Morgunblaðið - 24.06.2014, Side 1

Morgunblaðið - 24.06.2014, Side 1
HM 2014 MAÐUR DAGSINS Þessi þrautreyndi varnarmaður hefur átt stóran þátt í því að Mexíkóar fengu aðeins á sig eitt mark í riðlakeppni HM, og það kom á 87. mínútu í gærkvöld þegar liðið var komið í yfirburðastöðu í leikn- um við Króata. Að auki skoraði hann fyrsta mark liðsins í þessum úrslitaleik um annað sæti A-riðils. Márquez, sem er 35 ára gamall, tekur nú þátt í sinni fjórðu heims- meistarakeppni í röð, sem fyrirliði Mexíkó í öll skiptin og það hefur enginn annar afrekað áður. Márquez var lykilmaður í vörn Barcelona í sjö ár og vann allt sem hægt var að vinna með Katalón- íuliðinu sem hann yfirgaf sumarið 2010. Áður hafði hann spilað með Mónakó í fjögur ár. Márquez lék í hálft þriðja ár með New York Red Bulls í bandarísku MLS-deildinni en fór svo heim og hefur spilað með León í Mexíkó í hálft annað ár. Rafael Márquez ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2014 ÍÞRÓTTIR Evrópukeppni KR á litla möguleika eftir að hafa dregist gegn Celtic frá Skotlandi. Landsliðsfyrirliði Íslands nýtti ekki vítaspyrnu gegn Val síðast þegar Celtic lék hér á landi. FH, Stjarnan og Fram eiga ágæta möguleika. 4 Íþróttir mbl.is Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Handboltaparið Einar Rafn Eiðsson og Unnur Ómarsdóttir eru á leið til Noregs og munu að öllu óbreyttu spila með liðum í norsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Einar Rafn hefur leikið með FH-ingum undanfarin ár en var þar áður í her- búðum Fram og Hauka þar sem hann er uppalinn. Hann er að ganga í raðir Nötteröy sem markvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson hefur leikið með und- anfarin ár en hann gekk á dögunum til liðs við Akureyri. Nötteröy náði að halda sæti sínu í úrvalsdeildinni en liðið hafði betur í umspili við Viking Stavanger. Unnur mun spila með liði Skrim sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni í vor. Unnur hefur spilað með liði Gróttu á Sel- tjarnesi síðustu tímabil en spilaði þar áð- ur með Fylki og KA. Í vetur varð hún markahæsti leikmaður Góttuliðsins og þá á hún fast sæti í íslenska A-landsliðinu. Hún er 24 ára gömul og leikur í stöðu hornamanns en getur einnig brugðið sér í skyttustöðuna. „Þetta er á góðri leið með að ganga upp hjá okkur og þetta er nánast í höfn. Nötteröy ætlar sér stærri hluti á næst- unni og þetta er bara spennandi. Það er gaman að takast á við nýjar áskoranir, komast í nýtt umhverfi og reyna að taka næsta skref upp á við í handboltanum,“ sagði Einar Rafn í samtali við Morg- unblaðið en hann er 25 ára gamall örv- hentur hornamaður sem varð þriðji markahæsti leikmaður FH á síðustu leik- tíð. Nötteröy er frá samnefndum bæ og Skrim er frá Kongsberg en báðir bæirnir eru við suðvestanverðan Óslóarfjörð. Handboltaparið á leiðinni til Noregs  Einar á leið til Nötteröy og Unnur til Skrim Morgunblaðið/Ómar Skrim Unnur Ómarsdóttir fer til nýliða í úrvalsdeildinni. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason Nötteröy Einar Rafn Eiðsson fer til liðs sem hélt sér uppi. 24. júní 1960 Ísland sigrar Svíþjóð í fyrsta skipti í landsleik kvenna í hand- knattleik með því að vinna leik þjóð- anna, 7:6, á Norð- urlandamótinu ut- anhúss í Västerås í Svíþjóð. Sigríður Lúthersdóttir skor- ar flest mörk ís- lensku leikmannanna, þrjú tals- ins, og Sigríður Sigurðardóttir skorar tvö. 24. júní 1998 Íslenska karlalandsliðið í hand- knattleik sigrar Norðmenn, 30:24, í vináttulandsleik í Elver- um. Geir Sveinsson og Patrekur Jóhannesson skora fimm mörk hvor fyrir íslenska liðið sem hafði tapað með sjö mörkum á sama stað tveimur dögum áður. 24. júní 2009 Helga Margrét Þorsteinsdóttir setur nýtt Íslandsmet í sjöþraut kvenna þegar hún fær 5.878 stig á móti í Kladno í Tékklandi. Hún bætir eigið tíu daga met um 157 stig og er efst í greininni á heimslista unglinga. Þetta met Helgu stendur enn. Á ÞESSUM DEGI Brasilíumaðurinn Neymar tók í gærkvöld forystuna í keppninni um markakóngstitilinn á HM í knattspyrnu. Hann skoraði tvö markanna í 4:1 sigrinum á Kamerún og hefur nú gert fjögur mörk í keppninni. Neymar hef- ur þar með skorað 35 mörk í 52 landsleikjum og 22 ára er hann orðinn sjötti markahæsti landsliðsmaður þjóð- ar sinnar frá upphafi. Brasilía mætir Síle og Holland mætir Mexíkó í 16-liða úrslitunum. »2 AFP Fjögur Neymar fagnar seinna marki sínu í sigrinum á Kamerún í gær. Brasilía mætir Síle í sextán liða úrslitum. Neymar orðinn markahæstur á HM Atli Viðar Björnsson náði enn einum áfang- anum í marka- skori sínu fyrir FH í efstu deild í knattspyrnu í gærkvöld þegar hann gerði eitt marka Hafn- arfjarðarliðsins í stórsigri á Fram á Laugardalsvellinum, 4:0. Atli Viðar skoraði þriðja mark FH og um leið sitt 94. mark fyrir félagið í efstu deild. Þar með náði hann öðr- um miklum markahrók, Skaga- manninum Matthíasi Hallgrímssyni, en þeir deila nú fimmta sætinu yfir markahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi. Matthías gerði 77 mörk fyrir ÍA og 17 fyrir Valsmenn á sín- um tíma. Þá er Atli aðeins einu marki á eftir Hermanni Gunnarssyni sem er í fjórða sæti markalistans með 95 mörk. En þegar horft er á markaskor fyrir eitt og sama félagið er Atli í öðru sæti í sögunni. Aðeins Ingi Björn Albertsson hefur gert fleiri mörk fyrir eitt félag en hann skoraði 109 mörk fyrir Val og 17 fyrir FH.  Kristján Gauti Emilsson skor- aði tvö marka FH í gærkvöld og er þar með orðinn einn fimm leikmanna sem eru markahæstir í deildinni í ár með 5 mörk hver. Hinir eru Hörður Sveinsson úr Keflavík, Jóhann Helgi Hannesson úr Þór, Ólafur Karl Fin- sen úr Stjörnunni og Pape Mamadou Faye úr Víkingi. vs@mbl.is Einn áfanginn í viðbót hjá Atla Viðari Atli Viðar Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.