Morgunblaðið - 12.09.2014, Page 15

Morgunblaðið - 12.09.2014, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ | 15 Flottar veislur www.veislan.is 26 ára reynsla • Veislumatur • Kökugerð • Smurbrauð Veislan er alhliða veisluþjónusta, býður upp á fyrsta flokks mat, veislusal, borðbúnað og heildarlausn í veisluna þína ásamt persónulegri þjónustu. Veislan býður uppá ýmis hlaðborð, 2 til 6 rétta seðla og margt fleira. Fyrsta flokks hráefni úr eldhúsi Veislunnar. Smáréttahlaðborð. Mikið úrval af tapas- réttum og canape sem eru vinsæl í afmæli, móttökur og partý. Terta með brúðarmassa úr handverksbakarí Veislunnar, bjóðum uppá fjölbreytt úrval af tertum, kökum og brauðmeti. Smurbrauðsdeild Veislunnar töfrar fram fallegar kaffi- snittur, skreyttar brauðsneiðar og brauðtertur, vinsælt fyrir fundi, afmæli og erfidrykkjur. Hringdu og leitaðu tilboða • Sími 561 2031 T uttugasta hæðin í Turn- inum í Kópavogi hefur skapað sér sess sem einn af betri veislustöðum landsins. Staðurinn er nú i höndum nýrra eigenda en fjöl- skyldan í Múlakaffi tók starfsem- ina nýlega yfir. Hefur sú breyting verið gerð á rekstrinum að veit- ingastaðurinn á 19. hæð var lagður niður í þeirri mynd sem hann var og sinnir hann í dag fyrirtækjunum í húsinu í hádeginu, ásamt því að vera leigður út til veisluhalda á kvöldin og um helgar. Veisluþjón- ustan á 20. hæð er áfram í fullu fjöri. Jón Örn Jóhannesson er yfrmat- reiðslumaður Turnsins veisluþjón- ustu. Hann segir húsakynnin glæsileg nú sem fyrr. „Við höfum tekið allt húsnæðið í gegn, málað allt í hólf og gólf og slípað parketið svo veislusalurinn er eins og nýr. Að vanda er nóg af bílastæðum og stór bílakjallari undir húsinu, út- sýnið engu likt, lofthæðin mikil í rýminu og fátt sem jafnast á við að kíkja út á svalirnar,“ segir hann. Allt að 400 gestir Á 20. hæð má halda 200 manna sitjandi veislu með hringborðum en salurinn rúmar allt að 400 manns í standandi boði. Salinn er svo hægt að hólfa niður eftir þörfum, fyrir smærri hópa. Jón Örn segir að- stöðuna henta fyrir allar tegundir viðburða, jafnt fermingar- og brúð- kaupsveislur, árshátíðir og dans- leiki, tónleika og ráðstefnur. „Hljóðkerfi nær yfir alla hæðina og tvö risatjöld og myndvarpa má nota til að sýna hvers kyns efni. Myrkvunartjöld eru á öllum glugg- um svo hægt er að hafa algjört myrkur í salnum á hvaða tíma árs sem er, ef þess er óskað.“ Hægt er að skipta salnum á 20. hæðinni í svæði A og B, að auki er rúmgott barsvæði með aðgengi út á svalir. Barsvæðið nýtist vel sem móttökurými þar sem gestum er boðið upp á fordrykk áður en sest er til borðs. „Heiðarlegur matur“ Aðspurður um áherslurnar í mat- seldinni segir Jón að Turninn veisluþjónusta leggi uppúr því að elda það sem hann kallar „heið- arlegan mat“. Sumir af fimustu kokkum landsins galdra þar fram sígilda rétti sem allir eiga að kunna að meta. „Vinsælast er t.d. á árshá- tíðum fyrirtækja að hafa nautakjöt eða lambakjöt í aðalrétt og humar eða bleikju í forrétt. Einnig hafa vakið lukku svokölluð lúxus- smáréttaborð þar sem maturinn er eldaður á nokkrum „stöðvum“ í salnum, hver stöð með ólíku þema.“ Hann segir þá sem bera ábyrgð á að skipuleggja afmælisveislu eða árshátíð eiga að fara varlega í hvers kyns tilraunastarfsemi á matseðinum. Yfirleitt gefist best að leita í hefðbundnu réttina sem öll- um þykja góðir, og geyma tilrauna- eldhúsið fyrir önnur tækifæri „Það þarf alls ekki að finna upp hjólið í hverri veislu og gestirnir eru yf- irleitt ánægðastir með hefðbundinn veislumat úr vönduðu hráefni.“ ai@mbl.is Jón Örn yfirmatreiðslumaður segir Íslendinga kunna best að meta hefð- bundnu veisluréttina. Gestgjafar þurfi ekki að reyna að finna upp hjólið í hverri veislu og lamba- eða nautasteikin stendur alltaf fyrir sínu. Morgunblaðið/Þórður Sígilt „Vinsælast er t.d. á árshátíðum fyrirtækja að hafa nautakjöt eða lambakjöt í aðalrétt,“ segir Jón Örn. „Útsýnið er engu líkt“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Himnar Turninn í Kópavogi gnæfir yfir nágrennið og útsýnið er einstakt. Glansandi Hefðbundnir réttir reynast vel. Hamborgarhryggur fyrir jólaboðið. Ein af stóru spurningunum sem gestgjafinn stendur frammi fyrir er hvaða drykki á að bjóða með matn- um, og í hve miklu magni. „Við höf- um oft þann háttinn á að skemmti- nefndin, ef um er að ræða viðburð á vegum fyrirtækis eða stofnunar, fær að smakka tvær-þrjár tegundir af rauðu og tvær-þrjár af hvítu, í mis- munandi verðflokkum. Ódýrasta vín- ið er þá ágætt „keyrsluvín“ en líka hægt að velja fínni og dýrari flösk- ur.“ Jón Örn segir fara mjög eftir til- efninu, og eftir lengd veislunnar hvað gera þarf ráð fyrir mörgum glösum á hvern gest. Er vínmagnið áætlað fyrirfram og svo flöskurnar taldar að veislunni lokinni. Velja milli nokkurra víntegunda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.