Morgunblaðið - 27.10.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta er ákaflega flókið mál og
menn treystu sér ekki til þess að
setja niður tiltekin viðmið,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands, en á þingi Al-
þýðusambandsins, sem lauk síðast-
liðinn föstudag, voru launakjör
stjórnenda fyrirtækja til umræðu.
Í einni af þeim sjö ályktunum sem
samþykktar voru á þinginu kemur
fram að lífeyrissjóðir launafólks séu
stórir eigendur í fjölmörgum fyrir-
tækjum og að sjóðir geti tekið
ákvörðun um að „fjárfesta ekki í
fyrirtækjum þar sem laun æðstu
stjórnenda eru það há að þau mis-
bjóði siðferðisvitund alls almenn-
ings“.
Spurður hvort krafa hafi komið
upp á þinginu þess efnis að sett yrðu
fram töluleg viðmið fyrir launakjör
stjórnenda fyrirtækja kveður Gylfi
nei við. „Menn óttuðust það að ef
sett yrði upp tiltekið viðmið þá gæti
það virkað sem tilefni hjá mörgum
til að hækka upp í það,“ segir hann
og bætir við að mál þetta verði
áfram til skoðunar hjá Alþýðusam-
bandinu. „Það er alveg ljóst að þetta
er komið upp að einhverjum þol-
mörkum sem fólki finnst vera há.“
Grundvöllur að reiði og ólgu
Lögð er áhersla á í sömu ályktun
að „lífeyrissjóðir yfirfari og skerpi á
eigendastefnum sínum þannig að
sjóðirnir verði betur í stakk búnir til
að bregðast við ofurlaunum æðstu
stjórnenda fyrirtækja“. Aðspurður
segir Gylfi ályktun þessa draga
fram skýra afstöðu verkalýðshreyf-
ingarinnar til þess sem hann kallar
lítt rökstudd ofurlaun. „Stjórnir og
stjórnendur fyrirtækja verða einnig
að átta sig á því að með þessu hátta-
lagi sínu eru þau að skapa grundvöll
að reiði og ólgu. Ef ekki verður
fundin leið til þess að gera þetta
með meiri sátt þá mun það koma í
bakið á fyrirtækjunum,“ segir Gylfi.
Í annarri ályktun sambandsins,
um uppbyggingu kaupmáttar til
framtíðar, kemur m.a. fram að „sá
kaupmáttur sem samið er um í
kjarasamningum verði varinn, t.d.
með rauðum strikum“.
Þorsteinn Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir vel hafa tekist að und-
anförnu að byggja upp kaupmátt á
grundvelli lágrar verðbólgu. „Það
sem skiptir nú mestu máli er að
verja þennan stöðugleika sem náðst
hefur. Verkföll og launakröfur sem
hleypa munu af stað verðbólgu
koma ekki til með að hjálpa okkur,“
segir Þorsteinn og bætir við að nú
sé þörf á víðtækri samstöðu um
næstu skref.
Ekkert þak sett á launakjör
Gylfi
Arnbjörnsson
Þorsteinn
Víglundsson
Ekki voru sett tiltekin viðmið fyrir launakjör stjórnenda fyrirtækja á þingi
Alþýðusambands Íslands „Þetta er ákaflega flókið mál,“ segir forseti ASÍ
Hið árlega skákmót Æskan og ellin fór fram um helgina í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur en þar tefldu skákmenn yngri en fimmtán ára við
skákmenn eldri en sextíu ára. Alls voru þátttakendur hátt í hundrað en sig-
urvegari að þessu sinni var úr liði ellinnar, Bragi Halldórsson, en hann fór
einnig með sigur af hólmi í fyrra. Bragi hlaut 7½ vinning og varð jafn Guð-
finni R. Kjartanssyni að vinningum en ofar að stigum. davidmar@mbl.is
Æskan mætir ellinni við skákborðið
Morgunblaðið/Golli
Skákmótið Æskan og ellin fór fram um helgina þar sem Bragi Halldórsson sigraði
Guðlaugur Þór
Þórðarson al-
þingismaður ætl-
ar að bjóða sig
fram í embætti
ritara Sjálfstæð-
isflokksins.
Flokksráð Sjálf-
stæðisflokksins
kemur saman
næstkomandi
laugardag. Þá á
að kjósa til embættis ritara en mið-
stjórnin samþykkti skipulagsbreyt-
ingarnar með miklum meirihluta
og er því búist við að þær verði
samþykktar. „Ritari mun bera sér-
staka ábyrgð gagnvart innra starfi
Sjálfstæðisflokksins. Í þrjá áratugi
hef ég unnið með öflugri grasrót
Sjálfstæðisflokksins um land allt
sem formaður ungs sjálfstæðisfólks
í Borgarnesi og á Akureyri, for-
maður Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, varabæjarfulltrúi í Borg-
arnesi og borgarfulltrúi í
Reykjavík, þingmaður og ráð-
herra,“ segir Guðlaugur, sem telur
mikilvægt að virkja krafta allra
þeirra sem vilja leggja hönd á plóg í
flokksstarfinu.
