Morgunblaðið - 20.06.2014, Page 3

Morgunblaðið - 20.06.2014, Page 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2014 Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði þrennu fyrir Keflvíkinga í gærkvöld þegar þeir sigruðu 3. deildarlið Ham- ars frekar auðveldlega, 6:1, í sextán liða úrslitum bikarkeppninnar á heimavelli sínum í Keflavík. Magnús hefur þar með skorað fimm mörk í tveimur leikjum Kefla- víkurliðsins í bikarkeppninni í ár en þessi reyndi sóknarmaður hefur þó aðeins verið í byrjunarliðinu í þrem- ur leikjum af átta í Pepsi-deildinni það sem af er tímabilinu. Keflvíkingar mættu þarna botnliði 3. deildar, sem ekki hefur fengið stig á tímabilinu en Hamarsmenn stóðu samt ágæt- lega í þeim. Sam- úel Arnar Kjart- ansson gerði mark þeirra og minnk- aði þá muninn í 4:1. Þeir Andri Fannar Freysson, Einar Orri Ein- arsson og Theodór Guðni Halldórsson skoruðu hin þrjú mörk Keflavíkurliðsins. vs@mbl.is Magnús með fimm bikarmörk Magnús S. Þorsteinsson Portúgalskivarnarmað- urinn Pepe var í gær úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd FIFA eftir rauða spjaldið í 4:0 tapi Portúgala gegn Þjóðverjum í fyrstu umferð G-riðils heimsmeist- aramótsins. Pepe skallaði Þjóðverj- ann Thomas Müller í höfuðið og var umsvifalaust rekinn af velli. Hann missir af leik Portúgala gegn Aroni Jóhannssyni og félögum í liði Bandaríkjanna á sunnudagskvöldið.    Talandi um Aron Jóhannsson, enhann er talinn líklegur til þess að byrja leikinn gegn Portúgölum á sunnudagskvöldið. Hann kom sem kunnugt er inn á sem varamaður fyrir Jozy Altidore sem tognaði í læri gegn Gana á mánudagskvöldið, en Altidore verður ekki orðinn klár í slaginn gegn Portúgal. Aron er því talinn fá tækifæri í byrjunarliðinu en hinn framherjinn sem gæti komið inn í liðið er Chris Wondolowski.    Enski bak-vörðurinn Ashley Cole, sem sagði skilið við Chelsea eftir ný- afstaðið tímabil, er með tilboð í höndunum frá Barcelona á Spáni og AC Mil- an á Ítalíu ef marka má enska fjöl- miðla. Þessi 33 ára gamli leikmaður kom til Chelsea frá Arsenal fyrir átta árum en var mikið á vara- mannabekk liðsins á tímabilinu og framlengdi ekki samning sinn að því loknu.    Spjótkastarinn Ásdís Hjálms-dóttir mun ekki einungis keppa í spjótkasti fyrir Íslands hönd í 3. deild Evrópukeppni landsliða í frjálsíþróttum í Georgíu um helgina. Ásdís mun einnig keppa í kúluvarpi og kringlukasti fyrir íslenska lands- liðið á mótinu. Hún leggur litla sem enga stund á æfingar í þeim grein- um enda spjótið hennar aðalgrein, en hefur þó oftar en ekki verið kölluð til leiks í fleiri greinum á mótum sem þessum.    Á frjáls-íþrótta- mótinu í Georgíu um helgina verða það Ólympíu- fararnir Óðinn Björn Þor- steinsson og fyrr- nefnd Ásdís Hjálmsdóttir sem verða fyrirliðar íslenska landsliðs- ins. Keppt er í 20 greinum bæði í karla- og kvennaflokki og íslenska liðið stillir upp flestu sínu sterkasta frjálsíþróttafólki á mótinu. Íslenska liðið kom til Georgíu seint í gær- kvöldi en keppni fer fram á morgun, laugardag, og lýkur á sunnudag. Fimmtán landslið eru í 3. deild og tvö stigahæstu liðin komast upp úr henni.    