Morgunblaðið - 24.06.2014, Qupperneq 4
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KR-ingar eiga nánast enga mögu-
leika á að komast áfram í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu eftir að
hafa dregist gegn Celtic frá Skot-
landi í 2. umferð í gær. FH, Stjarn-
an og Fram eiga hinsvegar öll
ágæta möguleika á að komast í 2.
umferðina í Evrópudeild UEFA.
Skosku meistararnir Celtic eru
númeri of stórir fyrir Íslandsmeist-
ara KR sem hinsvegar frá
skemmtilegt tækifæri til að glíma
við þetta fræga félag, sem er með
Hólmbert Aron Friðjónsson í sín-
um röðum.
Það dregur reyndar úr sjarm-
anum að KR-ingar fá ekki að spila
á Celtic Park, sem er upptekinn
vegna Samveldisleikanna í Glasgow
í næsta mánuði. Celtic þarf að spila
heimaleikinn gegn KR í Edinborg.
FH mætir Glenavon frá Norður-
Írlandi, Fram mætir Nömme Kalju
frá Eistlandi og Stjarnan mætir
Bangor City frá Wales.
Celtic hefur einu sinni áður leikið
hér á landi en liðið sló Val út, 9:0
samanlagt, í Evrópukeppni bikar-
hafa árið 1975 eins og fjallað er um
neðar á síðunni.
Einu sinni slegið Skota út
Íslensk lið hafa þrettán sinnum
mætt skoskum í Evrópukeppni og
aðeins einu sinni tekist að hafa bet-
ur. Það var árið 2004 þegar FH
vann Dunfermline 4:3 samanlagt og
lagði Skotana 2:1 í seinni leiknum á
þeirra heimavelli.
Það er einn af aðeins þremur sig-
urleikjum íslenskra liða gegn
skoskum í 25 leikjum. ÍA sigraði
Raith Rovers 1:0 árið 1995 og KR
vann Kilmarnock, 1:0, árið 1999.
Hvorugur sigurinn nægði til að slá
skosku mótherjana úr keppni þótt
litlu hafi munað í bæði skiptin.
ÍA náði fræknu jafntefli við
Aberdeen, þáverandi Evrópumeist-
ara bikarhafa, á útivelli, 1:1, haust-
ið 1983, og FH gerði jafntefli, 2:2,
við Dundee United í Skotlandi árið
1990 eftir að hafa óvænt náð
tveggja marka forystu.
Ísland alltaf unnið Wales
Stjarnan tekur þátt í Evrópu-
keppni í fyrsta sinn og mætir
Bangor City frá Wales. Íslensk lið
hafa þrisvar mætt velskum og unn-
ið þau í öll skiptin, og sigrað í öllum
sex leikjunum. ÍA vann Bangor
City 2:0 og 2:1 árið 1994, FH vann
Haverfordwest 3:1 og 1:0 árið 2004
og Fram vann The New Saints 2:1
og 2:1 árið 2009.
Bangor City hafnaði í 4. sæti
velsku deildarinnar í vor, 25 stigum
á eftir meisturum The New Saints,
og vann svo umspil um Evrópusæti.
Öruggt gegn Norður-
Írum seinni árin
FH mætir Glenavon frá Norður-
Írlandi og þegar horft er á viður-
eignir íslenskra og norðurírskra
liða frá upphafi er um jafnræði að
ræða. Íslensku liðin hafa farið fimm
sinnum áfram af níu skiptum. Á
þessari öld hafa íslensk lið hins-
vegar reynst mun sterkari en þau
norðurírsku. Keflavík vann Dung-
annon 4:1 samanlagt árið 2006 og
KR vann Glentoran 5:2 samanlagt
árið 2010 og aftur 3:0 í fyrra.
Glenavon sló hinsvegar FH út,
1:0 samanlagt, árið 1995 og vann þá
leik liðanna í Kaplakrika. FH féll
líka fyrir norðurírskum mótherj-
um, Linfield, árið 1994 og þá 2:3
samanlagt.
Glenavon er norðurírskur bikar-
meistari en hafnaði í fimmta sæti
deildarinnar í vetur, 26 stigum á
eftir meisturum Cliftonville.
Stjarnan og FH hafa það bæði
með sér að mótherjar þeirra, Bang-
or City og Glenavon, eru rétt að
koma úr sumarfríi þegar leikirnir
fara fram.
Sagan hliðholl gegn Eistlandi
Framarar spila fyrstu Evrópu-
leiki sína í fimm ár en andstæð-
ingar þeirra, Nömme Kalju, eru í
þriðja sæti þegar 17 umferðir hafa
verið leiknar af 36 í Eistlandi. Liðið
varð meistari 2012 og hafnaði í
öðru sæti í fyrra.
Framarar eru líklega með erfið-
asta verkefnið af íslensku liðunum
þremur í Evrópudeildinni en sagan
er þó hliðholl íslenskum liðum gegn
eistneskum í Evrópukeppni. ÍBV
var slegið út af Lantana Tallinn,
1:2 samanlagt, árið 1996 en tvö ís-
lensk lið hafa hinsvegar slegið út
TVMK Tallinn. Skagamenn unnu
þá 6:3 samanlagt árið 2004 og FH
vann TVMK 4:3 samanlagt árið
2006.
Skotland, Pólland
og Hvíta-Rússland
Þá liggur fyrir hverjir mótherjar
íslensku liðanna verða í 2. umferð
Evrópudeildarinnar ef þau komast
áfram.
Ef Stjarnan slær Bangor City út
verður Motherwell frá Skotlandi
mótherjinn.
