Morgunblaðið - 27.10.2014, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Nopef aðstoðar lítil- ogmeðalstór
fyrirtæki við fjármögnun hagkvæmni-
athugana.Verkefni sem eigamöguleika
á styrkveitingu þurfa að hafa jákvæð
umhverfisáhrif t.d. loftslagsáhrif eða
fela í sér grænan hagvöxt.
Stuðningur Nopef er veittur til
verkefna í löndum utan EES og EFTA,
t.d í Bandaríkjunum, Brasilíu, Kína,
Indlandi og í ríkjumAfríku.
Fabiansgatan 34 – P.O. Box 241, FI-00171 - Helsingfors, Finland | www.nopef.com
Á að hasla sér
völl erlendis?
Kynningarfundur umNOPEF - Norræna verkefna-
sjóðinn verður haldinn þriðjudaginn 28. október
kl. 9:00-10:45 á Grand Hótel Reykjavík. Fundurinn er
öllum opinn, skráning á islandsstofa@islandsstofa.is
FRÉTTASKÝRING
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Ítalskir bankar voru áberandi hópi
þeirra 25 evrópsku banka sem féllu á
álagsprofi Evrópsku bankaeftirlits-
stofnunarinnar, EBA.
Niðurstöður úttektarinnar voru
kynntar á sunnudag en álagsprófið
náði til 123 stærstu banka ESB.
Af bönkunum sem prófaðir voru
mældust 40 með eiginfjárhlutfall
undir 7%, eftir að afleiðingar álags-
prófsins voru reiknaðar út.
Álagspróf banka skoða fjárhags-
stöðu og skuldbindingar banka og
meta hvernig bankarnir eru í stakk
búnir til að takast á við möguleg áföll
í hagkerfinu. Er slíkum prófum ætl-
að að koma auga á veikleika í rekstri
banka svo grípa megi til viðeigandi
ráðstafana.
Að sögn Reuters miðaði álagspróf
EBA við að bankarnir þyftu að geta
staðið af sér þriggja ára kreppu-
skeið.
Þeir bankar sem féllu á prófinu
þurftu, m.v. stöðuna í árslok 2013, að
auka hlutafé sitt um samtals 24,6
miljarða evra, jafnvirði ríflega 3.770
milljarða króna, til að ná lágmarks-
kröfum álagsprófsins.
Ítalskir bankar í vanda
Sá banki sem verst kom út úr próf-
uninni var Monte dei Paschi á Ítalíu
sem þarf að afla 2,1 milljarðs evra til
að standast kröfur EBA. Monte dei
Paschi er í hópi níu ítalskra banka
sem féllu á prófinu og vantar samtals
9,4 milljarða til að standast álagspróf-
ið.
Þrír grískir bankar féllu einnig á
prófinu, Piraeus Bank, Eurobank Er-
gasias og National Bank of Greece,
og vantaði samtals 8,7 milljarða evra.
Tólf af bönkunum sem féllu á próf-
inu hafa þegar gripið til aðgerða sem
duga til að mæta kröfum EBA. Sam-
kvæmt umfjöllun BBC eiga bankar á
borð við AXA Bank Europe og Dexia
í Belgíu, Österreichische Volksbank-
en í Austurríki og Banco Comercial
Portugues í Portúgal eftir að grípa til
fullnægjandi ráðastafana. Segir Reu-
ters að þeir bankar sem eftir sitja
þurfi samtals 9,5 milljarða evra til að
geta staðið af sér meiriháttar
skakkaföll á mörkuðum.
Standa betur að vígi
Bendir BBC á að niðurstöður
álagsprófsins bendi til að evrópskir
bankar séu betur á sig komnir nú en
árið 2011, þegar síðustu álagspróf
fóru fram.
Reuters hefur eftir markaðsgrein-
endum að álagsprófið nú marki
sennilega ekki endalok „tiltekar“ í
evrópska bankakerfinu, en gefi til-
efni til hóflegrar bjartsýni. Enn sé
langt í land með að takist að leysa úr
þeim áskorunum sem evrópskir
bankar standa frammi fyrir.
Álagsprófði náði ekki til íslenskra
banka. Í tilkynnngu frá FME segir
að stóru íslensku viðskiptabankarnir
þrír virðast koma vel út í samanburði
við evrópsku bankanna, þeir íslensku
verandi með töluvert hærra eigin-
fjárhlutfall.
Ljósmynd / ECB - Andreas Varnhorn
Formúla Vítor Constancio, fyrir miðju, og Danièle Nouy frá Seðlabanka Evrópu í bakgrunni við upphaf blaðamanna-
fundar þar sem niðurstöður voru kynntar. Hluti þeirra banka sem féllu á álagsprófinu hefur síðan bætt stöðu sína.
Fimmtungur banka féll á álagsprófi
Bankar sem féllu á prófinu hafa níu mánuði til að uppfylla kröfur Evrópsku bankaeftirlitsstofn-
unarinnar Af 123 bönkum mældust 40 með eiginfjárhlutfall undir 7% eftir forsendur prófsins
Tólf hafa bætt sig
» Níu ítalskir bankar féllu á
prófinu, þeirra verst mældist
Monte dei Paschi.
