Morgunblaðið - 20.06.2014, Qupperneq 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2014
Spænska pressan og stuðningsmenn spænska lands-
liðsins í knattspyrnu harma endi á velgengni lands-
liðsins eftir tapið á móti Síle, sem þýðir að heims-
meistararnir halda heim á leið eftir leikinn á móti
Ástralíu í riðlakeppninni á mánudaginn.
„Hræðilegur endir á glæsilegu tímaskeiði. Kveðj-
um gullárin,“ var fyrirsögnin í Marca og þar segir
enn fremur; „Þetta eru endalokin hjá frábærri kyn-
slóð og upphaf nýs tímabils. Það er rökrétt að adá-
endur spænska landsliðsins séu vonsviknir en þeir
verða líka að bera virðingu fyrir liðinu og leik-
mönnum þess. Þeir hafa gert milljónir Spánverja
hamingjusama.“
„Þetta þurfti að koma einhvern tímann en aldrei á
svona sársaukafullan hátt. Spánn er úr leik og refs-
ingin er sú niðurlæging að þurfa að spila við Ástr-
Endalokin hjá frábær
C-RIÐILL:
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Eitt af þeim liðum sem komið hafa hve
mest á óvart í heimsmeistarakeppninni
í Brasilíu eru nágrannar gestgjafanna,
frá Kólumbíu. Eftir öruggan sigur á
leiðinlegum Grikkjum í fyrstu umferð
mættu þeir hinu sigurliði riðilsins í
gær, Fílabeinsströndinni. Gulklæddir
Kólumbíumenn höfðu betur, 2:1, og líta
liða best út í annars nokkuð jöfnum
riðli.
Gulldrengurinn í Mónakó
Leikurinn var rólegur framan af en
það er eitthvað við Didier Drogba,
framherjann magnaða hjá Fílabeins-
ströndinni. Hann hefur komið inn á
sem varamaður í báðum leikjum þeirra
og þá hafa hlutirnir farið að gerast. Því
miður fyrir hann var það hins vegar
andstæðingurinn sem græddi á því í
þetta sinn. Gulldrengurinn James Ro-
driguez og Juan Quintero komu Kól-
umbíu í 2:0 en Gervinho minnkaði
muninn áður en yfir lauk. Sama hvað
Afríkuliðið reyndi fann það ekki frek-
ari svör þrátt fyrir fína takta.
Fyrrnefndur Rodriguez er nafn sem
skal leggja á minnið. Hann er 22ja ára
gamall og alveg hreint snillingur í
þessari fallegu íþrótt. Hann hefur
skorað í báðum leikjum Kólumbíu til
þessa og er einn efnilegasti miðjumað-
ur heims. Hann var keyptur til Móna-
kó fyrir 7 milljarða króna síðasta sum-
ar eftir að hafa verið frábær hjá Porto
og hélt sannarlega dampi þrátt fyrir
eflaust mikla pressu vegna verðmið-
ans. Fylgist með þessum.
Gulklæddir skemmtikraftar
Kólumbíumenn hafa spilað einn
hraðasta boltann á þessu móti og það
er gaman að sjá til þeirra. Margir voru
fljótir að afskrifa þá eftir að ljóst var
að Falcao var úr leik en þeir þurfa ekki
að treysta á einhverja eina stjörnu.
Þeir eru ekkert að slóra heldur drífa
sig fram völlinn og ef það gengur ekki
reyna þeir bara aftur og ekkert múður.
Við erum þegar búin að sjá að enda-
lausar sendingar fram og aftur koma
liðum ekki áfram enda Spánverjarnir á
leiðinni heim. Það er líka bara svo
miklu skemmtilegra að horfa á svona
lið. Þeir munu kannski ekki vinna tit-
ilinn en eru ein af mörgum ástæðum
þess að heimsmeistaramótið hefur ver-
ið jafn skemmtilegt og raun ber vitni.
Leikgleðin skín úr hverju andliti sem
sést best þegar þeir stíga dans eftir
hvert mark. Maður einfaldlega vonast
eftir því að þeir skori.
Hvað gera gömlu mennirnir?
Fílabeinsströndin hefur sterka leik-
menn innanborðs en þeir eru að gefast
upp. Jarðýtan Yaya Toure sagði fyrir
mótið að hann mundi sennilega leggja
landsliðsskónum að móti loknu þar
sem hann væri orðinn þreyttur á því að
vinna ekkert með landsliðinu. Fyrr-
nefndur Drogba nálgast fertugsald-
urinn og Cheik Tiote heldur enn að
hann geti skorað.
Liðið hefur aldrei komist áfram upp
úr riðlakeppni heimsmeistaramóts en
stigin þrjú gegn Japan munu vega
þungt þegar yfir lýkur. Kannski verð-
ur þetta þeirra ár að komast upp, en
lengra sé ég þá ekki fara.
