Morgunblaðið - 14.10.2014, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. OKTÓBER 2014
Það var mikið ágætisfólk
sem Færeyjar fóstruðu á sinni
tíð, fólk sem flutti svo á Fá-
skrúðsfjörð.
Ég átti þess kost að kynnast
flestum þeirra og það voru
sannarlega ánægjuleg kynni.
Nú er enn einn horfinn úr þess-
um góða hópi, heill drengur og
kostaríkur góðvinur og ekki
sízt kær félagi um áratugi.
Hann var glöggur maður og
greindur vel, ljúfmenni sem
gat einnig verið hinn
Pétur Herluf
Jóhannesson
✝ Pétur HerlufJóhannesson
fæddist 13. júní
1928 á Sandi, Sand-
ey í Færeyjum.
Hann lést að heim-
ili sínu 30. sept-
ember 2014.
Útför Péturs fór
fram frá Fáskrúðs-
fjarðarkirkju 6.
október 2014.
ákveðnasti. Hann
Pétur var trúr í öll-
um sínum verkum
og þreytti lífsgöng-
una með ágætum,
glaðvær og hress,
en annars nokkuð
dulur. Pétur var
annálaður fyrir lip-
urð sína og verk-
hæfni. Hann unni
tónlistinni og lék
ágætlega á harm-
oniku og það var broshýr mað-
ur sem seiddi fram ljúfa tóna á
dansleikjum á Fáskrúðsfirði,
þar var hann í essinu sínu. Pét-
ur var einlægur í öllu, þar með
töldust stjórnmálaskoðanir
þessa einarða vinstrimanns,
sem alltaf var jafngott að eiga
að.
Þau Hjördís, okkar kæra
vinkona og þeirra fólk settu
mark sitt svo sannarlega á liðs-
mannahóp okkar á Fáskrúðs-
firði, þar var fólk sem vissi að
þeirra var að standa vörð um
þau gildi og réttindi sem rót-
tækt vinstrafólk hafði náð fram
með þrotlausri baráttu sinni.
Nú halda alltof margir að allt
hafi þetta góða sem fólk býr
við í dag komið af sjálfu sér,
ekki fólkið þeirra Dísu og Pét-
urs.
Ég hugsa þó fyrst og síðast
til samfunda okkar sem alltaf
voru jafnánægjulegir, glettnin
góð var ætíð efst á baugi hjá
Pétri, hann hló manna glaðast,
en var líka skjótur til svars og
kunni þá list mjög vel. Hann
tókst á við hinn slæma vágest
af einstöku æðruleysi.
Hugur leitar til löngu horf-
inna stunda þegar kynni okkar
hófust, það var bjart yfir þeim
stundum og á þau kynni bar
aldrei skugga. Fyrir þau og
trúfasta fylgd við sameigin-
legna málstað er í dag þakkað
heilum huga.
Við Hanna sendum henni
Dísu, börnunum og öllu þeirra
fólki einlægustu samúðar-
kveðjur. Kvaddur er drengur
góður, það bregður birtu á
munakærar minningar áranna.
Blessuð sé minning hans.
Helgi Seljan.
Elsku ástin mín. Ég á ennþá
svo erfitt með að trúa því að þú
sért farin af þessari jörð og að
ég eigi aldrei eftir að sjá þig
aftur á meðan ég lifi, fallegi
engillinn minn. Það brotnaði
Kara Mist
Ásgeirsdóttir
✝ Kara Mist Ás-geirsdóttir (áð-
ur Kara Dröfn)
fæddist á Landspít-
alanum 16. sept-
ember 1993. Hún
lést á Algeciras á
Spáni 17. sept-
ember 2014.
Útför Köru Mist-
ar fór fram í kyrr-
þey 2. október
2014.
svo í mér hjartað
þegar ég fékk
þetta hræðilega
símtal um að þú
hefðir kvatt þenn-
an heim, við tóku
hræðilega erfiðir
tímar, en a sama
tíma er ég svo
þakklátur að kom-
ast i gegnum þá
edrú, af því lika
það er það sem þú
hefðir viljað, og að fá að upplifa
sorgina í lagi og ódeyfður og
leyfa mér bara að gráta. Til-
hugsunin við það að fá aldrei að
sjá þitt fallega bros og fá ekki
að hlæja með þér og bara flippa
og grínast og liggja grenjandi
úr hlátri yfir einhverjum steikt-
um myndböndum a youtube er
svo óraunverulegt.
