Barnablaðið - 27.09.2014, Side 4
BARNABLAÐIÐ4
Brynjar Karl Birgisson er 11 ára gamall einhverfur
drengur sem vinnur að því að byggja líkan af Titanic
úr Lego-kubbum. Skipið er alls 6,33 m á lengd og er
Brynjar meira en hálfnaður með verkið.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Lego og tölvan. Ég er mikið tölvu-
nörd, þó ég segi sjálfur frá.
Hvað er svona spennandi
við Lego?
Þetta er bara mjög skemmtilegt
dót. Ég byrjaði að fá áhuga á Lego
og Titanic og hef ekki stoppað
síðan.
Hvað ertu nákvæmlega að gera?
Ég er að byggja stærsta skip í
heimi, Titanic, úr Lego-kubbum.
Hefur þú farið í Legoland
í Danmörku?
Já, ég hef farið. Ég hef verið u.þ.b.
7 ára og það var mjög skemmtilegt.
Ég sá ekkert þar í þessari stærðar-
gráðu sem mitt Titanic verður.
Af hverju Titanic?
Fallegt skip, stórt, og hraðskreitt.
Þar var líka mjög góður matur.
Ég hafði mikinn áhuga á John
Lennon, Jesús og lestum. Ég
horfði mikið á lestar þegar ég
var lítill, gufulestar snúast
í hringi. Mig langaði
svo mikið að
verða lestar-
stjóri. Ég
sá Titanic
þegar ég
var að
horfa á
myndband
á Youtube
og þá byrjaði
það að vera
áhugamál.
Hvernig heldur þú að
það hafi verið að vera um borð í
Titanic?
Það sem ég veit er að það voru
2.200 manns á skipinu þegar það
sökk. Ég hefði
allavega ekki
viljað vera um borð
þegar það sökk.
Það hefði eflaust verið
gaman að sigla með því, en
það sökk í fyrstu ferðinni og náði
ekki til New York.
Nú er í smíðum Titanic II,
hvernig líst þér á það?
Mjög vel, árið 2016 verður tilbúið
nýtt Titanic II. Mamma mín lofaði
að við myndum sigla með nýja
Titanic-skipinu sumarið 2016. Það
skip verður töluvert stærra og með
fleiri strompum. Ég er búinn að
skoða þetta nýja skip dálítið. Þar
verða til dæmis betri sundlaugar og
miklu stærri. Undir skipinu verða
þrjár skrúfur, sem er dálítið öðruvísi
en í gamla daga.
„Það
verður öllu
m
boðið á sýn
ingu
þegar skip
ið verður
klárt. Öllum
þeim sem
hafa styrkt
mig og
öllum sem
þekkja
mig.“
Dreymir um
að verða stýrimaður
á skemmtiferðaskipi
Titanic-skipið í
öllu sínu veldi.