Morgunblaðið - 27.10.2014, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
VI
TINN
2014
VITINN
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
„Ég þakka árangur okkar fyrst og
fremst því að okkur hefur tekist vel
til við að byggja upp óviðjafnan-
legan hóp starfsmanna á tæknihlið-
inni sem hefur tekist á við og leyst
úr þeim flóknu úrlausnar-
atriðum sem lausnin okkar
krefst,“ segir Hjálmar
Gíslason, framkvæmda-
stjóri nýsköpunarfyr-
irtækisins Datamar-
ket. Fyrirtækið, sem
stofnað var árið 2008
af Hjálmari og Frosta
Sigurjónssyni, „safnar
margvíslegum gögnum af
ólíkum uppruna saman á
einn stað og gerir þau aðgengileg á
samræmdan hátt þannig að auðvelt
sé að leita, bera saman, myndbirta
og deila gögnunum í stærri eða
smærri hópum eða með heiminum
öllum“, eins og það er orðað í lýs-
ingu á fyrirtækinu.
Góðar viðtökur
DataMarket veitir þannig
fyrirtækjum og stofnunum ítarlegt
yfirlit yfir ytra viðskiptaumhverfi
sitt. Þessi þjónusta hefur fengið
góðar viðtökur. Fyrr á þessu ári
fékk Datamarket Vaxtarsprotann,
sem er viðurkenning fyrir öfluga
uppbyggingu sprotafyrirtækis. Hjá
Datamarket starfa nú fjórtán
manns, ellefu á Íslandi við þróun og
þrír í útibúinu í Boston í Bandaríkj-
unum við sölu og markaðssetningu.
Datamarket jók sölutekjur
sínar milli áranna 2012 og
2013 um 134%, úr tæpum
80 milljónum króna í 182
milljónir. Og fram-
kvæmdastjórinn er
bjartsýnn á framtíðina:
„Við sjáum fyrir okkur
töluverðan vöxt á næsta
ári. Við munum fjárfesta í
áframhaldandi vöruþróun
og sjáum fyrir okkur að bæta
allmörgum viðskiptavinum í hópinn
á næstunni.“
Að skilja gögn
Viðskiptavinir Datamarket eru
að sögn Hjálmars annars vegar
markaðsrannsóknarfyrirtæki og
aðrir útgefendur tölfræðigagna og
hins vegar stjórnendur fyrirtækja
sem nota slík gögn til ákvarð-
anatöku.
Datamarket er gott dæmi um
vaxtarsprota sem byggst hefur upp
á nokkrum árum, en tekur nú flugið
með auknum umsvifum á erlendri
grund. Verkefnastyrkir Tækniþró-
unarsjóðs og endurgreiðslur vegna
rannsókna- og þróunarstarfsemi
hafa komið í góðar þarfir og átt
þátt sinn þátt í að byggja upp góð-
an árangur.
„Lykillinn að því að taka réttar
ákvarðanir er að hafa góð gögn í
höndunum til að byggja á. Ekki er
samt nóg að hafa gögnin, heldur
þarf líka að vera hægt að skilja
þau,“ segir Hjálmar. Að skilja gögn
er ekki léttur leikur á tímum nets-
ins, þegar nánast er offramboð á
tölfræði. Jafnvel bara tölurnar sem
verða til innan eins fyrirtækis geta
verið svo margslungnar að erfitt er
fyrir stjórnandann að sjá hvernig
Morgunblaðið/Ómar
Gögn Lykillinn að því að taka réttar ákvarðanir er að hafa rétt gögn í höndum til að byggja á.
Safnar gögn-
um og gerir
aðgengileg
Datamarket sér fram á frekari vöxt
á næsta ári Er með 14 starfsmenn
REYKJAVÍK2014Á FERÐ UMÍSLAND
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Pínkulítill Hljómskáli, nokkurra
sentímetra hátt Alþingishús og
Safnahús sem smellpassar í lófa.
Þannig er My little Reykjavík, pakki
með pappírsmyndum sex þekktra
bygginga í Reykjavík.Um er að
ræða hugmynd og framleiðslu arki-
tektanna Snorra Þórs Tryggvason-
ar og Péturs Stefánssonar og til-
gangurinn er að skemmta og fræða
um arkitektúr, en þess fyrir utan
eru húsin mikið augnayndi.
