Morgunblaðið - 27.10.2014, Page 23
lausar stundir fyrir áhugamál utan
daglegra anna: „Sólarhringurinn er
vel hlaðinn verkefnum við upp-
byggingu á nýsköpunarfyrirtæki og
frjálsíþróttadeild hjá fjögurra
barna föður. Það er helst að ég
hugi að eigin þjálfun. Ég vil helst
hreyfa mig eitthvað á hverjum
degi. Ég næ því með því að hjóla
til og frá vinnu allan ársins hring.
Ég bý á Teigunum, hef lengst af
hjólað um 14 kílómetra á dag, til
og frá vinnu. En svo flutti Handpo-
int í Hamraborg í Kópavogi. Þá
styttist vegalengdin í átta kíló-
metra á dag sem er náttúrlega aft-
urför. Þá er bara að taka auka-
hring.
Annars togar sveitin alltaf dálítið
í mig og fjölskylduna. Ég er alinn
upp í Landeyjunum, móðir mín býr
á Reykjum á Skeiðum og konan
mín ólst upp þar skammt frá, í
Miðfelli í Hrunamannahreppi, þar
sem tengdapabbi býr enn. Við för-
um því oft austur, sérstaklega á
sumrin. Kristjana konan mín hefur
verið þar með börnin samfleytt
nokkrar vikur yfir sumrin og ég
eftir því sem vinnan hefur leyft.
Krakkarnir njóta sín náttúrlega
hvergi betur en hjá ömmu og afa á
Reykjum.“
Fjölskylda
Eiginkona Freys er Kristjana
Skúladóttir, f. 14.2. 1975, leikkona
og söngkona. Foreldrar hennar:
Arndís Sigríður Sigurðardóttir frá
Birtingaholti, f. 21.7. 1930, d. 10.1.
2012, húsfreyja í Miðfelli í Hruna-
mannahreppi, og Skúli Gunn-
laugsson, f. 25.10.1927, bóndi í Mið-
felli.
Börn Freys og Kristjönu eru
Ólafur Fjalar, f. 12.10. 2002: Ber-
gey, f. 27.10. 2004; Fjölnir, f. 22.4.
2010, og Arnar Frosti, f. 28.1. 2013
Bræður Freys eru Örvar Ólafs-
son, f. 7.4. 1978, verkefnastjóri hjá
ÍSÍ og yfirþjálfari hjá Ármanni;
Andri Ólafsson, f. 1.10. 1985, tón-
listarmaður með Moses Hightower
og fleiri hljómsveitum; Bjarni Már
Ólafsson, f. 29.1. 1991, nemi í
sjúkraþjálfun og frjálsíþróttaþjálf-
ari hjá Ármanni.
Stjúpsystkini Freys, börn Rún-
ars Þórs Bjarnasonar, f. 7.10. 1956,
eiginmanns Birnu, eru Vaka Rún-
arsdóttir, f. 28.10. 1981, matráður í
Svíþjóð; Halla Rúnarsdóttir, f.
13.3. 1984, grunnskólakennari á
Selfossi, og Bjarni Rúnarsson, f.
23.3. 1989, sölumaður í Reykjavík.
Foreldrar Freys: Ólafur Bjarna-
son, f. 14.8. 1952, d. 18.4. 1998,
bóndi í Stóru-Hildisey í Austur-
Landeyjum, og Birna Þorsteins-
dóttir, f. 16.2. 1955, bóndi á Reykj-
um á Skeiðum, áður í Stóru-
Hildisey.
Úr frændgarði Freys Ólafssonar
Freyr Ólafsson
Ólafur Eiríksson
bóndi í Skálakoti
Guðrún Nikolína
Snorrad.
húsfr. í Skálakoti
undir Eyjafjöllum
Bjarni M. Ólafsson
bóndi í Skálakoti
Katrín Marta Magnúsdóttir
húsfr. í Skálakoti undir Eyjafjöllum
Ólafur L. Bjarnason
bóndi í Stóru-
Hildisey í Landeyjum
Magnús Tómasson
bóndi í Steinum
Elín Bárðardóttir
húsfr. í Steinum
undir Eyjafjöllum
Magnús Bjarnason
rafvirki á Hvolsvelli
Vigdís Marta
Magnúsdóttir húsfr.
