Morgunblaðið - 12.09.2014, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.09.2014, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ | 7 E kki verður of mikil áhersla lögð á gildi tónlistarinnar fyr- ir veisluna. Réttu lögin koma jafnvel önugustu gestum í gott skap og ómótstæðilegur smellur fær fólk til að drífa sig út á dansgólfið. Gestgjafi sem leggur mikið uppúr fallegum sal, ljúffengum mat og fínum vínum, en gleymir að hugsa út í tónlist- ina, er að gera stór mistök. Fyrst ætti að skoða þann möguleika að fá einfaldlega fagmann til að sjá um tónlistarhliðina. Plötusnúðar kunna t.d. ekki bara að trylla lýðinn á næturklúbb- unum heldur geta þeir sett saman tón- listarpakka fyrir ólík tilefni. Ef fjárhagurinn leyfir ekki að panta lagalista frá plötusnúð þá getur reynst vel að leita hjálpar á netinu. Ekki þarf að leita lengi á Google, eða jafnvel á YouTube til að finna síður þar sem tón- listarhugmyndum fyrir veislur er safn- að saman. Leit að „Party Mix“ eða „Party Playlist“ á YouTube vísar strax á fyrirfram-smíðaða lagalista, sem er hægt að spila sísvona ef hljóðkerfið er nettengt, ellegar nota lögin sem þar eru sem forskrift að handvöldu tónlist- arprógrammi. Tónlistin verður vitaskuld að hæfa tilefninu, og gestunum. Ekki boðar gott að spila nýjustu smellina með One Di- rection í veislu þar sem gestirnir eru allir löngu komnir af léttasta skeiði. Á sama hátt er ekkert endilega sniðugt að taka syrpu af Brandenbúrgarkons- ertum í gleðskap fyrir táninga. Rólegt í bakgrunni Tónlistin ætti heldur ekki að vera af þeirri tegund sem tekur til sín alla at- hyglina. Tónlistin á að vera í bakgrunn- inum. Þá getur verið gott að lagalistinn breyti um takt og styrk eftir því sem veislunni vindur fram. Þegar fólk situr að snæðingi getur ómur af rólegum djassi skapað notalegt andrúmsloft, en þegar kemur að desertinum og sumir fara að gjóta augunum að dansgólfinu er kannski sniðugt að skipta yfir í Si- natra-sveiflu og hækka örlítið í. Á sama hátt, ef ekki þykir æskilegt að teitin standi yfir langt fram á nótt, er hægt að nota tónlistina til að róa hópinn frekar en örva, og leyfa þannig veislunni að fjara þægilega út. Þeir sem eiga í mesta basli með að muna eftir hentugum lögum ættu að kíkja á vef- síðuna Musicovery.com. Þar er haldið úti stóru safni laga sem flokkuð hafa verið eftir tónlistarstefnu, hrynjandi og hlýleika. Þarf bara að merkja við réttu reitina og tilgreina „skapið“ sem sóst er eftir og forritið galdrar fram röð af lögum. Musicovery er máski hægt að tengja beint við hljóðkerfið ef góð nettenging er á staðnum, en öruggara er samt að nota tillögur forritsins bara til innblást- urs og leiðsagnar, því stundum tekur kerfið feilspor og skýtur inn lagi sem er á skjön við þau sem koma á undan og á eftir. ai@mbl.is Tónlistin ræður úrslitum Töluverð kúnst að setja saman hinn fullkomna lagalista fyrir veislur Morgunblaðið/Árni Sæberg Stuð Góður plötusnúður getur gert gæfumuninn. Frá viðburði á Laugavegi. Morgunblaðið/Golli Glamúr Ef gestirnir eiga að dansa þarf tónlistin að vera við hæfi. Frá Fiðluballi. Morgunblaðið/hag Yndi Hvað með smá djass í bakgrunn- inum, af diski eða jafnvel lifandi? Sig- urður Flosason mundar saxafóninn á þessari mynd úr safni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.