Morgunblaðið - 27.10.2014, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Sjóðfélagafundur
28. október 2014
Dagskrá fundarins:
1. Starfsemi og staða Gildis
2. Samrunasamningur Gildis og Lífeyrissjóðs
Vestfirðinga kynntur
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
lífeyrissjóður
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs.
Kynningarfundur verður haldinn fyrir sjóðfélaga
Gildis-lífeyrissjóðs þriðjudaginn 28. október nk.
kl. 17.00 á Grand Hótel, Reykjavík.
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Auðvitað eru einhverjar áhyggjur
af fjárhagsstöðu Þjóðkirkjunnar
sökum niðurskurðar og tekjusam-
dráttar. Það litar umræðuna að ein-
hverju leyti,“ segir Magnús E.
Kristjánsson, forseti Kirkjuþings
2014, sem sett var í 51. skiptið síð-
astliðinn laugardag í Grensáskirkju.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Ís-
lands, og Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, innanríkisráðherra, fluttu
ávörp auk Magnúsar en í upphafs-
ræðu sinni við þingsetninguna
gagnrýndi hann meðal annars rík-
isvaldið fyrir að vera erfitt í sam-
skiptum varðandi fjármál. Hann
nefndi einnig til sögunnar aðferðir í
fjármálaráðuneytinu þar sem brúk-
aðar væru æfingar með vísitölu til
að draga úr leiðréttingu sem ráð-
herra hafði gefið vilyrði um. Magnús
kvað þær einkar óviðfelldnar.
Ríkisstjórnir gagnrýndar
Ýmis málefni eru þó á þingmála-
skrá að þessu sinni, þar á meðal
skýrsla um fjármál Þjóðkirkjunnar
og skýrsla kirkjuráðs.
„Skýrsla kirkjuráðs var til um-
ræðu og voru yfir þrjátíu ræður
fluttar. Eins og gengur og gerist
þegar fólk kemur saman þá ríkir
sátt um sum mál á meðan menn eru
ósammála um önnur. Skýrsla
kirkjuráðs og fjármál þjóðkirkjunn-
ar eru náttúrlega viðamikil mál og
eru einatt númer eitt og tvö á
kirkjuþingum sem þessum,“ segir
hann.
Þess má geta að séra Gísli Jón-
asson steig í pontu og benti á að fjár-
framlög til Þjóðkirkjunnar væru að
krónutölu 5,7% lægri í ár en árið
2008. Séra Leifur Ragnar Jónsson
setti auk þess út á hugmyndir um að
nýta fé Þjóðkirkjunnar, sem væri af
skornum skammti, til að styrkja enn
frekar starf hennar erlendis þegar
kirkjustarf á landsbyggðinni væri
víða í molum.
Þingfulltrúar ræddu mikið um
Skálholt og rekstur þess en Magnús
segir þeirri umræðu ekki lokið.
„Skálholtsumræðan var undir
skýrslu kirkjuráðs og ýmislegt rætt.
Það mun síðan allt mótast í allsherj-
arnefnd og línur munu þá skýrast.
Það var auk þess kosið til embætta
upp á nýtt,“ bætir Magnús við en
nýtt kjörtímabil er nú að hefjast. Í
ræðu sinni við setninguna gagn-
rýndi Magnús stjórnvöld og sagði
hann illa vegið að Þjóðkirkjunni.
„Kjörtímabil síðasta kirkjuþings
einkenndist mjög af erfiðum sam-
skiptum við ríkisvaldið um fjármál.
Bæði á það við um greiðslur sem
byggja á svonefndu kirkjujarða-
samkomulagi og svo sóknargjöldin.
Það þekkja allir hér inni hve erfiður
tími þetta hefur verið og hve sorgleg
niðurstaða hefur orðið af viðræðum
við ríkisvaldið hvert einasta ár.
Stundum hafa jafnvel verið gefin
fyrirheit um að þessi mál verði löguð
en jafnan hefur verið minna um að
þau fyrirheit rættust,“ sagði hann í
ræðustóli og gagnrýndi jafnframt
aðferðir nýrrar ríkisstjórnar.
„Með nýrri ríkisstjórn vonuðum
við að málstað kirkjunnar væri
sýndur meiri skilningur. En jafnvel
þegar ráðherra kirkjumála hefur
tekið vel í að þessi mál verði sett í
sanngjarnan farveg þá fréttist af
tæknimönnum í fjármálaráðuneyt-
inu sem nota furðulegar æfingar
með vísitölu til að draga úr þeirri
leiðréttingu sem ráðherra hefur gef-
ið vilyrði um. Þessar aðferðir eru
ekki geðfelldar og samskipti eru
ekki hrein og bein þegar svona trix
eru brúkuð. Mér persónulega finnst
það ekki ríkisvaldinu sæmandi að
fara fram með þessum hætti,“ sagði
Magnús um samskipti Þjóðkirkj-
unnar við ríkisstjórnina.
„Meiri samkeppni um athygli“
„Þá er það með algjörum ólíkind-
um að ár eftir ár lendi fulltrúar
Þjóðkirkjunnar sem eru í þessum
samskiptum í rökræðum um það
hvort sóknargjöld trúfélaga séu fé-
lagsgjöld eða ekki. Sóknargjöldin
eru elstu félagsgjöld á Íslandi. Þótt
innheimta þeirra færi í þann farveg
sem nú er var það ekki hugmynd
löggjafans að leggja sóknargjöld
niður eða að hætta að tengja þau við
aðild félagsmanna að trúfélögum,“
sagði hann ennfremur.