Ég man svo sterkt þegar við
kynntumst hvað við urðum
strax ástfangin og ekkert gat
komið á milli okkar, þú gast
alltaf komið mér til að hlæja og
brosa með þínum einstaka og
svarta húmor, sama hvernig
mér leið. Ég man þegar við trú-
lofuðum okkur hvað við vorum
hamingjusöm af því við ætluð-
um að gifta okkur og verða
gömul saman. Eins þegar þú
varðst ólétt, hvað við urðum
spennt að verða þessi litla fal-
lega fjölskylda sem okkur-
dreymdi um að verða. Svo kom
litli engillinn okkar i heiminn,
smá veikur en a sama tíma svo
fallegur og við urðum svo
montnir og stoltir foreldrar
Mikaels Mána.
Svo kom fíknin og bankaði
upp á hjá mér og náði tökum á
mér aftur og þú varðst að fara
með Mikka litla til foreldra
þinna. Ég man hvað ég varð
niðurbrotinn og neyslan heltók
mig, ógeðs sjúkdómur sem við
berum. En svo fórum við að
hittast aðeins aftur þegar þú
dast í það ástin mín, mér fannst
ég alltaf verða að passa stelp-
una mína. Þótt leiðir okkar hafi
skilið um tíma vissum við alltaf
að við elskuðum hvort annað,
engillinn minn.
Svo kom að því að ég fór inn
á Krýsuvík, og þú áttir að fara í
meðferð daginn eftir og við ætl-
uðum að verða edrú og reyna
aftur sem lítil fjölskylda. En
fíknin varð sterkari og í þetta
skiptið hjá þér, en samt hélt ég
alltaf í vonina að þú mundir
komast aftur í meðferð og í
bata og að við myndum samein-
ast aftur, ég, þú og Mikki litli.
En þessi ógeðslegi sjúkdómur
vann í lífi þínu eins óraunveru-
legt og það er. En það sem
hjálpar mér er að ég trúi því að
þú sért komin á góðan og fal-
legan stað þar sem þér líður vel
og þú ert laus úr fangelsi fíkn-
arinnar og brosir niður til okk-
ar og verndar okkur öll sem
elskum þig. Ég og yndislega
fjölskyldan þín munum hugsa
vel um gullið okkar, og ég geri
þig stolta af mér. Minning þín
lifir í hjarta mér og í syni okk-
ar ástin mín. Þú átt stóran part
í hjarta mínu. Elska þig alltaf,
hvíldu í friði fallegasti engill a
himnum. Þinn
Birgir.
Elsku Kara mín, ég á svo
erfitt með að trúa því að þú
sért farin frá okkur.
Þú varst einstakur persónu-
leiki, brosið og augun þín voru
svo skínadi falleg. Þú komst
manni alltaf til að hlæja og
brosa, án þín verður lífið skrýt-
ið fyrir okkur sem eftir sitjum.
Ég man alla góðu tímana þar
sem við horfðum á fyndin
myndbönd á netinu og hlógum
og hlógum, við áttum sérstakan
húmor okkar á milli.
Ég er svo þakklát fyrir alla
góðu tímana sem við fengum að
eiga saman. Ég man að okkur
þótti alltaf svo undarlegt að við
hefðum verið svo heppnar að fá
að vera óléttar á sama tíma og
eignast gullin okkar með
þriggja daga millibili.
Þó tíminn hafi verið stuttur
eru svo ótalmargar minningar
sem ég mun varðveita í hjarta
mínu alla tíð.
Guð geymi þig, elsku gullið
mitt.
Hvíl í friði, gullið mitt.
Guð þig í sinn faðm mun taka,
halda fast og varðveita.