Handknattleiksmaðurinn TandriMár Konráðsson skrifaði í gær undir tveggja ára samning við sænska liðið Ricoh sem er nýliði í sænsku úrvalsdeildinni. Tandri lék með danska B-deildarliðinu TM Tönder á síðasta tímabili en flytur til Stokkhólms ásamt sambýliskonu sinni og landsliðskonu í handknatt- leik, Stellu Sigurðardóttur, þar sem Ricoh hefur bækistöðvar sínar. Þjálfari liðsins er Ingemar Linnél sem meðal annars þjálfaði sænska karlalandsliðið um árabil. Tandri lék áður með liði HK hér á landi og var meðal annars Íslandsmeistari fyrir tveimur árum. Fólk sport@mbl.is alíu á mánudaginn,“ skrifar AS. „Það er sársaukafullt að enda glæsilegt tímaskeið í sögu lands- liðsins en það var hvergi betra að gera það en í Brasilíu. Eftir tvo Evrópumeistaratitla og einn heimsmeistaratitla var liðið graf- ið á Maracana með sama hávaða og risi sem fellur,“ skrifar El Mundo. „Sigursælt lið De Bosque er fallið af stalli og nú tekur við að endurnýja liðið,“ skrifar Mundo Deportivo. Dálkahöfundur í Marca segir að fall spænska liðsins marki endalokin með landslið- inu hjá leikmönnum á borð við Xavi, Fernando Tor- res, David Villa og Xabi Alonso. gummih@mbl.is rri kynslóð Vicente Del Bosque Það verður bræðraslagur á HM í Brasilíu annað kvöld þegar Þýskaland og Gana eigast við í annarri umferð G-riðils. Með Þjóðverjum leikur Jerome Boa- teng en í liði andstæðinganna verður hálfbróðir hans, Kevin-Prince Boateng. Ganamenn berjast fyrir lífi sínu í riðlinum eftir að hafa tapað fyrir Bandaríkja- mönnum í fyrstu umferðinni, 2:1. Þjóðverjar unnu hins vegar stórsigur á Portúgölum, 4:0. Hálfbræðurnir eru báðir fæddir í Berlín en árið 2009 tók Kevin-Prince þá ákvörðun að spila fyrir land föður síns. Hann hafði spilað með yngri landsliðum Þýskalands eins og Jerome. „Við höfum ekkert haft samband nýlega enda hvor um sig að einbeita sér að sjálfum sér,“ sagði Jerome, sem leikur með Bayern München, en Kevin-Prince er á mála hjá Schalke. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem þeir bræður mætast á HM, en á Suður-Afríku árið 2010 komust þeir í sögubæk- urnar með því að vera fyrstu bræð- urnir til að mæta hvor öðrum á HM. Þá höfðu Þjóðverjar betur, 1:0, með marki frá Mesut Özil. „Það lið sem vill meira mun vinna leikinn og við munum berjast fram í rauðan dauðann,“ segir Ke- vin-Prince við þýska blaðið Bild. Auk þess að spila með Schalke hef- ur hann leikið með AC Milan, Ge- noa, Portsmouth, Dortmund, Tottenham og Hertha Berlin en Jerome hefur spilað með Hertha Berlin, Hamburger SV og Manchester City auk þess að hafa verið hjá Bayern frá árinu 2011. gummih@mbl.is Bræðraslagur á HM í annað sinn Jerome Boateng Í VESTURBÆ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Hálftóm stúka, rigning, rok og slöpp spilamennska. Þetta er kannski full- dökk sýn á ástandið eins og það var á upphafsmínútunum í leik KR og Fjölnis í 16 liða úrslitum Borg- unarbikarsins í knattspyrnu en ekk- ert fjarri lagi. Lokatölur urðu 4:2, Vesturbæingum í vil, í kaflaskiptum leik. Mögulega var leikur Englands og Úrúgvæ á HM að halda fólki föstu við skjáinn því talsvert bættist við af fólki í hálfleik þegar þeim leik var lokið. Leikurinn byrjaði afar rólega þar sem fátt markvert gerðist, KR-ingar þó ívið meira með boltann og voru lík- legri til metorða. Fyrsta mark leiksins kom á 34. mínútu. Þar var að verki varnarmaðurinn sterki, Grétar Sig- finnur Sigurðarson. Mark hans var ekki það fallegasta, Þórður