Morgunblaðið - 27.10.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Það gerist ekki margt á Alþingiþessa dagana sem er í frásögur
færandi. Einkennilegur doði er yfir
störfum þess. Þó er eitt sem hægt
er að treysta á; embættismanna-
kerfið hér og í
Brussel sér þing-
mönnum fyrir því
mikilvæga verk-
efni að ýta reglu-
lega á já-takkann.
Þingmenn eruánægðir með þá þjónustu sem
þeir fá og telja augsýnilega að
regluverkið frá Brussel sé óaðfinn-
anlegt. Á fimmtudag afgreiddi Al-
þingi til að mynda fern lög sem eiga
uppruna sinn í borg skrifræðisins
og runnu svo að segja umræðulaust
í gegnum þingið.
Frumvörpin fjögur, sem sam-þykkt voru á fimmtudag, voru
til meðferðar í þinginu í rúman
mánuð og voru rædd þar í samtals
28 mínútur, sem nánast allar fóru í
framsöguræður.
Enginn þingmaður hafði efnis-legar athugasemdir fram að
færa um frumvörpin en einn kom
að stuttri athugasemd um full-
komið aukaatriði.
Sum EES-málin eru fullkomindella fyrir íslenskan löggjafa,
svo sem lagasetning um evrópsk
samstarfsráð í fyrirtækjum með yf-
ir 1000 starfsmenn, sem þingmenn
samþykktu einum rómi á fimmtu-
dag.
Önnur, eins og löggjöf um frjáls-an atvinnu- og búseturétt
launafólks innan EES, eru hins veg-
ar þýðingarmikil. Hvað sem mönn-
um finnst um þá löggjöf ætti hún að
vekja umræður á þingi ef þingmenn
litu á sig sem eitthvað annað og
meira en framlengingu á já-
takkanum.
Umræðulaus
lagasetning
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 26.10., kl. 18.00
Reykjavík 2 heiðskírt
Bolungarvík 1 snjókoma
Akureyri 0 skýjað
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 11 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Helsinki 7 þoka
Lúxemborg 13 heiðskírt
Brussel 15 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 12 skúrir
London 16 skýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 13 skýjað
Hamborg 12 skýjað
Berlín 12 skýjað
Vín 8 alskýjað
Moskva 0 skýjað
Algarve 22 léttskýjað
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 23 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 12 léttskýjað
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 10 skýjað
New York 15 alskýjað
Chicago 14 heiðskírt
Orlando 25 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:56 17:29
ÍSAFJÖRÐUR 9:11 17:23
SIGLUFJÖRÐUR 8:54 17:06
DJÚPIVOGUR 8:28 16:55
Ármúla 19 | S: 553-9595 | gahusgogn@gahusgogn.is | www.gahusgogn.is
GÁ húsgögn ehf. er traust fyrirtæki sem hefur verið á
íslenskum markaði um árabil. Við leggjum áherslu á
stílhrein, vönduð húsgögn og góða þjónustu.
Við tökum málin þín
í okkar hendur
Sérsmíðum fyrir heimili og fyrirtæki
Heildargreiðslur sveitarfélaga
vegna fjárhagsaðstoðar hafa aukist
verulega á síðustu árum. Í minnis-
blaði sem Samband íslenskra sveit-
arfélaga tók saman og sendi velferð-
arnefnd Alþingis kemur m.a. fram að
frá 2009 nema þær 23 milljörðum. Þá
námu greiðslur vegna fjárhagsað-
stoðar 2,5 milljörðum kr. Ári síðar
var upphæðin komin í 3,1 ma.kr. og
árið 2011 í 3,7 ma.kr. Árið 2012 námu
greiðslurnar 4,1 ma.kr. og 4,7 ma.kr.
í fyrra.
Heildargreiðslur í ár 4.9 ma.kr.
Spá um heildargreiðslur sveitarfé-
laga vegna fjárhagsaðstoðar á árinu
2014 hljóðar upp á 4,9 ma.kr. en hún
byggist á upplýsingum frá Hagstofu
Íslands um útgjöld sveitarfélaga til
fjárhagsaðstoðar fyrstu sex mánuði
ársins 2013 og fyrstu sex mánuði
þessa árs.
„Fyrstu sex mánuði ársins 2013
nam fjárhagsaðstoð 2,3 ma.kr. og 4,7
fyrir árið allt. Heildargreiðslur
vegna fjárhagsaðstoðar hafa hækkað
um 5,5% fyrstu sex mánuði ársins frá
fyrra ári eða í 2,44 ma.kr. Því er
áætlað að hún nemi um 4,9 ma.kr.
fyrir árið allt,“ segir í minnisblaði
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Í áðurnefndu minnisblaði kemur
ennfremur fram að árið 2013 hafi
verið sögulegt „að því leyti að fjár-
hagsaðstoðarþegum fjölgaði á sama
tíma og atvinnuleysi dróst saman.
Stytting þess tímabils sem atvinnu-
lausir einstaklingar geta fengið at-
vinnuleysisbætur mun hafa í för með
sér enn meiri þörf fyrir fjárhagsað-
stoð sveitarfélaga.“
Samkvæmt tölum Vinnumála-
stofnunar voru alls 5.975 manns at-
vinnulausir í lok júlí og fjöldi þeirra
sem hafa verið atvinnulausir lengur
en 6 mánuði samfellt er nú 3.237.
Greiðslur sveitar-
félaga hækka
23 milljarða greiðslur á sex árum
Fjárhagsaðstoð aukist
» Greiðslur sveitarfélaga til
fjárhagsaðstoðar hafa aukist
verulega að undanförnu.
» Árið 2009 námu greiðslurnar
2,5 ma.kr. en í fyrra voru þær
komnar upp í 4,7 ma.kr.
» Í ár er svo gert ráð fyrir því að
greiðslurnar nemi um 4,9 ma.kr.
» Samkvæmt tölum frá Vinnu-
málastofnun voru í lok júlí alls
5.975 manns án atvinnu.
Justine Ljeomah, framkvæmda-
stjóri mannréttindasamtaka í Port
Harcourt í Nígeríu, mun í hádeg-
inu flytja erindi um baráttu sína
gegn pyndingum í heimalandi sínu
og eigin reynslu af þeim og ann-
arri illri meðferð. Erindið verður
flutt í hátíðarsal Norræna hússins,
en Ljeomah hefur undanfarin
fimm ár starfað með Amnesty Int-
ernational.
Í tugi skipta hefur Ljeomah orð-
ið fyrir barðinu á lögreglu lands-
ins, sætt pynd-
ingum af hálfu
hennar og lifað
af tvær morð-
tilraunir, að því
er fram kemur í
tilkynningu Ís-
landsdeildar
Amnesty Int-
ernational. Árið
2013 hlaut hann
hin sænsku Per Anger verðlaun
fyrir störf í þágu mannréttinda.
Pyndingar til umræðu
í Norræna húsinu
Justine Ljeomah