Morgunblaðið - 27.10.2014, Síða 32
MÁNUDAGUR 27. OKTÓBER 300. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Svanhildur Hólm og Birna Braga 40 ára
2. „Ég hrinti honum en þetta var slys“
3. Grófu inn í stóra sprungu
4. Verða fyrir kynferðislegri áreitni
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Douglas A. Brotchie leikur glæsi-
lega efnisskrá á bæði orgel kirkj-
unnar á hádegistónleikum í Hafnar-
fjarðarkirkju á morgun kl.
12:15-12:45.
Aðgangur er ókeypis og boðið upp
á kaffisopa eftir tónleikana. Tónleik-
arnir eru haldnir í tilefni 100 ára af-
mælis Hafnarfjarðarkirkju.
Morgunblaðið/Ómar
Brotchie í Hafnar-
fjarðarkirkju
Söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir,
Diddú, stígur á svið á hádegistón-
leikum Íslensku óperunnar, ásamt pí-
anóleikaranum Antoníu Hevesi, í
Norðurljósum í Hörpu á morgun kl.
12.15. Þar verða með-
al annars flutt
Söngurinn til
mánans úr óp-
erunni Rúsölku og
rússneska þjóð-
lagið Solovej moi
eða Næturgalinn.
Aðgangur er
ókeypis.
Diddú á hádegistón-
leikum í Hörpu
Á þriðjudag Norðan 10-15 m/s og skýjað en snjókoma fyrir norð-
an og austan. Hiti nálægt frostmarki. Hægari og úrkomuminni um
kvöldið, léttir til fyrir vestan og kólnar.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 5-10 m/s og él en hægara og bjart-
viðri á Suðurlandi. Hvessir og snjóar norðvestanlands og á Norð-
austurlandi. Hiti kringum frostmark.
VEÐUR
Keilir hafnaði í 3.-4. sæti í
Evrópukeppni golfklúbba
sem lauk í Búlgaríu um
helgina. Vegna veðurs voru
einungis leiknar 18 holur en
ekki 54 eins og til stóð.
Breytingar á mótshaldinu
komu sér illa fyrir Hafn-
firðingana því þeir voru
í góðum málum á hring
sem blásinn var af. Keilir
vann sér þátttökurétt á
EM með sigri í 1. deildinni í
deildakeppni GSÍ. »1
Góður árangur
Keilis á EM
Robin van Persie sá til þess að
Chelsea færi ekki með sigur af hólmi
á Old Trafford í gær í stórleik helg-
arinnar í ensku úrvalsdeildinni þegar
hann jafnaði metin í 1:1
rétt áður en flautað
var til leiksloka.
Chelsea er enn tap-
laust eftir níu
leiki, tíu stig-
um á undan
United. »6
Chelsea enn taplaust
eftir för til Old Trafford
Bikarmót Skautasambandsins var
haldið í Reykjavík um helgina og gekk
mjög vel og greinilegt að framfar-
irnar eru miklar í greininni. Sem
dæmi má nefna að Vala Rún B. Magn-
úsdóttir, meistarinn frá því í fyrra,
setti met í stuttu æfingunum, en það
dugði þó ekki til sigurs því Agnes Dís
Brynólfsdóttir sýndi frábærar æfing-
ar daginn eftir og sigraði. »8
Miklar og stöðugar
framfarir í listhlaupi
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
„Desember hefur alltaf verið sölu-
lægsti mánuðurinn hjá okkur. