsdeildinni. Samkvæmt blaðinu Diario Vasco í San Sebastián sjá forráðamenn Real Sociedad fyrir sér að með Alfreð, franska landsliðsmanninn Antonie Griezmann og mexíkóska landsliðs- manninn Carlos Vela verði sóknar- lína liðsins óhemju öflug. Þeir Griez- mann og Vela skoruðu 16 mörk hvor fyrir liðið í deildinni í vetur og voru í 6.-8. sæti á markalista hennar. Að- eins Cristiano Ronaldo, Lionel Messi, Diego Costa, Alexis Sánchez og Karim Benzema skoruðu fleiri mörk en þessir tveir. Alfreð á leið til Spánar  Viðræður í gangi á milli Real Sociedad og Heerenveen  Alfreð búinn að ná samkomulagi við Spánverjana Alfreð Finnbogason FÓTBOLTI Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Miklar líkur eru á því að Alfreð Finnbogason, landsliðsmaður í knattspyrnu, gangi til liðs við spænska félagið Real Sociedad á næstu dögum. Spánverjarnir hafa gert Heer- enveen tilboð í Alfreð og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er nú aðeins beðið eftir því að félögin nái saman. Alfreð mun þegar vera búinn að komast að samkomulagi við for- ráðamenn spænska félagsins um kaup og kjör. Eins og menn muna er þó ekkert öruggt í þessum efnum því forráðamenn Heerenveen hafa til þessa verið afar stífir í öllum við- 20. júní 1959 Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik sigrar Noreg í fyrsta skipti þegar liðin mætast á Norðurlandamótinu utanhúss í Noregi. Lokatölur eru 7:5 fyrir ís- lenska liðið sem tapaði fyrir Sví- þjóð og Danmörku á mótinu og hafnaði í fjórða sæti með jafn- mörg stig en lakari markatölu en Noregur. 20. júní 1992 Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik sigrar Þjóðverja, 20:19, í vináttulandsleik í Víkinni þar sem lið- ið býr sig undir Ól- ympíuleikana í Barcelona. Konráð Olavsson skorar 6 mörk fyrir íslenska liðið, Héðinn Gils- son og Valdimar Grímsson 4 hvor. Á ÞESSUM DEGI Luis Suárez átti frábæran leik eins og búist var við þegar Úrúgvæ lagði England í D-riðli í gærkvöldi, 2:1. Suárez skoraði bæði mörk Úrú- gvæs og hlýtur nafnbótina maður dagsins hjá Morgunblaðinu. Suárez er 27 ára gamall, fæddur 24. janúar árið 1987. Hann byrjaði ferilinn hjá Nacional í Úrúgvæ en var keyptur til Hollands fyrir tví- tugt, fyrst til Groningen þaðan sem hann fór til Ajax og fór algjörlega á kostum. 81 mark í 110 leikjum segir allt, en Liverpool keypti hann fyrir góða summu árið 2011. Hann er umdeildur og hefur fengið bann fyrir að bíta andstæð- ing og gerst sekur um kynþáttaníð. En hann er sannur markaskorari og hefur skorað 69 mörk í 110 leikj- um með þeim rauðklæddu. 40 mörk í 78 landsleikjum er enn ein rósin í hnappagat hans, en það er óumdeilt að Luis Suárez er einn besti leik- maður í heimi. Luis Suárez HM 2014 MAÐUR DAGSINS Ívar Benediktsson iben@mbl.is Karen Knútsdóttir, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í handknattleik, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við franska félagið Nice. Hún kveður þar með SönderjyskE í Danmörku eftir eins árs dvöl en þar á undan spilaði hún með þýska lið- inu Blomberg/Lippe í tvö keppn- istímabil. Nice hafnaði í sjöunda sæti af tíu liðum í frönsku 1. deildinni, efstu deildinni þar í landi, á síðasta tíma- bili. Liðið þurfti að fara í umspil um áframhaldandi sæti og náði að halda sæti sínu. „Ég er rosalega spennt fyrir þessu. Liðið verður sterkara á næstu leiktíð og verður með lands- liðsmenn í öllum stöðum frá Spáni, Frakklandi, Serbíu og Brasilíu og ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Þannig að þetta verður mikil áskor- un fyrir mig," sagði Karen við Morgunblaðið. Karen segir að samningur sinn við Nice hafi átt sér stuttan aðdrag- anda. „Þetta kom upp í síðustu viku og síðan hafa hlutirnir gerst hratt,“ sagði Karen Knútsdóttir. Karen Knútsdóttir er búin að semja við Nice

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.