Ljós þitt skín á jörðu hér
og allir eftir þér taka
Hvíldu rótt, elsku blómarós.
Þín vinkona,
Guðbjörg Ýr
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699-8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Heilsárshús
Glæsileg heilsárshús
Stór sem smá heilsárshús,
framleitt eftir ósk kaupanda.
Efnismikil hús með stóru svefn-
lofti, teikning af 64fm + loft, 74fm
+ loft, 84fm + loft. Vönduð vinna,
vanir menn. Erum á Suðurlandi.
Haraldur Húsasmíðameistari.
Sími 894 0048.
halli@hatak.is
Til leigu
Íbúð óskast sem fyrst
Reglusöm hjón á besta aldri
óska eftir 2ja - 3ja herbergja íbúð
til leigu sem fyrst í Reykjavík,
helst miðsvæðis.
Skilvísum greiðslum heitið og
góðri umgengni.
Áhugasamir sendi fyrirspurn á
box@mbl.is merkt: ,,Í-25765”
Smáauglýsingar
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Gerður, móðir
leikfélaga okkar
bræðranna í næsta
húsi í Kópavogi á
árunum kringum
1965, er látin.
Gerður var þá umboðsmaður
Morgunblaðsins; en ekki varð
ég þó blaðburðarstrákur henn-
ar!
Síðast hitti ég hana í erfi-
drykkjunni eftir son hennar;
jafnaldra minn; sem dó langt
fyrir aldur fram; á öndverðum
sjötugsaldri. Var það í hitteð-
fyrra? Þá náði ég yfirsýn yfir
þennan stóra barnahóp; og sá að
það hafði reynst kraftmikill
hópur. Þetta fólk sem hafði sest
að hjá okkur frá vestlægu út-
skerjunum, og talaði kjarnmikla
vestfirsku, hafði orðið að dæmi-
gerðri þéttbýlisfjölskyldu; með
margskonar menntun, búsetu
og lífsgæðanálgun. Nú síðast
hefur t.d. ein dóttirin náð að
vekja athygli þjóðarinnar sem
yfirdýralæknirinn!
Tíminn líður: Nú síðast hef ég
verið að hugsa, að ekki einungis
foreldrar okkar kynslóðar eru
flestir dánir, heldur einnig flest-
Gerður
Sturlaugsdóttir
✝ Gerður Stur-laugsdóttir
fæddist 13. janúar
1928. Hún lést 12.
júlí 2014. Útför
Gerðar fór fram 21.
júlí 2014.
ir þeir sem þekktu
þá sem fullorðnar
manneskjur. Og
eftir stöndum við,
sem þekktum for-
eldra okkar einkum
út frá sjónarmiði
barnsins.
Gerður var um
langt árabil leigu-
bílstjóri í Kópavogi.
En um einn slíkan
orti ég ljóð, sem
mér finnst nú að beri með sér
hugblæ bæjarins á þessum ár-
um. Vil ég því kveðja hana með
því að birta kafla úr því hér. En
þar segi ég meðal annars:
Keyrði inn til Reykjavíkur
yfir leiruvöð Suðurlands
á nýlegum hermannatrukki.
Gerðist síðan landnemi í Kópavogi
og gerði þaðan lengi út
eina af fínustu drossíunum
(jafnvel bæjarstjórinn sjálfur
þekkti númerið hans í bakspeglinum).
Grandvar fulltrúi Lýðveldis-
kynslóðarinnar
kom hann upp barnahópi fríðum;
og orti ferskeytlur af sjálfum sér
er hann keppti við sólarhringinn
á rykugum þjóðvegum landsins
í leit sinni að íslenska draumnum:
– Með hægri fótinn á bensíninu
malaði hann sitt svartagull
- Átthagamórarnir í aftursætinu
tóku þó stundum undir.
Tryggvi V. Líndal.
Það var sól og
sumar og ég var
nýflutt til Vest-
mannaeyja.