á Herjólfsstöðum á
Kirkjubæjarklaustri
Bjarni Magnússon
þjálfari meistarafl. karla
í körfubolta hjá ÍR
Hanna Sigríður
Hjartardóttir
skólastj. á Klaustri
Vignir Snær Vigfússon
tónlistarmaður
og vinur Sjonna
Sigurður
Oddsson
skipstj. og
útgerðarm. í
Eyjum
Jónas
Sigurðsson
skipstj. í
Eyjum
Sigurgeir
Jónasson
ljósmyndari í
Eyjum
Andri Ólafsson
tónlistarmaður í
hljómsveitinni Moses
Hightower o.fl.
Helgi Guðmundsson
byggingameistari í Hafnarfirði
Reynir Guðmundsson
símamaður í Rvík
Auðun Helgason
knattspyrnumaður
Grétar Reynisson
leikmyndahönnuður
Oddur Oddsson
bóndi á Heiði
Þorsteinn Oddsson
bóndi á Heiði
Svava Guðmundsdóttir
húsfr. Heiði á Rangárvöllum
Birna Þorsteinsdóttir
húsfr. á Reykjum á Skeiðum,
áður húsfr. í Stóru-Hildisey
Guðmundur K.
Guðmundsson
b. á Kvígindisfelli
Þórhalla Oddsdóttir
húsfr. á Kvígindisfelli
í Tálknafirði
Arndís
Þorsteinsd.
húsfr. á Syðri-
Hömrum
Ingveldur
Ástgeirsd.
húsfr. á
Brúna-
stöðum.
Guðni
Ágústss.
fyrrv.
ráðherra
og form.
Framsóknar-
flokksins
V. Helga Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Heiði
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Hallgrímur Pétursson fæddistí Gröf á Höfðaströnd eða áHólum í Hjaltadal árið
1614. Ekki er vitað um fæðingardag
hans en hann lést á þessum degi,
27.10. 1674. Foreldrar hans voru
Pétur Guðmundsson, umboðsmaður
kirkjujarða Hólastóls í Fljótum og
hringjari á Hólum, föðurbróðir Guð-
brands Þorlákssonar biskups, og
Sólveig Jónsdóttir.
Hallgrímur ólst upp á Hólum,
lærði járnsmíði í Danmörku og
kynntist Brynjólfi Sveinssyni, síðar
biskupi, sem kom honum til náms í
Frúarskóla.
Er Hallgrímur var í efsta bekk
var hann fenginn til að uppfræða
hóp Íslendinga sem voru á heimleið
eftir að hafa lent í Tyrkjaráninu
tæpum áratug fyrr. Þá tókust ástir
með honum og Guðríði Sím-
onardóttur, sem hann fór með heim
til Íslands 1637 án þess að ljúka
prófum. Þau bjuggu fyrst í litlu koti
við Ytri-Njarðvík þar sem Hall-
grímur vann hjá dönskum kaup-
mönnum. En Brynjólfur Sveinsson
vígði hann til prests á Hvalnesi 1644.
Hann fékk veitingu fyrir Saurbæ á
Hvalfjarðarströnd 1651 og bjó þar
lengst af, í nokkur ár á Kalastöðum
og loks á Ferstiklu þar sem hann
lést úr holdsveiki. Hallgrímur var
höfuðskáld þjóðarinnar á 17du öld
og er almennt talinn mesta trúar-
skáld Íslendinga. Frægasta verk
hans eru Passíusálmarnir, 50 að
tölu, ortir á árunum 1656-59, heims-
frægt bókmenntaverk, sem þýtt hef-
ur verið á fleiri tungumál en önnur
íslensk rit. Passíusálmarnir hafa
verið lesnir í kirkjum landsins á
lönguföstu um alda skeið.
Þeir hafa verið lesnir í Ríkis-
útvarpið í heild á föstunni frá 1944
og hafa margir þjóðþekktir Íslend-
ingar komið þar við sögu. Sálmurinn
sem Hallgrímur orti eftir Steinunni
dóttur sína, Um dauðans óvissa tíma
(Allt eins og blómstrið eina) hefur
verið sunginn yfir nánast öllum Ís-
lendingum fram á þennan dag.