Leikur Japans og Grikklands
hófst klukkan 22 og var ekki lokið þeg-
ar blaðið fór í prentun. Staðan var 0:0
um miðjan síðari hálfleik en allt um
hann má sjá á mbl.is.
AFP
Sigurdans Leikmenn Kólumbíu hafa vakið athygli fyrir skemmtilega frammistöðu á heimsmeistaramótinu í Brasilíu.
Kólumbía komið
dansandi á óvart
Kólumbía lagði Fílabeinsströndina og stefnir áfram
Það verður stórt skarð hoggið í lið bikarmeistara Hauka í körfu-
knattleik fyrir næstu leiktíð því tveir af efnilegustu leikmönnum
liðsins, Lovísa Björt Henningsdóttir og Margrét Rósa Hálfdán-
ardóttir, eru báðar á leið til Bandaríkjanna þar sem þær munu
stunda nám samhliða því að spila körfubolta en báðar hafa verið
viðloðandi A-landsliðið og hafa leikið fjölmarga leiki með unglinga-
landsliðinu.
Lovísa Björt, sem verður 19 ára gömul í haust, er búin að þiggja
boð frá TRS High School í Gainesville í Flórída um að spila með
þeim næsta vetur á „senior“ ári og mun hún útskrifast þaðan
næsta vor, 2015. Þaðan er stefnan sett á háskóla í Bandaríkjunum
og er hún nú þegar búin að fá boð um skólavist í háskóla í Texas.
Margrét Rósa, sem er 20 ára gömul, er búin að skrifa undir
samning hjá Canisius College í Buffalo í New York og mun hún
leika með háskólaliði þeirra, Golden Griffins, á næsta tímabili.
gummih@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Fer Margrét Rósa Hálfdánardóttir
leikur ekki með Haukum í vetur.
Haukar missa tvær sterkar
D-riðill: Ítalía – Kostaríka í Recife
kl. 16. Sýnt á RÚV.
Bæði lið fögnuðu sigri í fyrsta leik
sínum í riðlinum. Ítalir unnu bar-
áttusigur á Englendingum, 2:1, en
Kostaríka hafði betur á móti Úrú-
gvæjum, 3:1 og það á afar sannfær-
andi hátt.
Gianluigi Buffon markvörður og
fyrirliði Ítala gæti komið inn í liðið
en hann var fjarri góðu gamni í
leiknum á móti Englendingum
vegna meiðsla.
Líklegt er að Kostaríka tefli fram
sama liði og í leiknum við Úrúgvæja
en með frammistöðunni í þeim leik
er alveg ljóst að Ítalir þurfa að vera
á varðbergi.
Kostaríka myndi gulltryggja sér
sæti í 16-liða úrslitunum með sigri í
dag. Ítalir væru hinsvegar ekki al-
veg öruggir áfram þó þeir ynnu leik-
inn.
E-riðill: Sviss – Frakkland í
Salvador kl. 19. Sýnt á RÚV.
Þarna eigast við sigurliðin úr
fyrstu umferð E-riðilsins. Frakkar
unnu þægilegan sigur á Hondúras,
3:0, en Svisslendingar unnu torsótt-
an sigur á Ekvadorum, 2:1.
Liðið sem betur hefur úr þessari
viðureign er komið í góða stöðu með
að komast áfram svo það er til mikils
að vinna. Frakkarnir verða ekki
dæmdir eftir frammistöðuna á móti
Hondúras en víst er að þeir koma til
að fá öflugri mótspyrnu í kvöld.
Ottmar Hitzfeld þjálfari Sviss-
lendinga sagði eftir sigur sinna
manna á Ekvador að lið sitt geti spil-
að miklu betur og þeir þurfa að gera
það ef þeir ætla sér sigur.
E-riðill: Hondúras – Ekvador kl.
22 í Curitiba. Sýnt á Stöð 2 Sport 2.
Það verður mikið undir í þessum
leik en tapliðið getur farið að pakka
niður. Ekvadorar verða að teljast
sigurstranglegri, en þeir voru
óheppnir að tapa leiknum á móti
Svisslendingum sem skoruðu sig-
urmarkið með síðustu spyrnu leiks-
ins.
Wilson Palacios einn af reyndari
og þekktari leikmönnum Hondúras
tekur út leikbann í kvöld en brott-
vísun hans um miðjan fyrri hálfleik
gegn Frökkum gerði það að verkum
að Hondúrar áttu aldrei möguleika á
að fá nokkuð út úr þeim leik í kvöld.
Í kvöld er að duga eða drepast fyrir
þá líkt og Ekvadora.
H
M
20
14LEIKIR
DAGSINS
Undankeppni HM kvenna
3. riðill:
Ísland – Malta........................................... 5:0
Elín Metta Jensen 20., 86., Hólmfríður
Magnúsdóttir 12., Dóra María Lárusdóttir
40., Dagný Brynjarsdóttir 64.