» Álagsprófið skoðaði stöðu
bankanna í árslok 2013 og
hvort þeir gætu staðið af sér
þriggja ára kreppu.
» Tólf af þeim bönkum sem
féllu hafa þegar lagað stöðu
sína og fullnægja nú lágmarks-
kröfum álagsprófsins.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Fyrstu þingkosningarnar frá því
borgarastríð braust út í Úkraínu
fóru fram í landinu í gær. Karl Garð-
arsson alþingismaður er annar
tveggja íslenskra þingmanna sem
taka þátt í kosningaeftirliti í Úkra-
ínu fyrir hönd Evrópuráðsins. „Á
nokkrum stöðum hafa komið upp
vandamál. Það er m.a. orðrómur um
keypt atkvæði og það hefur skapast
mikið öngþveiti við kjörstaði þar sem
öll kjörgögn eru skrifleg,“ segir
Karl, sem er staddur í bæ rétt sunn-
an við höfuðborgina Kiev. „Þó nokk-
ur fjöldi fólks á kjörskrá getur ekki
kosið vegna átakanna í austurhluta
landsins og við vitum að fjöldi her-
manna á í erfiðleikum með að kjósa.“
Í héruðunum Donetsk og Luhansk í
austurhluta Úkraínu eru langflestir
kjörstaðir lokaðir og í Donetskborg
er enginn kjörstaður opinn. Áætlað
er að um sjö milljónir manna muni
ekki geta nýtt kosningarétt sinn í
kosningunum og segir Karl það
draga úr vægi kosninganna.
Útgönguspár gera ráð fyrir stór-
sigri flokka sem styðja aðild að ESB
og NATO. Kosningabandalag sem er
kennt við Petró Porosénkó, forseta
Úkraínu, hefur hlotið 23% atkvæða
og Þjóðarfylkingin, nýr flokkur Ar-
senís Jatsenjúks forsætisráðherra,
hlaut 21% fylgi. Stjórnarandstöðu-
flokkur Viktors Janúkovits hlaut 8%.
Kjósendur
horfa til vesturs
Milljónir kjósenda gátu ekki kosið
AFP
Kosningar Fyrstu þingkosningarnar í Úkraínu frá því átök hófust í landinu.
Erlent
Áströlsk yfirvöld hafa staðfest að átján ára gömul stúlka,
sem kom til landsins frá Gíneu fyrir ellefu dögum, hafi
verið færð í einangrun vegna gruns um ebólusmit.
Stúlkan hefur verið sett í sóttkví á heimili sínu ásamt
átta öðrum fjölskyldumeðlimum eftir að hún fór að finna
fyrir einkennum. Hún hefur nú verið færð í einangrun á
sjúkrahús í Brisbane og gengst þar undir rannsóknir sem
ætlað er að staðfesta hvort um ebólusmit sé að ræða.
Jeannetta Young, heilbrigðisfulltrúi Queensland-ríkis í
Ástralíu, segir enga hættu stafa af mögulegu ebólusmiti
þar sem stúlkan hafi ekki farið af heimili sínu eftir að einkenni komu fram né
fengið til sín gesti. Þá er ekki vitað til þess að hún hafi átt samskipti við ebó-
lusmitaða einstaklinga í Gíneu. „Hún hafði ekki verið í snertingu við neinn
sem vitað var að væri smitaður af ebólu en hún var á svæði þar sem mörg
ebólutilvik hafa komið upp,“ sagði Young á fjölmiðlafundi um helgina.
Mögulegt ebólusmit komið upp í Ástralíu
Bandarískir landgönguliðar og
breski herinn hafa lokið hernaðar-
aðgerðum sínum í Afganistan eftir
13 ára viðveru í landinu. Breski
herinn afhendir í kjölfarið síðstu
herstöð sína í landinu, Camp Bas-
tion, öryggissveitum afganska
hersins um helgina.
Hátt í 150 þúsund hermenn hafa
verið í Afganistan á vegum NATO
en flestir komu þeir frá Banda-
ríkjunum. Þegar mest var voru
um 10 þúsund hermenn frá breska
hernum í Afganistan. Frá árinu
2001 hafa 453 breskir hermenn
fallið í Afganistan. Stríðinu er því
lokið af hálfu Breta en Bandaríkin
munu halda úti um 15 þúsund
manna herliði í landinu á næsta
ári.
AFGANISTAN
Breski herinn farinn
heim frá Afganistan
Stjórnarherinn í
Írak hefur tekið
fjögur þorp af
hryðjuverka-
samtökunum IS-
IS og truflað
birgðalínur
þeirra við bæinn
Jurf al-Sakhar.
Á sama tíma
tókst hersveitum Kúrda að ná
völdum í bænum Zumar í norður-
hluta Íraks en bærinn hefur verið
undir stjórn ISIS-samtakanna í
þó nokkurn tíma. Íraski stjórn-
arherinn segist ætla að fara hægt
yfir og tryggja yfirráð sín í þeim
bæjum sem teknir eru aftur af
ISIS.
ÍRAK
Her Íraks sækir á og
tekur bæi af ISIS