Ef Fram slær Nömme Kalju út
verður Lech Poznan frá Póllandi
mótherjinn.
Ef FH slær Glenavon út verður
Neman Grodno frá Hvíta-
Rússlandi mótherjinn.
Þrjú lið eiga möguleika
KR ógnar tæplega skosku meisturunum Celtic FH, Stjarnan og Fram eiga
að geta slegið út Glenavon, Bangor City og Nömme Kalju Erfiðast hjá Fram
Morgunblaðið/Ómar
Bretland KR og Stjarnan fara bæði til Bretlands. KR-ingar mæta Celtic í
Edinborg en Stjörnumenn fara til Wales og leika við Bangor City.
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNÍ 2014
Eins og náttúran hafði í hyggju
• Magnesíumsprey sem virkar strax!
• Slakandi, bætir svefn og slær á
fótaóeirð og sinadrátt
• Frábær upptaka
Sefurðu illa?
MagnesiumOil
Spray
Fæst í flestum apótekum, Lifandi Markaði, Heilsuhúsinu,
Fjarðarkaup og Systrasamlaginu
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
og á Facebook síðunni Better You Ísland
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Goodnight
Grannar mínir norðan heiða
í Magna á Grenivík lentu í ansi
dramatískum atburði í 3. deild-
inni á sunnudag. Þeir voru 4:3
undir gegn ÍH og fengu víta-
spyrnu að uppbótartíma liðnum.
Spyrnan var varin og dómarinn
flautaði af um leið, andartökum
áður en Magnamenn fylgdu eftir
og skoruðu úr frákastinu. Alvöru-
dramatík og eflaust mikið hróp-
að í kjölfarið þótt mig gruni að
fátt af því sé prenthæft.
En það er alltaf gaman að
dramatík í fótboltanum. Ég við-
urkenni fúslega að ég hrópaði í
átt að imbanum þegar Portúgal-
ar jöfnuðu metin gegn Bandaríkj-
unum á heimsmeistaramótinu á
sunnudagskvöldið. Ekki að ég
haldi með Portúgal, raunar langt
því frá, en augnablikið var bara
svo magnþrungið. Já svona er
maður einfaldur.
Ég fletti upp orðinu sjónvarp
í samheitaorðabók enda imbi
eða imbakassi löngu orðið klént.
Ég fékk þar upp orðið„hálfvita-
kassi“ og gat ekki annað en hleg-
ið enda hef ég staðið mig að því
að hrópa á tækið nokkuð oft yfir
heimsmeistaramótinu eins og,
jú, algjör hálfviti.
Það er samt ekki hægt ann-
að en að lifa sig inn í þetta mót
af krafti enda hefur það verið al-
veg hreint mögnuð skemmtun.
Nú er síðasta umferð riðlakeppn-
innar hafin og lýkur á fimmtu-
dag, sem þýðir að það er enginn
leikur á föstudaginn áður en sex-
tán liða úrslitin hefjast. Illa farið
með góðan föstudag segi ég.
Ég vona að litlu liðin svo-
kölluðu fari sem lengst. Kosta-
ríka, Ekvador og Síle hafa öll
komið mér skemmtilega á óvart.
Ástríða þeirra er mögnuð og það
er eins og ég vil sjá – þó að inn-
lifunin hjá mér hafi endimörk við
hálfvitakassann.
BAKVÖRÐUR
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fyrir 39 árum léku Valsmenn gegn
Celtic frá Skotlandi í Evrópukeppni
bikarhafa og í gær drógust KR-ingar
gegn skoska meistaraliðinu í 2. um-
ferðinni í forkeppni Meistaradeildar
Evrópu. Rétt eins og nú var Celtic þá
með íslenskan leikmann í sínum röð-
um. Nú er það Hólmbert Aron Frið-
jónsson en árið 1975 var Jóhannes
Eðvaldsson landsliðsfyrirliði nýkom-
inn í raðir Celtic, og einmitt frá Val.
Og Jóhannes lék gegn bróður sín-
um, Atla Eðvaldssyni, sem þá var 18
ára gutti í Valsliðinu og sjö árum
yngri en landsliðsfyrirliðinn. Jó-
hannes hafði rúmum mánuði fyrr
skorað sigurmark Celtic í uppgjöri
Skotlandsmeistaranna gegn Eng-
landsmeisturum Derby County og
hann var fyrirliði Skotanna í fyrri
leiknum á Laugardalsvellinum. Þar
tók hann vítaspyrnu en Sigurður
Dagsson, markvörður Vals og lands-
liðsins, gerði sér lítið fyrir og varði
frá sínum gamla samherja, sem fékk
tvær tilraunir til að skora.
Celtic vann þennan leik 2:0 og Jó-
hannes náði að koma fram hefndum
gegn Sigurði með því að skora fyrsta
mark Celtic í stórsigri, 7:0, í seinni
leik liðanna í Glasgow hálfum mánuði
síðar.
Nú fá KR-ingar það erfiða verk-
efni að glíma við Celtic, sem hefur
sýnt styrk sinn með góðri frammi-
stöðu í Meistaradeildinni undanfarna
vetur. Celtic lagði Barcelona, 2:1,
fyrir hálfu öðru ári og komst þá
áfram í 16-liða úrslit en féll þar út
fyrir Juventus. Celtic lék líka í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar síðasta
vetur en komst þá ekki áfram. Vann
þó heimaleik sinn við Ajax, 2:1.
Celtic Jóhannes Eðvaldsson spilaði
gegn Valsmönnum í Laugardal.
Jóhannes lék með
Celtic gegn Atla og Val
Siggi Dags varði vítaspyrnu Jóhannesar