Morgunblaðið - 27.10.2014, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Tilfinningar þínar sýna þér að hverju
þarf að vinna, en ekki sýna tilfinningar við
vinnuna. Gleymdu ekki að þakka þeim sem
lögðu hönd á plóginn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú leitar ráða hjá félaga sem reynast
skemmtileg blanda af speki og hnyttni. Sam-
ræður, endurfundir og ánægjulegar stundir
geta breytt einkalífi þínu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ýmsir erfiðleikar í einkalífinu eiga
hug þinn allan. Komdu hugmyndum þínum
og tillögum á framfæri. Forðastu líka að lána
öðrum peninga og að fá peninga að láni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Munurinn á sveitarómaga og kóngi
felst í málinu og siðunum sem hann temur
sér. Sýndu kurteisi en ekkert umfram það
fyrr en viðkomandi hefur sannað sig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Falda hliðin á þér kemur út til að
skemmta sér. Svo mikið að þér finnst þú
eiga minna sameiginlegt með gömlum vin-
um.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert að velta því fyrir þér hvort þú
eigir að sýna meiri hörku í viðkvæmu máli.
Ekki byrja á neinu nýju fyrr en eftir 12.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er óráðlegt að láta skapið hlaupa
með sig í gönur þótt hlutirnir gangi ekki
átakalaust upp. En stundum þarf hann að
fara sínar eigin leiðir.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú mátt ekki hunsa góðar til-
lögur, þótt þær komi frá öðrum og þá stund-
um mönnum, sem þér er lítið um. Töfum á
peningaflæði („ávísunin er í póstinum“) hef-
ur linnt í bili.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er betra að líta fram á veg-
inn þegar maður vinnur mikið. Aðrir eiga
mikið undir viðbrögðum þínum svo þú skalt
temja þér tillitssemi í þeirra garð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er algerlega óraunsætt að
ætlast til þess að þú sért fyllilega
samkeppnisfær á öllum sviðum. Ef þú hefur
efni á því án þess að skuldsetja þig skaltu
láta af verða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það besta sem gæti komið fyrir
þig er að taka ábyrgð. Vertu samstarfsfús og
lipur svo að verk strandi ekki á þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur mikla hæfileika en nú er
komin röðin að þér að vera aðdáandi. Vertu
sveigjanlegur því á þann veg muntu ná
mestum árangri.
Á föstudaginn hófst rjúpnaveiði-tímabilið og reyndist Davíð
Hjálmar Haraldsson sannspár:
Þeir fara á veiðar í eldgosa eim
þótt ískaldur snjórinn sé djúpur
en lögga er þrautseig og heldur loks heim
með hríðskotnar óeirðarjúpur.
Hallmundur Kristinsson skrifaði á
Leirinn á fimmtudag:
Margfróður gaur var Gestur.
Í gúgglinu raunar hvað bestur.
Hans gáfa var greind,
gerð kunn með leynd:
Áunninn athyglisbrestur.
Fía á Sandi var vel með á nótunum:
Hugrakkur gaur var hann Gestur
og gerðist af löggunum mestur.
Eftir þrjóti hann þaut
og þrívegis skaut.
Hinn látni var leikfangahestur.
Davíð Hjálmar segist fyrir löngu
hættur að botna nokkuð í hríðskota-
byssumálinu eftir misvísandi upplýs-
ingar lögreglu, landhelgisgæslu og
norskra ráðamanna.
Málið er loðið mjög og sleipt,
menn virðast lítið hafa keypt.
Stálu þeir? Báðu um byssulán?
Borguðu mútur? Frömdu rán?
Hvað sem því líður gefur Hösk-
uldur Búi Jónsson þetta heilræði:
Ef þú nemur annan hreim,
sérð augun grimm,
nefið finnur nýjan keim…
og nótt er dimm:
Þá opna skott og eyddu þeim
með MP5.
Hallmundur Kristinsson tekur
skýrt fram að þetta sé ekki auglýs-
ing:
Ég þekki óþekktarorma.
Einn þeirra hatar víst gorma.
Hann vill hafa val
en velja þó skal
að sofa á dýnu frá Dorma.
Sigrún Haraldsdóttir þekkti vel
til:
Mjög svo hin nýríka Norma
naut þess að liggja og dorma
í rúminu kát
rumdi hún og át
sjötíu sjaldgæfa orma.
Ármann Þorgrímsson kallar þetta
„Andvökubull“:
Ljóð að semja langar til
af litlum hugar mætti
Fögur orð ég fanga vil
og fella að bragarhætti.
