Morgunblaðið - 27.10.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Barcelona
Frá kr.74.900
14. nóvember í 3 nætur
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
SÉ
RT
ILB
OÐ
Netverð á mann frá kr. 74.900 á Hotel Pere IV m.v. 2 í herbergi.
Fjölmargar ályktanir hafa komið fram þar sem lýst er
áhyggjum af afleiðingum verkfallsins. Meðal annars frá
Félagi eldri borgara þar sem skorað er á stjórnvöld að
bæta stöðu lækna. „Við skorum á stjórnvöld að koma í
veg fyrir enn meiri skaða en nú stefnir í og veita meira
fjármagn inn í heilbrigðiskerfið. Við treystum því að
stjórnvöld grípi nú þegar til aðgerða til að koma í veg
fyrir verkfall lækna, sem myndi rýra traust sjúklinga á
heilbrigðiskerfinu enn frekar en orðið er og biðlistar
lengjast enn meira,“ segir í tilkynningunni.
Stjórn Félags almennra lækna birti einnig ályktun um
helgina þar sem áréttað er „að neyðarmönnun lækna í
verkfalli sé í sumum tilvikum allt að þreföld sú mönnun
sem er við lýði dags daglega og telur þetta endurspegla
skilningsleysi stjórnvalda á þeim raunveruleika sem
heilbrigðisstofnanir og sjúklingar standa frammi fyrir.
Starfsumhverfið er fámennt og álag á marga lækna
langt fram yfir öryggismörk. Stjórn FAL hefur þungar
áhyggjur af framtíð íslensks heilbrigðiskerfis ef kjör
lækna verða ekki bætt“, segir í ályktuninni.
Vilja aðgerðir stjórnvalda
Morgunblaðið/RAX
Ályktanir Fjölmargar ályktanir hafa komið fram vegna
verkfallsaðgerða lækna. Skorað er á stjórnvöld.
Neyðarmönnun þreföld
sú sem er dags daglega
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Verkfallsaðgerðir lækna hófust á
miðnætti. Á níunda hundrað lækna
samþykktu verkfallsboðun. Flestir
læknanna munu leggja niður störf
tímabundið en verkfallsaðgerðir ná
til ólíkra hópa á ólíkum tímum til
a.m.k. 11. desember ef miðað er við
verkfallsáætlun eins og hún er nú.
Um þrjú hundruð læknar munu
starfa á undanþágu og er þeirra hlut-
verk að sinna allra brýnustu þjónust-
unni.
Mikil óvissa
Í dag og á morgun mun verkfallið
annars vegar ná til lækna á heilsu-
gæslustöðvum á höfuðborgarsvæð-
inu og víða á landsbyggðinni og hins
vegar á rannsóknarsviði og kvenna-
og barnasviði Landspítalans (LSH).
Ólafur Baldursson, framkvæmda-
stjóri lækninga á LSH, segir verk-
fallið skapa mikla óvissu í starfsemi
spítalans. „Það hefur aldrei verið
farið í svona verkfall áður. Það geng-
ur einfaldlega ekki upp að hafa
lækna ekki að störfum. Starfsemi
okkar er þess eðlis. Við höfum reynt
að undirbúa okkur eftir bestu getu,
farið yfir undanþágulistana og sent
upplýsingar til stjórnenda okkar.
Við í framkvæmdastjórninni munum
hittast daglega til að fara yfir stöð-
una meðan á verkfallinu stendur og
komum til með að leggja áherslu á
það að upplýsingaflæði verði sem
best. Samhliða hvetjum við fólk, og
sérstaklega þá sem eiga bókaða
tíma, til að fylgjast vel með verkfalls-
aðgerðum á spítalanum,“ segir Ólaf-
ur.
Geir Gunnlaugsson landlæknir
segir segir að óskað hafi verið eftir
upplýsingum um viðbragðsáætlanir
hjá öllum heilbrigðisstofnunum í
landinu. „Við óskuðum eftir mati á
því hvernig aðstæður gætu orðið. Við
höfum tekið við fjölmörgum gögnum
síðustu daga en enn á eftir að fara yf-
ir heildaryfirlitið. Einnig höfum við
verið í sambandi við Læknafélag Ís-
lands um þeirra undirbúning og
áætlanir. Við erum bara í viðbragðs-
stöðu og höfum verulegar áhyggjur
af þessu,“ segir Geir.