Ísrael – Danmörk..................................... 0:5
Karoline Smidt Nielsen 35., 86., Pernille
Harder 48., Sanne Troelsgaard 56., Sofie
Pedersen 90.
Serbía – Sviss ........................................... 0:7
Lara Dickenmann 21., 51., Ramona Bach-
mann 5., Martina Moser 48., Ana Crno-
gorcevic 60., Fabienne Humm 76., Sandra
Betschart 81.
Staðan:
Sviss 9 8 1 0 48:1 25
Ísland 7 4 1 2 17:7 12
Danmörk 7 3 3 1 16:5 12
Ísrael 7 3 0 4 8:21 9
Serbía 8 2 1 5 12:25 7
Malta 7 0 0 7 0:42 0
Sviss hefur tryggt sér sæti á HM 2015.
Borgunarbikar karla
16-liða úrslit:
Breiðablik – Þór ...................................... 3:1
Guðjón Pétur Lýðsson 63., Elfar Freyr
Helgason 99., Árni Vilhjálmsson 114. – Jó-
hann Helgi Hannesson 71.
KR – Fjölnir.............................................. 4:2
Grétar S. Sigurðarson 34., Gary Martin 41.,
60., Gonzalo Balbi 74. – Þórir Guðjónsson
39., Gunnar Már Guðmundsson 56.
Keflavík – Hamar .................................... 6:1
Magnús S. Þorsteinsson 22., 52., 85., Andri
Fannar Freysson 13., Einar Orri Einars-
son 70., Theodór Guðni Halldórsson 90. –
Samúel Arnar Kjartansson 76.
4. deild karla A
Kóngarnir – Álftanes ............................... 0:7
Lumman – Snæfell ................................... 2:5
Staðan:
Kári 10, Álftanes 10, Hörður Í. 7. Snæfell 7,
Hvíti riddarinn 3, Lumman 3, Kóngarnir 0.
4. deild karla B
Stokkseyri – Vængir Júpíters................. 1:7
KB – Ísbjörninn........................................ 3:1
Mídas – Augnablik ................................... 1:3
Staðan:
KFS 12, Vængir Júpíters 12, Augnablik 10,
KB 9, Stokkseyri 4, Ísbjörninn 3, Mídas 3,
Stál-úlfur 0.
4. deild karla C
Léttir – Skallagrímur............................... 2:4
Afríka – Elliði ........................................... 1:5
Staðan:
KFG 12, Léttir 9, Elliði 6, Skallagrímur 6,
Kormákur/Hvöt 6, Örninn 3, Afríka 0.
4. deild karla D
Vatnaliljur – Skínandi.............................. 4:3
Árborg – Þróttur V .................................. 0:1
Staðan:
Þróttur V. 10, Vatnaliljur 8, KH 7, Kría 6,
Skínandi 6, Árborg 5, Máni 0.
KNATTSPYRNA
A-RIÐILL:
Kamerún – Króatía ................................. 0:4
Ivica Olic 11., Ivan Perisic 48., Mario
Mandzukic 61., 73. Rautt spjald: Alex Song
(Kamerún) 40.
Staðan:
Brasilía 2 1 1 0 3:1 4
Mexíkó 2 1 1 0 1:0 4
Króatía 2 1 0 1 5:3 3
Kamerún 2 0 0 2 0:5 0
Leikir sem eftir eru:
23.6 Kamerún – Brasilía ........................... 20
23.6 Króatía – Mexíkó ............................... 20
C-RIÐILL:
Kólumbía – Fílabeinsströndin ............... 2:1
James Rodríguez 64., Juan Quintero 70. –
Gervinho 73.
Kólumbía er komin með 6 stig og Fíla-
beinsströndin 3.
Japan – Grikkland
Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun, staðan var þá 0:0. Bæði lið voru án
stiga fyrir leikinn. Sjá mbl.is.
D-RIÐILL:
Úrúgvæ – England .................................. 2:1
Luis Suárez 39., 85. – Wayne Rooney 75.
Staðan:
Kostaríka 1 1 0 0 3:1 3
Ítalía 1 1 0 0 2:1 3
Úrúgvæ 2 1 0 1 3:4 3
England 2 0 0 2 2:4 0
Leikir sem eftir eru:
20.6. Ítalía – Kostaríka.............................. 16
24.6. Ítalía – Úrúgvæ................................. 16
24.6. Kostaríka – England ........................ 16
HM 2014
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna:
KR-völlur: KR – Fram.............................. 20
Torfnesv.: BÍ/Bolung. – Hamrarnir ... 20.30
2. deild karla:
Dalvíkurv.: Dalvík/Reynir – KF .............. 20
N1 Sandgerði: Reynir S. – Afturelding... 20
Í KVÖLD!
Morgunblaðið/Golli
Skoraði Árni Vilhjálmsson gerði
þriðja mark Breiðabliks.