Morgunblaðið - 24.06.2014, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.06.2014, Qupperneq 2
A-RIÐILL Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Brasilíumenn og Mexíkóar tryggðu sér farseðilinn í 16-liða úrslitin á HM í Brasilíu í gærkvöld. Brassarnir tryggðu sér sigur í A-riðlinum með því að leggja Kamerúna að velli, 4:1, og Mexíkóar sendu Íslandsbanana í Króatíu heim með því að vinna þá, 3:1. Brasilíumenn, sem stefna að því að vinna sinn sjötta heimsmeistaratitil, mæta Sílemönnum í 16-liða úrslit- unum en Mexíkóar etja kappi við Hol- lendingana fljúgandi sem fengu fullt hús stiga í B-riðlinum. Gulldrengurinn Neymar Kamerúnar, sem fyrir leikinn voru búnir að tapa báðum leikjum sínum og voru úr leik, veittu heimamönnum harða keppni framan af leik. Gull- drengurinn Neymar kom samba- strákunum á bragðið þegar hann skoraði 100. markið á HM og það í 100. HM-leik Brasilíumanna en þögn sló á Estadio Nacional-völlinn í Bras- ilíuborg þegar Joel Matip jafnaði met- in. En Neymar var ekki lengi að koma sínum mönnum yfir. Þessi frábæri leikmaður skoraði sitt fjórða mark í keppninni og er þar með orðinn markahæstur og það voru síðan Fred og Fernandinho sem gulltryggðu sig- ur þeirra gulklæddu. Markið sem Fred skoraði hefði ekki átt að standa. Hann var rangstæður þegar hann skallaði boltann inn en þungu fargi var létt af honum enda hefur hann harðlega verið gagnrýndur fyrir spila- mennsku sína og það réttilega. Þetta var besti leikur brasilíska liðsins í keppninni til þessa en betur má ef duga skal. Fimmfaldir heimsmeist- ararar verða ekki krýndir meistarar á heimavelli nema þeir bæti sinn leik en hver veit nema S-Ameríkumennirnir séu rétt að hitna og verði öflugri með hverjum leik sem líður. Víst er þó að þeir munu fá harða keppni frá góðu liði Síle þegar liðin eigast við í Belo Horizonte á laugardaginn. „Þetta var okkar besti leikur til þessa og allir verðskulda hrós fyrir að leggja hart að sér fyrir liðið,“ sagði Neymar eftir leikinn. „Sú ábyrgð sem ég hef inni á vellinum er að hjálpa liðs- félögum mínum, skapa færi og verjast líka. Það er enginn mikilvægari en annar. Það eru allir mikilvægir.“ Fyrirliðinn frábæri braut ísinn Það var lengi vel stál í stál í við- ureign Króata og Mexíkóa í Recife. Staðan var markalaus alveg fram á 72. mínútu en þá skoraði fyrirliðinn frá- bæri í liði Mexíkóa, Rafael Marguez, og þar með opnuðust flóðgáttir. And- res Guardado og Javier Hernandez komu Mexíkóum í 3:1 en Ivan Perisic náði að klóra í bakkann fyrir Króat- ana og skömmu síðar var Ante Rebic vikið af velli fyrir ljótt brot. Mexíkóar voru sterkari aðilinn í seinni hálfleik og í sjötta skipti í röð eru þeir með í 16-liða úrslitunum á HM. Það verður fróðlegt að sjá hvernig Mexíkóum tekst upp á móti Hollendingum þegar liðin mætast í 16-liða úrslitunum í Fortaleza á sunnudaginn. Varnarleik- urinn hefur verið eitt helsta vopn mexíkóska liðsins sem hefur aðeins fengið á sig eitt mark í þremur leikj- um en Hollendingarnir hafa skorað mest allra liða eða tíu mörk talsins. Neymar setti 100. markið í 100. leiknum AFP Fögnuður Fernandinho fagnar ásamt Willian eftir að hafa skorað fjórða mark Brasilíu gegn Kamerún og brasilískir áhorfendur láta ánægju sína í ljós.  Brasilía og Mexíkó í 16-liða úrslitin HM í Brasilíu » Átta lið hafa tryggt sér far- seðilinn í 16-liða úrslitin en þau eru: Brasilía, Mexíkó, Holland, Síle, Kólombía, Kostaríka, Arg- entína og Belgía. » Javier Hernandez, framherji Mexíkó og Manchester United, hafði spilað 10 leiki í röð fyrir Mexíkó án þess að skora en hon- um tókst að brjóta ísinn þegar hann skoraði þriðja mark Mexí- kóa í gærkvöld. 