Einn á hverri heilsugæslustöð
Að sögn Svanhvítar Jakobsdóttur,
forstjóra heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, verður einn starfandi yf-
irlæknir á hverri heilsugæslustöð.
Verður hlutverk læknanna að sinna
allra nauðsynlegustu þjónustunni.
Allir bókaðir tímar falla niður. „Öll
starfsemi mun lamast,“ segir Svan-
hvít. Hún segir að einingis hafi feng-
ist undanþága fyrir einn yfirlækni á
hverri heilsugæslustöð og ekkert sé
hægt að gera umfram það. Það verði
í höndum hvers læknis að meta það
hvenær hann muni sinna sjúkling-
um. „Það gæti snúið að lyfjaendur-
nýjun eða bráðum veikindum sem
sinna þarf. Að venju verður dagvakt
hjúkrunarfræðings en svo verður
það metið með yfirlækni hvaða til-
vikum er sinnt,“ segir Svanhvít.
„Höfum verulegar áhyggjur“
Verkfallsaðgerðir lækna hafnar Leggja tímabundið niður störf á ólíkum tímum „Öll starfsemi
mun lamast,“ segir forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis Tveimur deildum lokað á LSH
Morgunblaðið/Ómar
Neyðarþjónusta Verkfallsaðgerðir lækna hófust á miðnætti í gær. Um 300 læknar munu starfa á undanþágum.
Meðal annars verður allri neyðaraðstoð sinnt og fyrir vikið verða engar verkfallsaðgerðir á bráðamóttöku.
Verkfall
» Verkfallsaðgerðir lækna
hafnar.
» Á níuna hundrað læknar
samþykktu verkfallsboðun.
» Mikil óvissa í starfsemi LSH.
» Fyrsta verkfall lækna síðan
þeir fengu verkfallsrétt.
» Heilsugæslan lamast.
„Það er grunnatriði í öllu kerfinu að
öllum bráðatilfellum sem ekki geta
beðið ber að sinna,“ segir Þorbjörn
Jónsson, formaður Læknafélags Ís-
lands. Hann segir sjúklinga geta bú-
ist við óþægindum vegna verkfalls-
ins en fullyrðir að öryggi þeirra verði
tryggt. Síðasta samningafundi
Læknafélags Íslands og samninga-
nefndar ríkisins, sem fór fram á
fimmtudag, lauk án niðurstöðu. Að-
spurður segir Þorbjörn erfitt að full-
yrða um framhald samningaferlis-
ins, en segist „ekkert sérstaklega
bjartsýnn á það“ að samningar náist
á næstu dögum.
Auk þess sem heilsugæslur á höf-
uðborgarsvæðinu munu hefja verk-
fall í dag verða störf einnig lögð nið-
ur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Heil-
brigðisstofnun Norðurlands, Heil-
brigðisstofnun Austurlands, Heil-
brigðisstofnun Suðurlands og
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Að
sögn Þorbjarnar verður einn yfir-
læknir starfandi á dagvinnutíma á
hverri heilsugæslu og heilbrigðis-
stofnun. Að sögn hans verður svipað
fyrirkomulag á rannsóknarsviði og
kvenna- og barnasviði Landspítala.
„Þar gildir það sama og á heilsu-
gæslunum. Þar er tiltekinn fjöldi,
þar með taldir yfirlæknar, sem er á
undanþágulista og þeir sinna því í
dagvinnu sem má telja brýnt.“
„Ekkert sérstak-
lega bjartsýnn“
Einn yfirlæknir á vakt á hverjum stað
Tuttugu og fimm börnum og fjölskyldum þeirra, sam-
tals um 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðn-
um Vildarbörnum Icelandair í fyrradag. Markmið
sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum
þeirra og systkinum tækifæri til þess að fara í drauma-
ferð sem þau ættu annars ekki kost á.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggist á hug-
myndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar
Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú
stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur
um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum
sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur veikra
barna með ýmsum hætti.
Alls hefur 471 fjölskylda notið stuðnings sjóðsins frá
stofnun hans fyrir ellefu árum og úthlutunin nú var sú
23. í röðinni.
Úthlutað úr sjóði Vildarbarna Icelandair í 23. skiptið
150 manns fá tækifæri til draumaferða