En stundum eitthvað stúrinn er
ef stendur illa á skrefi
Drauma nætur dúrinn fer
og dagsýn enga hefi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af óeirðarjúpum, leikfanga-
hesti og sjaldgæfum ormum
Í klípu
„FRÁBÆRT AÐ KYNNAST ÞÉR. ÞÚ ERT
FYRSTI GAURINN SEM HÚN KEMUR MEÐ
HEIM, SEM ER EKKI MEÐ LISTA YFIR
MATAROFNÆMI.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„EKKI GLEYMA, ÞETTA ER BARA ÆFING,
ÞANNIG AÐ LÁTTU MIG VITA EF ÞÚ FINNUR
EITTHVAÐ FYRIR ÞESSU.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera hin eina og
sanna.
ODDI FER EKKI ÚT
Í DAG
ILLRÆMDU ÍKORNARNIR
ERU ÞARNA
SÍÐAST NEYDDU ÞEIR HANN
TIL ÞESS AÐ SAFNA HNETUM.
KONAN ÞÍN HEFUR RÁÐIÐ
MIG TIL ÞESS AÐ KENNA
ÞÉR MANNASIÐI, MINN GÓÐI
HERRA...
ROOP
!
MÁ ÞAÐ BÍÐA ÞANGAÐ
TIL BJÓRINN
ER BÚINN?
Aftur og aftur leggur Víkverji leiðsína á Þingvöll og var þar síð-
ast í gær, sunnudag. Ferðirnar á
þessu ári eru orðnar vel á annan
tuginn. Það eru kannski ellimerki
og nokkuð sem vitnar um hugarró
að þessi mesti helgistaður þjóð-
arinnar skuli eiga orðið svona sterk
ítök í mönnum. Það er samt ekki
sem verst og leiðangurinn austur í
gær var alveg prýðilegur. Venju
samkvæmt var fyrst dokað við á
Hakinu, þaðan sem er gott útsýni
yfir vatnið, vellina og gjárnar. Þar
er eins og gengið sé beint inn í
landslagsmynd á konfektkassa
Nóa-Síríus eða lifandi útgáfu
almanaks Eimskipafélagsins.
x x x
Numið var staðar við Flosagjá,sem í daglegu tali er nefnd
Peningagjá. Aðrir kenna þennan
stað við Fjallamjólk, en svo heitir
hið fræga málverk Kjarvals af þess-
um stað. Þaðan svo áfram um
brýrnar yfir flæður Öxarár, upp að
Lögbergi og þaðan að Drekking-
arhyl þar sem horfa mátti yfir beint
í hylinn þar sem stórurriðinn liggur
þessa dagana og er að hrygna. Það
var býsna gaman að fylgjast með
þessu þar sem risafiskurinn lá mak-
indalega. Að fylgjast með þessu var
eins og að sjá náttúrufræðiþátt með
David Attenborough í háskerpu.
x x x
Í mildu veðrinu var gaman aðhorfa til fjalla. Þarna eru Búrfell,
Botnssúlur, Ármannsfell, Skjald-
breiður og Hrafnabjörg en það síð-
astnefnda þykir Víkverja vera það
fallegasta í þessum víðfeðma sal.
Og nú eru fjöllin öll komin með
hvítar nátthúfur vetrarins sem gef-
ur þeim skemmtilegan svip. Litirnir
á svæðinu voru raunar einstaklega
fallegir í gær, grasið er sölnað og
laufið fallið en samt var heildarsvip-
urinn snotur. Og miðað við hver
reyndin hefur verið undanfarið þá
var fjöldi ferðamanna hóflegur,
ekki jafn yfirþyrmandi og var á
bestu dögum í sumar. Í alla staði
má því segja að öll hlutföll í breytni
manns og svo náttúran á Þingvöll-
um hafi verið í góðu jafnvægi í gær
og því er bíltúr þangað nú á haust-
dögum sterkur leikur.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn
minni á bug né tók frá mér miskunn
sína. (Sálmarnir 66:20)
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_3
1.
08
.1
4
Muna að drekka vatn
Veit á vandaða lausn
• Venjulegt vatn + sódavatn
• Tengist beint við vatnslögn
• Sparar pláss þar sem ekki þarf vatnsdunk
• Hægt að stilla hitastig vatns frá 5-20°C
• Ljós kemur þegar þrífa þarf vél eða skipta um filter
Frábær vatnsvél fyrir fyrirtæki