Býður sig
fram til
ritara
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Kosið á laugardag
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Gasmengun frá eldgosinu í Holu-
hrauni mældist töluverð á Höfn í
Hornafirði og nágrenni í gær. Á milli
9.000 og 21.000 míkrógrömm á rúm-
metra mældust í bænum og eru það
hæstu gildi sem mælst hafa í byggð
að sögn Víðis Reynissonar, deildar-
stjóra Almannavarna. „Mengunin
gæti minnkað aðeins á svæðinu í
kvöld og í nótt en svo er búist við því
að hún komi aftur á morgun, mánu-
dag,“ segir Víðir en hann bendir fólki
á að hafa samband við lækni ef það
finnur fyrir óþægindum í öndunar-
vegi. „Þeir sem eru veikir fyrir, t.d.
með astma, verða að passa upp á að
taka lyfin sín samkvæmt ráðlegging-
um lækna.“
Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri
sveitarfélagsins Hornafjarðar, segir
að fylgst sé með menguninni í bænum
og brugðist við líkt og annars staðar
þar sem gosmengunin hafi gengið yf-
ir. „Fólk heldur sig inni og hækkar í
ofnum og fylgir almennt leiðbeining-
um sem finna má t.d. á vef Umhverf-
isstofnunar.“ Ástandið í bænum í gær
sagði Björn helst minna á góða þoku
og að mistur hefði sést í um 150 til 200
metra fjarlægð. „Mengunin liggur yf-
ir bænum eins og blá þoka.“
Íbúar finna fyrir óþægindum
Hulda Laxdal Hauksdóttir, annar
skólastjóri grunnskólans á Horna-
firði, segir skólastarf hafa raskast lít-
illega vegna mengunarinnar. „Við
sendum börnin ekki út í frímínútur
þegar mengunin er mikil og skóla-
sund hefur verið fellt niður. Að öðru
leit hefur skólastarf gengið sinn
vanagang.“ Hún segir þó að finna
megi fyrir áhrifum mengunarinnar
þegar hún er mikil. „Höfuðverkur og
sviði í hálsinum leggst á marga og síð-
an má finna óbragð í munninum sem
erfitt er að lýsa.“
Íbúar virðast vel upplýstir um
mengunina og segir Hulda að börnin í
skólanum séu meðvituð um ástandið
og dugleg að nota buff eða annan
búnað þegar farið er milli skólabygg-
inga, t.d. í íþróttahúsið.
Þegar styrkur á brennisteinsdíox-
íði mælist yfir 14.000 míkrógrömm-
um á rúmmetra er ástandið skilgreint
sem hættuástand samkvæmt loft-
gaedi.is. Fólki er því ráðlagt að halda
sig inni, loka gluggum og slökkva á
loftræstingu.
Gífurleg gosmengun mælist á Höfn
Á milli 9000 og 21000 míkrógrömm á rúmmetra mældust á Höfn í Hornafirði Mengunin liggur yfir
bænum eins og blá þoka Höfuðverkur, sviði í hálsi og óbragð í munni vegna mikillar mengunar
Kort/Veðurstofan
Mengun Gasdreifingarspá Veðurstofunnar fyrir hádegi í dag.
Rjúpnaveiði-
tímabilið hófst á
föstudaginn en
heimilt er að
veiða í samtals
tólf daga sem
skiptast á fjórar
þriggja daga
helgar fram til
16. nóvember.
Veiðarnar hafa farið vel af stað og
engin óhöpp verið tilkynnt enn.
Lögreglan sér um eftirlit með veið-
unum og var farið í eftirlitsflug
með Landhelgisgæslunni á laug-
ardaginn í kringum Kjöl og nær-
liggjandi svæði. Búnaður og veiði-
leyfi voru skoðuð hjá nokkrum
veiðimönnum og reyndist allt vera
samkvæmt ströngustu kröfum.
Náttúrufræðistofnun metur
veiðiþol rjúpnastofnsins 48.000
rjúpur. Umhverfisstofnun telur að
veiðin í ár verði í samræmi við
veiðiþolsmatið þar sem það er um
10% af áætluðum veiðistofni.
Rjúpnaveiðin fór vel
af stað um helgina