Þá ræddi Magnús um framtíð og
stefnu Þjóðkirkjunnar og að hún
þyrfti að takast á við breytt sam-
félag líkt og aðrar stofnanir.
„Predikunarstóllinn var öflugt
samskiptatæki í margar aldir. Í
raun mikilvægur fjölmiðill í sóknar-
kirkjunni. Hér er því ekki haldið
fram að predikunarstóllinn sé ónýt-
ur en kurteisislega á það bent að það
er meiri samkeppni um athygli
fólksins en áður var og boðleiðirnar
sem bjóðast fleiri en nokkru sinni
fyrr,“ sagði hann máli sínu til stuðn-
ings.
Morgunblaðið/Golli
Ávörp Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, og Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, fluttu ávörp við setningu Kirkjuþings 2014.
„Ekki ríkisvaldinu sæmandi“
Kirkjuþing Þjóðkirkjunnar var sett í 51. skiptið um helgina í Grensáskirkju
Áhyggjur af fjárhagsstöðunni sökum niðurskurðar og tekjusamdráttar
Forseti Magnús E. Kristjánsson gegnir stöðu forseta Kirkjuþings 2014.
Ljóðabókin Tím-
inn og vatnið eft-
ir Stein Steinarr
er meðal þeirra
305 bóka sem
boðnar eru upp á
vefnum upp-
bod.is, en bók
þessi var á sín-
um tíma prentuð
í tvö hundruð
tölusettum ein-
tökum. Það eintak sem hér um
ræðir er hið 63. í röðinni og er það
áritað af höfundi. Á uppboðssíð-
unni segir að um sé að ræða „gott
eintak í vönduðu brúnu skinn-
bandi“.
Á uppboðinu má einnig finna
verk eftir höfundana Hannes Pét-
ursson, Þorstein frá Hamri, Krist-
ján frá Djúpalæk, Steinunni Sig-
urðardóttur, Jón frá Pálmholti,
Vilborgu Dagbjartsdóttur og Ein-
ar Braga. Óhætt er að segja að það
kennir margra grasa á uppboðinu
að þessu sinni en auk ljóðabóka má
finna mikið af frumútgáfum ís-
lenskra skáldsagna, bækur um ís-
lensk og norræn fræði, rímur og
riddarasögur svo fátt eitt sé nefnt.
Ljóð eftir
Stein Steinar
boðin upp
Ljóð Verkið er
áritað af höfundi.
Engin lausn er í sjónmáli í kjara-
deilu tónlistarkennara en rúmlega
500 tónlistarkennarar fóru í verkfall
á miðvikudaginn í síðustu viku. Sig-
rún Grendal Jóhannsdóttir, formað-
ur Félags tónlistarskólakennara,
segir tilboð sem lagt var fram á
fundi hjá ríkissáttasemjara á föstu-
daginn ekki vera viðunandi og enn
vanti nokkuð upp á til að tónlistar-
kennarar verði á sambærilegum
launum og aðrir kennarar í grunn-
skólum landsins. „Við fögnum
hverju skrefi sem færir okkur nær
því markmiði að laun tónlistarkenn-
ara verði sambærileg launum ann-
arra kennara. Tilboðið sem okkur
barst á föstudaginn var hins vegar
ekki ásættanlegt þar sem við teljum
að verið sé enn og aftur að breikka
bilið milli okkar
og annarra kenn-
ara í Kenn-
arasambandi Ís-
lands,“ segir
Sigrún.
Viðræðuáætlun
vegna kjara-
samninga við tón-
listarkennara var
undirrituð fyrir rúmum 10 mánuðum
síðan en frá þeim tíma hefur tekist
að semja við kennara og stjórnendur
í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Sigrún segir lítinn sáttavilja hafa
einkennt viðræðurnar við tónlistar-
kennara en í Félagi tónlistarkennara
eru hátt í 500 félagsmenn og óttast
Sigrún að verkfallið geti dregist á
langinn.
Funda hjá ríkissáttasemjara í dag
Enn langt í land hjá
tónlistarkennurum
Vignir Vatnar Stefánsson varð í
gær barna- og unglingameistari
Taflfélags Reykjavíkur eftir örugg-
an sigur á barna- og unglinga-
meistaramóti félagsins. Lagði hann
alla sjö andstæðinga sína að velli
og hlaut þannig fullt hús stiga.
Björn Hólm Birkisson hafnaði í
öðru sæti með sex sigra, en þrír
keppendur komu þar á eftir með
fimm.
Í stúlknaflokki hafði Freyja
Birkisdóttir sigur eftir aukakeppni
við Ylfu Ýri Welding Hákonardótt-
ur og Vigdísi Lilju Kristjánsdóttur
en þær hlutu allar fjóra vinninga af
fimm mögulegum. Keppendur voru
alls 38 og var skákstjórn í höndum
þeirra Torfa Leóssonar og Sig-
urlaugar R. Friðþjófsdóttur.
Lagði alla
andstæð-
inga sína
Meistarar Vignir Vatnar og Freyja.