„Reykjavík er vissulega ósam-
stæð borg, þar ægir öllu saman eins
og í bútasaumsteppi og sumum
finnst það ljótt. Okkur finnst aftur á
móti að ákveðin gæði felist í þessari
fjölbreytni,“ segir Snorri Þór. Hann
og Pétur hafa unnið ýmis verkefni
saman eftir að þeir útskrifuðust úr
arkitektanámi í LHÍ fyrir fimm ár-
um og reka nú arkitekta- og hönn-
unarstofuna Borgarmynd. Meðal
þeirra verkefna er handteiknað kort
af Reykjavík í þrívídd sem margir
þekkja og þeir hafa gert áþekk kort
yfir aðrar borgir, m.a. San Frans-
isco.
Húsin í My little Reykjavík eru,
auk þeirra þriggja sem nefnd eru í
upphafi greinar, Iðnó, Aðalstræti 10
og hús Menntaskólans í Reykjavík.
Spurður um hvers vegna þessi til-
teknu hús hafi orðið fyrir valinu seg-
ir Snorri Þór það m.a. vera vegna
þess að þessi hús séu fjölbreytt sýn-
ishorn af mismunandi bygging-
arefnum og byggingarlagi. Þá séu
þetta þekkt hús með mikla sögu.
„Húsið Aðalstræti 10 er elsta hús
Reykjavíkur, byggt 1762. Banda-
ríkjamönnum finnst skemmtilegt að
hugsa til þess að það sé eldra en
Bandaríkin.“
Langafi vann við Safnahúsið
Safnahúsið á sér ekki síður
áhugaverða sögu, til stóð að það
væri byggt á sama hátt og Alþing-
ishúsið, þ.e. hlaðið úr grágrýti með
koparþaki. „Síðan áttuðu menn sig á
því að það væri helst til dýrt og
ákveðið var að steypa það og setja á
það járnþak. Annars hef ég tals-
verða tengingu við það hús, en
langafi minn, sem var járnsmiður,
bar ábyrgð á öllu járnavirki í hús-
inu,“ segir Snorri Þór sem segir
Safnahúsið vera sitt uppáhaldshús.
Byrjað var að selja húsin fyrir
nokkrum vikum, þau eru seld á
nokkrum stöðum, m.a. Listasafni Ís-
lands og Epal og hafa fengið af-
bragðsgóðar viðtökur. Hvert hús er
á A4 pappírsörk, klippt út í heilu
lagi, brotið saman og límt. Á þeim
eru upplýsingar um sögu þeirra og
helstu einkenni. Að sögn Snorra
Þórs fylgja húsin fyrirmyndunum að
mestu, þó hafi þurft að gera breyt-
ingar á sumum, m.a. á Alþingishús-
inu þar sem kringlunni svokölluðu
var sleppt, en hún þótti helst til erfið
í broti. „Gestaþraut með fræðslu-
ívafi. Ætli það sé ekki besta lýsingin
á húsunum. Þau höfða bæði til full-
orðinna og barna, margir fullorðnir
Agnarsmátt Alþing-
ishús og Iðnó-kríli
Hugmyndaríkir arkitektar hönnuðu
eftirlíkingar af frægum húsum
Ljósmynd/Guðmann Þór Bjargmundsson
Hugmyndaríkir Arkitektarnir Snorri Þór Tryggvason og Pétur Stefánsson hjá My little Reykjavík
Þjónusta Datamarket er af
tvennum toga. Tekjurnar mynd-
ast af áskrift viðskiptavina að
hugbúnaðarveitu og innifelur sú
áskrift aðgang að ört vaxandi
safni gagna frá leiðandi gagna-
veitum um allan heim. Gögnin
sem fyrirtækið vinnur með eru
með öðrum orðum ekki aðeins ís-
lensk.
Hins vegar er opið svæði á vef fyrirtækisins (datamarket.com) og
gjaldfrjáls skráning þar gerir notendum kleift að finna, myndbirta og
deila opinberum gögnum – og hlaða upp og vinna með sín eigin gögn –
sér að kostnaðarlausu.
Gögnin íslensk og alþjóðleg
GÖGN DATAMARKET ERU ÝMIST OPIN EÐA SELD