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2014 Það var ekki spennunni fyrir að fara í lokaumferð B-riðils í Brasilíu enda þegar ljóst hvaða lið kæmust í sextán liða úrslitin. Holland og Síle þurftu hins vegar að útkljá sín á milli hvort fengi toppsætið og að öllum líkindum þægilegri mótherja í næstu umferð, ef hægt er að tala um slíkt á heims- meistaramótinu í knattspyrnu. En með Arjen Robben í stuði var hol- lenskur sigur í höfn með mörkum tveggja varamanna, Leroys Fers og Memphis Depays. Lokatölur 2:0. Hollendingar fara því örugglega í gegnum þennan sterka riðil en Síle- menn ættu varla að kvarta yfir öðru sætinu. Það verður gaman að sjá hvað þeir gera uppi á næsta þrepi. Spánverjar sýndu loks brot af sínu rétta andliti þegar liðið tók Ástrala í gegn, 3:0. David Villa kvaddi stóra sviðið með góðu hælspyrnumarki en fór grátandi af velli í kveðjuleik sín- um þegar honum var kippt út af í síð- ari hálfleik. Markahæsti leikmaður Spánverja í sögunni. Fernando Torres og Juan Mata gulltryggðu svo sigurinn í síðari hálfleik og þriðja sæti riðilsins sem er allt annað en ásættanlegt fyrir fráfarandi heimsmeistara. Liðið var þó mun sprækara í þessum leik en þeim tveimur á undan. Diego Costa fór á bekkinn enda ekki komist í takt við leik þeirra og það skilaði sér. Þá var sérstaklega gaman að sjá Andrés Iniesta spila eins og hann á að sér með frábærum sendingum. Það mun- aði um minna í fyrstu tveimur leikj- unum. yrkill@mbl.is Fullt hús Hollands og spænskur sigur AFP Magnaður Arjen Robben hefur verið jafnbesti maður Hollendinga á HM og verið varnarmönnum andstæðinganna afar erfiður þegar hann tekur á rás. Cristiano Ronaldo, sem var kjörinn besti knattspyrnu- maður heims á síðasta ári, vakti athygli fyrir óvenjulegan hárstíl þegar Portúgal og Bandaríkin gerðu jafntefli, 2:2, í H-riðli heimsmeistaramótsins í Brasilíu á sunnudags- kvöldið. Ronaldo hafði rakað ör í hægri hliðina sem líkti eftir örum hins eins árs gamla Eriks Ortiz Cruz, sem glímt hefur við sjaldgæfan heilasjúkdóm. Foreldrar hans höfðu lengi safnað fyrir nauðsynlegri aðgerð handa syni sínum og höfðu samband við Ronaldo og vonuðust til þess að hann gæti gefið þeim notaða skó sína til þess að selja á uppboði. Ronaldo gerði hins vegar gott betur og borgaði fyrir aðgerðina. Hárstíll- inn sem hann skartaði á sunnudag, og margir gerðu grín að, er einnig til stuðnings Erik litla og líkir eftir þeim örum sem drengurinn ber eftir að- gerðina mikilvægu. yrkill@mbl.is Ronaldo hetja ungs drengs Cristiano Ronaldo Bandaríkjamaðurinn Kevin Streelman vann heldur betur sögulegan sigur á Opna Travelers-mótinu á PGA-móta- röðinni í golfi um helgina. Streelman fékk sjö fugla á síð- ustu sjö holunum á fjórða og síðasta hringnum á sunnu- dag og tryggði sér sigurinn, en þessi fuglaröð er einnig met. Gamla metið yfir flesta fugla í röð átti Mike Souchak sem fékk sex fugla í röð á Opna St. Paul-mótinu árið 1956. Þessi ótrúlegi lokasprettur Streelmans tryggði honum einnig sigur á mótinu, en hann lék seinni níu holurnar á 28 höggum og lauk keppni á samtals fimmtán höggum undir pari og var einu höggi á undan Spánverjanum Ser- gio Garcia sem var annar. „Þetta voru sennilega uppáhalds níu holurnar mínar á PGA-mótaröðinni. Þetta var einn af þessum dögum sem mér fannst