Ingason í marki Fjölnis misreiknaði boltann eft- ir hornspyrnu KR-inga og Grétar var réttur maður á réttum stað. Mark Grétars er hins vegar vert að nefna fyrir þær sakir að þá hafði Grétar af- rekað það að hafa skorað þrjú síðustu mörk KR-inga, lið sem hefur menn innan borðs eins og Gary Martin, Ósk- ar Örn Hauksson og Kjartan Henry Finnbogason. Ekki amalegur hópur þar á ferð en Grétar sér samt um að skora. Fjölnisliðið sýndi það í gær að það hefur stórt hjarta. Þeir voru vel skipu- lagðir sem heild og börðust vel. Enda komu þeir tvisvar sinnum til baka og jöfnuðu metin gegn Íslandsmeist- urunum í Frostaskjóli með mörkum frá Þóri Guðjónssyni og Gunnari Má Guðmundssyni. Gary Martin kom KR-ingum yfir í annað og þriðja skiptið í leiknum. Nokkrum mínútum síðar hefðu þó Fjölnismenn getað jafnað í þriðja sinn en Grétar Sigfinnur bjargaði á línu. Fjórða mark KR-inga rak síðasta naglann í kistu Fjölnismanna. Það var ekki af verri endanum. Spánverjinn Gonzalo Balbi í liði KR-inga tók þá upp á því að skjóta á markið af tæp- lega 40 metra færi, yfir Þórð í mark- inu. Morgunblaðið/Ómar Einvígi Haukur Heiðar Hauksson, bakvörður KR, og Þórir Guðjónsson, sókn- armaður Fjölnis, í baráttu um boltann á KR-vellinum í gærkvöld.  Fjölnir jafnaði tvisvar en KR vann 4:2 KR fór áfram eftir kafla- skiptan leik Í KÓPAVOGI Stefán Stefánsson ste@mbl.is Þrátt fyrir ágæta spilamennsku létu færin bíða eftir sér á Kópavogsvelli í gærkvöldi þegar Blikar og Þór frá Akureyri mættust í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar. Það dró til tíðinda eftir hlé en samt þurfti framlengingu áður en 3:1 sigur Blika varð stað- reynd. Blikar fengu frábært færi í fyrri hálfleik þegar Guðjón Pétur Lýðsson skaut af stuttu færi en Sandor Matus í marki Þórs varði glæsilega yfir mark- ið. Stíflan brast ekki fyrr en á 63. mín- útu þegar Guðjón Pétur afgreiddi í markið frábæra þversendingu Elvars Páls frá hægri kanti. Aðeins átta mín- útum síðar jafnaði Jóhann Helgi Hannesson eftir sendingu Þórðar Birgissonar eftir svipaða sókn. Það var því gripið til framlengingar og þegar 9 mínútur voru liðnar af framlengingunni skoraði varnarmað- urinn Elfar Freyr Helgason, 2:1, þeg- ar hann beið eins og gammur í víta- teignum eftir að boltinn hrykki til hans úr mikilli þvögu við mark Þórs. Skotið steinlá í hægra horninu. Árni Vilhjálmsson innsiglaði svo sigur Breiðabliks með marki þegar sex mín- útur voru eftir af framlengingunni. Annars mega leikmenn beggja liða eiga að þeir spiluðu prýðilega úti á vellinum. Blikar voru meira í því byggja upp þungar sóknir á meðan Akureyringar voru snöggir fram með marga menn á sprettinum en allt strandaði á traustum varnarmönnum. „Ég bætti aðeins upp og gerði út um þetta en Elfar Freyr, Bikar-Elli, náði forystunni fyrir okkur,“ sagði Árni eftir leikinn. „Ég er bara ánægð- ur með að sigra eftir 120 mínútur og þetta var erfitt. Við vorum alls óhræddir um þrekið hjá okkur, erum í góðu standi en þar sem það er stutt síðan við spiluðum síðasta leik rífur þetta aðeins í en í bikarleik vill maður gefa allt sem maður hefur. Við unnum okkar annan bikarleik í röð, sem við erum sáttir með og ætlum að koma þessu yfir í deildarleikina.“ Blikar unnu barninginn eftir 120 mínútur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.