Ég var í göngu-
ferð með vinkonu minni og við
tókum á okkur krók til að
klappa hestum í gerði heima
við fallegt hús ofan við byggð-
ina. Þar varð fyrir okkur mað-
ur, að smyrja heyvinnuvélar –
og mér fannst eitthvað svo
sjálfsagt að stoppa og kynna
mig, sem nýja nágrannann neð-
an við túnið. Það reyndist vera
ein af mínum bestu ákvörðun-
um í lífinu. Gunnar, bóndi í
Lukku, bauð okkur í reiðtúr um
eyjuna, spjallaði og sagði sögur
og tók okkur, í stuttu máli, af
sinni endalausu alúð og gest-
risni. Nokkrum dögum seinna
Gunnar Árnason
✝ Gunnar Árna-son fæddist 13.
desember 1945.
Hann lést 21. sept-
ember 2014. Gunn-
ar var jarðsunginn
4. október 2014.
komst ég í heyskap
með honum og fjöl-
skyldunni, útreið-
artúrarnir urðu
fleiri og ekki
minnkaði gleðin
þegar kom að rollu-
stússinu, ferðum í
Elliðaey og Álsey,
smölun og rúningi.
Við María mín
áttum ótal dýrðar-
daga í boði Gunn-
ars við allskonar verkefni. Það
voru útreiðartúrar í veðurblíð-
unni, snatt í kringum fé og
hesta á veturna, skoðunarferðir
í æðarvarpið, heyskapur og
ferðirnar í úteyjarnar. Í þess-
um félagsskap var alveg sama
við hvað átti að fást – það var
alveg gulltryggt að dagurinn
yrði skemmtilegur bæði fyrir
börn og fullorðna.
Það var einstakt að fylgjast
með Gunnari í umgengni við
börn og unglinga.
Hann naut sín í félagsskap
þeirra og var einstaklega nat-
inn við að efla sjálfstraust
þeirra í þeim verkefnum sem
lágu fyrir, hvort sem það var að
ráða við nýjan hest eða líta eft-
ir lambfé á sauðburðinum.
Honum fannst heldur ekkert
tiltökumál að hætta við ferð í
Elliðaey á miðri leið, þegar í
ljós kom að einum af yngri liðs-
mönnunum leist ekkert á öld-
urnar, sem voru óvenjuháar í
þessari ferð. Bátnum var bara
snúið við og fundið verkefni
fyrir mannskapinn, suður á
eyju, í staðinn. Dagurinn átti
vissulega að nýtast en meira
var um vert að allir gætu notið
hans.
Elsku Gunnar – við María
þökkum fyrir allt og allt! Fyrir
umhyggjuna og áhugann sem
þú sýndir okkur nýbúunum,
fyrir glettnina og góðmennsk-
una og fyrir alla góðu dagana
sem við áttum saman. Takk –
fyrir að vera vinur okkar!
Elsku Stína, Daníel, Ásta og
þið öll, við María sendum ykkur
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur, þaðan sem við sitjum
með kökk í hálsinum, en hug-
ann fullan af hlýjum og ómet-
anlegum minningum.
Fanney
Ásgeirsdóttir.
Kær vinur fall-
inn frá, minnumst
hans á þessa leið.
Yfir sporin grasið
grær,
grund í hjarta dals,
fannst mér oft sem ferskur blær
fylgdi komu Vals.
Erfiðar stundir átti hann,
einnig von og drauma,
mörg þó gleði verkin vann,
vakti ljúfa strauma.
(SS)
Valur Óskarsson
✝ Valur Ósk-arsson fæddist
19. janúar 1946.
Hann lést 18. sept-
ember 2014. Útför
Vals fór fram 29.
september 2014.
Gítarspilið gleðin tær,
gáska blandin öllum
nær,
Valur ávallt feikna fær,
fróður, sannur vinur
kær.
Þú með þína léttu
lund,
ljúft og vert að muna,
brandarana bestu
stund
bættu tilveruna.
(SE)
Þökkum innilega allar sam-
verustundirnar. Vottum Ásdísi,
Jóhönnu, Evu, Braga Þór og fjöl-
skyldum, öðrum ættingjum og
vinum innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Sigurbjörg
og Sveinn.
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann