Morgunblaðið - 27.10.2014, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
36% þeirra sem beita drengi
kynferðislegu ofbeldi
eru ókunnugir karlar.
Dagskrá:
13:30 -13:40 Setning.
Gísli Páll Pálsson, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
13:40-13:55 Hvaða áhrif hafa stjórnmálin á starfsfólk heilbrigðisstofnana?
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis
13:55-14.10 Hver hugsar um mig í ellinni?
Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna
14:10-14:25 Munt þú eiga kost á hjúkrun á efri árum?
Ólafur G. Skúlason, formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
14:25-14:40 Mönnun LSH - tækifæri og ógnir.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala
14:40-15:00 Vinnumarkaður framtíðarinnar.
Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, dósent HÍ
15:00-15:30 Pallborðsumræður frummælenda.
Fundarstjóri: Edda Hermannsdóttir, blaðamaður
Fagmönnun
framtíðar
– Hverjir munu vinna á heilbrigðisstofnunum
framtíðarinnar?
MÁLÞING
Grand Hótel
Reykjavík
Þriðjudaginn
28. október
kl. 13:30-15:30
Málþing á vegum Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Gísli Páll Pálsson Sigríður
Ingibjörg Ingadóttir
Pétur Magnússon Ólafur G. Skúlason Páll Matthíasson Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson
Edda
Hermannsdóttir
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Kvef eða
flensa?
Ég er asma- og ofnæmissjúklingur og viðkvæm
fyrir kvefi, hálsbólgu, eyrnabólgum og ennis-
og kinnholusýkingum. Mér finnst tinktúran
Sólhattur og hvönn svínvirka fyrir mig og það
skemmir ekki hversu einfalt er að nota hana.
– Inga Harðardóttir
www.annarosa.is
Tinktúran Sólhattur og hvönn er talin styrkja
ónæmiskerfið. Hún hefur m.a. reynst afar vel
gegn kvefi, hálsbólgu, flensu, hósta og ennis- og
kinnholusýkingum ásamt því að örva blóðflæði.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Rauði krossinn á Íslandi ráðleggur
fólki að útbúa viðlagakassa með
nauðsynjum sem duga í þrjá sólar-
hringa vegna hugsanlegra hamfara.
Listi yfir útbúnaðinn var uppfærður
í kjölfar eldgossins í Holuhrauni.
Jón Brynjar Birgisson, sviðsstjóri
neyðarvarnasviðs Rauða krossins,
segir að viðlagakassinn sé nauðsyn-
legur í þeim tilvikum þegar al-
mannavarnir hvetja fólk til þess að
vera í skjóli heima hjá sér, til dæmis
vegna veðurs eða hamfara.
Björn Teitsson, upplýsingafulltrúi
Rauða krossins, bætir við að komi til
þess að það gjósi í Bárðarbungu og
flóð verði í Þjórsá í kjölfarið gæti
versta mögulega sviðsmyndin kallað
á rýmingu á svo til öllu Suðurlandi.
Þar væru margar virkjanir og raf-
orkudreifing á öllu landinu í hættu.
Án rafmagns væru allir innviðir
samfélagsins illa staddir. „Þetta er
nokkuð sem er frekar ólíklegt að
gerist en engu að síður gæti það
gerst,“ segir hann.
Um 100 fjöldahjálparstöðvar
Um 750 sjálfboðaliðar Rauða
krossins eru í viðbragðsstöðu komi
til hamfara hérlendis. Þeir setja þá
meðal annars upp um 100 fjölda-
hjálparstöðvar um allt land, þar af
17 á höfuðborgarsvæðinu. Björn
Teitsson segir að í þessum stöðvum
sé hlúð að óslösuðu fólki og því veitt
húsaskjól, fæði og áfallahjálp. Al-
mannavarnir beini fólki þangað þeg-
ar þær telja þörf á því. Jón Brynjar
áréttar að fólk fari ekki í þessar
stöðvar nema gripið sé til rýminga
vegna rofs í innviðum.
Í flestum tilfellum eru stöðvarnar
í skólum, en einnig í félagsheimilum,
samkomuhúsum, hótelum og
íþróttahúsum. Listi yfir þessar
stöðvar er á vef Rauða krossins
(raudikrossinn.is), en í Reykjavík
eru þær meðal annars í Melaskóla,
Menntaskólanum við Hamrahlíð og
Laugardalshöll.
Útbúnaður í neyðarkassa
Sjúkrakassi
Lyf
Afrit af mikilvægum skjölum
Listi yfir mikilvæg símanúmer
Rafhlöður
Vasaljós með rafhlöðum
Ljósalugt með rafhlöðum eða olíulampi
Kerti og eldfæri
Vasahnífur eða fjölnotaverkfæri
Teppi
Hreinlætispakki s.s. tannbursti, tannkrem, svitalyktareyðir, sápa o.s.frv.
Fatnaður
Blöð og skriffæri
Flauta
Útbúnaður til eldunar s.s. gasgrill eða útilegubúnaður – hafa nóg gas á kútnum
Útvarp með langbylgju, upptrekt eða með rafhlöðum
Reiðufé, ef greiðslukerfi liggja niðri
Borðsími með snúru, ef símtenging er til staðar
Barnavörur, bleiur, leikföng ofl.
Gæludýravörur
Matur með langt geymsluþol s.s. dósamatur, pakkamatur
Vatn á flöskum, hver einstaklingur notar allt að fjóra lítra á dag
Sterkt viðgerðarlímband
Heimild: raudikrossinn.is
Annað sem mikilvægt er að hafa í huga
Farðu á skyndihjálparnámskeið
Hafðu nóg eldsneyti á bílnum ef hættuástand skapast
Hafðu símann alltaf vel hlaðinn ef hættuástand skapast og slökktu á óþarfa öppum
Gott er að eiga hleðslutæki fyrir símann sem hægt er að hlaða í bíl
Kynntu þér staðsetningu næstu fjöldahjálparstöðvar
Náðu í skyndihjálparappið á App Store eða Google Play.
Þar er einnig kafli um neyðarvarnir.
Varnir vegna hugs-
anlegra hamfara
Vekja athygli á viðlagakassa
Aukablað
alla þriðjudaga
– með morgunkaffinu