Margt hefur verið ritað um Hall-
grím og Passíusálmana á síðustu öld
og Hallgrímskirkja í Saurbæ og sú á
Skólavörðuholti bera nafn hans.
Merkir Íslendingar
Hallgrímur
Pétursson
95 ára
Kristján V. Kristjánsson
90 ára
Sjöfn Jóhannesdóttir
85 ára
Elsa Sigurvinsdóttir
Ingibjörg Jóhannesdóttir
Margrét Margeirsdóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Sverrir Júlíusson
Theódóra Thoroddsen
80 ára
Auður Hauksdóttir
Guðrún Geirs Árnadóttir
Kristjana Jónsdóttir
75 ára
Birgir Marinósson
Ólafía G. Steingrímsdóttir
Regína Sigurlaug Pálsdóttir
70 ára
Ágústa Þyri Friðriksdóttir
Erna Sigurjónsdóttir
Ingibergur Gunnar Jónsson
Kristinn Friðrik Jónsson
Oddur Þórðarson
60 ára
Aðalheiður
Guðmundsdóttir
Hlífar Már Snæbjörnsson
Inga Ragnheiður
Magnúsdóttir
Kristín Jósteinsdóttir
Sigríður A. Sigurkarlsdóttir
Unnur Björg
Kristþórsdóttir
50 ára
Einar Halldórsson
Elín Ingólfsdóttir
Guðjón Sigurðsson
Gústav Gústavsson
Helga Gunnarsdóttir
Jón Helgi Einarsson
Lára Jónsdóttir
Manuel Vincent Colsy
Stefán Sigurðsson
Vilborg Rut Viðarsdóttir
40 ára
Claudia Mrugowski
Freyr Ólafsson
Geirdís Hanna
Kristjánsdóttir
Guðbjörg Jóhanna
Níelsdóttir
Íris Björnsdóttir
Makrem Mazouz
Soffía Jóhannsdóttir Hauth
Sólveig Guðfinnsdóttir
30 ára
Einar Ágúst Einarsson
Guðni Þór Guðnason
Hörður Snær Pétursson
Ingólfur Ágúst Hjörleifsson
Judit Balázs-Bécsi
Katarzyna Rojecka
Kolbrún Þorsteinsdóttir
Oddur Smári Rafnsson
Sindri Bessason
Til hamingju með daginn
30 ára Oddur Smári ólst
upp í Hafnarfirði, býr þar,
lauk prófum í matreiðslu
frá MK og er fram-
kvæmdastjóri hjá Saffran.
Maki: Ásdís Björk Krist-
jánsdóttir, f. 1983, veit-
ingastjóri hjá Saffran.
Sonur: Kristján Rafn, f.
2005, og Hjörleifur Daði,
f. 2009.
Foreldrar: Anna María
Þorláksdóttir, f. 1962, og
Rafn Arnar Guðjónsson, f.
1956.
Oddur Smári
Rafnsson
40 ára Guðbjörg ólst upp
í Grundarfirði og býr þar,
lauk prófi sem einkaþjálf-
ari, starfar við einkaþjálf-
un og við Fellaskjól í
Grundarfirði.
Maki: Kristján Einar Krist-
jánsson, f. 1964, verktaki.
Börn: Friðfinnur, f. 1994,
og Lovísa Margrét, f.
1997.
Foreldrar: Jakobína El-
ísabet Thomsen, f. 1953,
og Níels Friðfinnsson, f.
1946.
Guðbjörg J.
Níelsdóttir
30 ára Guðni Þór býr í
Kópavogi og er nú forrit-
ari hjá Green Qloud í
Reykjavík.
Systur: Björk Guðnadótt-
ir, f. 1973, fram-
kvæmdastjóri, og Anna
María Guðnadóttir, f.
1979, hjúkrunarfræðingur.
Foreldrar: Guðni Guð-
mundsson, f. 1944,
starfsmaður hjá Steypu-
stöðinni, og Steinunn Sig-
urðardóttir, f. 1950,
starfsmaður við LSH.
Guðni Þór
Guðnason
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
! " ##$%&'('
)))
*