eins og ég gæti ekki klikk- að,“ sagði Streelman eftir sigurinn. yrkill@mbl.is Fuglaregn Streelmans sló met Kevin Streelman Pepsi-deild karla Fram – FH................................................ 0:4 Staðan: FH 9 6 3 0 14:3 21 Stjarnan 9 5 4 0 15:10 19 Keflavík 9 4 4 1 15:9 16 KR 9 5 1 3 13:11 16 Víkingur R. 9 5 1 3 11:11 16 Valur 9 4 3 2 14:11 15 Fjölnir 9 2 4 3 12:13 10 Fram 9 2 3 4 14:18 9 Fylkir 9 2 1 6 10:18 7 Breiðablik 9 0 6 3 8:12 6 Þór 9 1 2 6 14:18 5 ÍBV 9 0 4 5 10:16 4 1. deild kvenna A Keflavík – Fjölnir ..................................... 0:3 Staðan: Fjölnir 7 7 0 0 20:1 21 HK/Víkingur 6 4 1 1 16:4 13 Haukar 5 3 0 2 15:8 9 Tindastóll 6 2 3 1 9:11 9 Víkingur Ó. 6 2 1 3 7:8 7 Grindavík 4 2 0 2 5:7 6 Hamrarnir 6 1 1 4 2:12 4 BÍ/Bolungarvík 6 1 1 4 1:12 4 Keflavík 6 0 1 5 3:15 1 4. deild karla D Kría – Árborg ........................................... 3:0 Staðan: Þróttur V. 10, KH 10, Kría 9, Vatnaliljur 8, Skínandi 6, Árborg 5, Máni 0. KNATTSPYRNA A-RIÐILL: Króatía – Mexíkó...................................... 1:3 Ivan Perisic 87. – Rafael Márquez 72., Andrés Guardado 75., Javier Hernández 82. Rautt spjald: Ante Rebic (Króatíu) 89. Kamerún – Brasilía .................................. 1:4 Joël Matip 26. – Neymar 17., 35., Fred 50., Fernandinho 84. Lokastaðan: Brasilía 3 2 1 0 7:2 7 Mexíkó 3 2 1 0 4:1 7 Króatía 3 1 0 2 6:6 3 Kamerún 3 0 0 3 1:9 0 B-RIÐILL: Ástralía – Spánn ....................................... 0:3 David Villa 36., Fernando Torres 69., Juan Mata 82. Holland – Síle............................................ 2:0 Leroy Fer 77., Memphis Depay 90. Lokastaðan: Holland 3 3 0 0 10:3 9 Síle 3 2 0 1 5:3 6 Spánn 3 1 0 2 4:7 3 Ástralía 3 0 0 3 3:9 0  Holland mætir Mexíkó og Brasilía mætir Síle í 16-liða úrslitunum. C-RIÐILL: Staðan: Kólumbía 2 2 0 0 5:1 6 Fílabeinsstr. 2 1 0 1 3:3 3 Japan 2 0 1 1 1:2 1 Grikkland 2 0 1 1 0:3 1 Leikir í dag: Japan – Kólumbía....................................... 20 Grikkland – Fílabeinsströndin.................. 20 D-RIÐILL: Staðan: Kostaríka 2 2 0 0 4:1 6 Ítalía 2 1 0 1 2:2 3 Úrúgvæ 2 1 0 1 3:4 3 England 2 0 0 2 2:4 0 Leikir í dag: Kostaríka – England.................................. 16 Ítalía – Úrúgvæ .......................................... 16 G-RIÐILL: Bandaríkin – Portúgal............................. 2:2 Jermaine Jones 64., Clint Dempsey 81. – Nani 5., Silvestre Varela 90.  Aron Jóhannsson var varamaður hjá Bandaríkjunum og kom ekki við sögu. Staðan: Þýskaland 2 1 1 0 6:2 4 Bandaríkin 2 1 1 0 4:3 4 Gana 2 0 1 1 3:4 1 Portúgal 2 0 1 1 2:6 1 Leikir sem eftir eru: 26.6. Portúgal – Gana................................. 16 26.6. Bandaríkin – Þýskaland ................... 16 MARKAHÆSTIR Á HM: Neymar, Brasilíu.......................................... 4 Enner Valencia, Ekvador............................ 3 Karim Benzema, Frakklandi ...................... 3 Thomas Müller, Þýskalandi ........................ 3 Robin van Persie, Hollandi ......................... 3 Arjen Robben, Hollandi .............................. 3 HM 2014 KNATTSPYRNA Pepsi-deild kvenna: Hásteinsvöllur: ÍBV – FH ........................ 18 Þórsvöllur: Þór/KA – Breiðablik ............. 18 Jáverkvöllur: Selfoss – Stjarnan......... 19.15 Vodefonevöllur: Valur – Fylkir ........... 19.15 N1 Varmá: Afturelding – ÍA ............... 19.15 1. deild karla: Torfnesvöllur: BÍ/Bolung. – Grindavík ... 18 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.