Morgunblaðið - 27.10.2014, Side 1
Verkfall hafið
» Læknar hófu verkfalls-
aðgerðir á miðnætti.
» Bráðaþjónusta tryggð.
» Ekki bjartsýnn á að samn-
ingar náist á næstu dögum.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Við munum tryggja öryggi sjúklinga
meðan á verkfallinu stendur og skipu-
leggjum vinnuna þannig að neyðar-
þjónusta verði veitt,“ segir Ólafur
Baldursson, framkvæmdastjóri lækn-
inga á Landspítalanum, en á miðnætti
hófust verkfallsaðgerðir lækna. Þær
eru tímabundnar og munu hefjast á
ólíkum tímum eftir hópum. Í dag
lögðu læknar niður störf á heilsu-
gæslum á höfuðborgarsvæðinu sem
og víðar á landsbyggðinni annars veg-
ar og á rannsóknarsviði og kvenna- og
barnasviði á LSH hins vegar.
Um 300 læknar munu starfa á und-
anþágu, fyrst og fremst við það að
tryggja bráðaþjónustu. Síðasti samn-
ingafundur var á fimmtudag.
„Við getum í raun ekki skipulagt
okkur nema um örfáa daga í senn. Við
getum í raun lítið annað en vonað að
deiluaðilar, þ.e. ríkið og læknafélagið,
leysi málið,“ segir Ólafur.
Boðað hefur verið til kjarafundar í
dag klukkan 16. Þorbjörn Jónsson,
formaður Læknafélags Íslands, seg-
ist „ekkert sérstaklega bjartsýnn“ á
að samningar náist á næstu dögum.
Áhersla á neyðarþjónustu
Verkfallsaðgerðir lækna hófust á miðnætti Tímabundnar aðgerðir sem ná til
ólíkra hópa á ólíkum tímum Byrjar á heilsugæslum og tveimur deildum á LSH
M„Höfum verulegar áhyggjur“ »4
M Á N U D A G U R 2 7. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 251. tölublað 102. árgangur
HÖNNUÐU
EFTIRLÍKINGAR AF
FRÆGUM HÚSUM
ÍSLENSKAR
OG PÓLSKAR
BÓKMENNTIR
INNRA MEÐ HENNI
BÝR KRAFT-
MIKILL HRAFN
LESTRARHÁTÍÐ 26 HVETJANDI UMHVERFI 10AGNARSMÁAR BYGGINGAR 12
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við veiðar LÍÚ og SF sameinast í SFS.
Landssamband íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ) mun næstkomandi
föstudag heyra sögunni til þegar
það sameinast Samtökum fisk-
vinnslustöðva (SF) undir heitinu
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
(SFS). Þetta staðfesti Karen Kjart-
ansdóttir, upplýsingafulltrúi LÍÚ, í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Að sögn hennar er stefnt að því
að fulltrúar félaganna beggja hitt-
ist fyrir hádegi næstkomandi föstu-
dag til þess að kjósa hina nýju
stjórn SFS. „Þá verða formaður,
fulltrúar í framkvæmdaráð og
stjórn kosin. Svo verður þetta
kynnt,“ segir Karen.
LÍÚ og SF mynda
Samtök fyrirtækja í
sjávarútvegi (SFS)
Morgunblaðið/Golli
Setning Biskup Íslands, Agnes
M. Sigurðardóttir, flutti ávarp.
Magnús E. Kristjánsson, forseti
Kirkjuþings, gagnrýndi stjórnvöld í
upphafsræðu sinni við setningu
Kirkjuþings um helgina.
„Með nýrri ríkisstjórn vonuðum
við að málstað kirkjunnar væri sýnd-
ur meiri skilningur,“ sagði hann og
kvað í framhaldi aðferðir fjár-
málaráðuneytisins ekki geðfelldar.
Auk fjármála Þjóðkirkjunnar var
skýrsla kirkjuráðs rædd og kosið var
í embætti. Framtíð Þjóðkirkjunnar
var einnig til umræðu og kvað Magn-
ús hana þurfa að takast á við breyt-
ingar. »6
Þörf á breytingum
Fjármál Þjóðkirkjunnar í brennidepli
Frændurnir Haukur Leó og Svavar Óli gáfu sér
góðan tíma til þess að stilla sér upp fyrir ljós-
myndara Morgunblaðsins þegar sá mætti þeim á
Klambratúni í Reykjavík. Voru kapparnir, sem
virðast vel meðvitaðir um mikilvægi hjálmanotk-
unar á hjólum, að njóta vetrarblíðunnar og
þöndu þeir fáka sína af miklum móð. Áfram má
búast við fremur björtu en köldu veðri á höf-
uðborgarsvæðinu næstu daga.
Frændur þöndu fáka sína á Klambratúni í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
Tveir guttar í ævintýraferð í höfuðborginni
Af 123 evr-
ópskum bönkum
náðu 25 ekki að
fullnægja kröf-
um álagsprófs
Evrópsku
bankaeftirlits-
stofnunarinnar.
Helmingur bank-
anna sem féllu hefur bætt stöðu sína
frá áramótum og stæðist prófið í
dag. Ítalskir bankar stóðu sig áber-
andi illa og Monte dei Paschi stóð sig
verst. »14
Fimmtungur banka
féll á álagsprófi
Fyrir f lottan málstað
er bleikur miði
hugsaðu um heilsuna
200KR.
húð, bein og l iði .
www.gulimidinn.is
Rétt fyrir klukkan fimm í gærdag
mældist brennisteinsdíoxíð 5,5 ppm,
eða yfir 14000 míkrógrömm á rúm-
metra, í Höfn á Hornafirði. Þetta er
skilgreint sem hættuástand að sögn
loftgaedi.is. Styrkurinn fór upp í
18.500 míkrógrömm á rúmmetra kl.
18 í gær en hefur ekki farið hærra
síðan þá. Þetta eru afar há gildi og
ljóst þykir að staðan verði síst skárri
í dag. Búið er að senda út tilmæli til
foreldra barna í grunn- og leikskóla
um að keyra börn sín í skólann á
morgun. Fólk er almennt beðið um
að halda sig innandyra meðan
ástandið er
óbreytt og ljóst er
að lítil starfsemi
mun fara fram ut-
andyra. Mengunin
frá eldgosinu á
Holuhrauni mun
því raska tölu-
verðu á þessu
svæði.
Íbúar á svæðinu sem Morgunblað-
ið hefur rætt við segjast finna fyrir
höfuðverk, særindum í hálsi og
óbragði í munni vegna gosmengun-
arinnar. »2
Fór yfir hættumörk
Héldu sig inni vegna gosmengunar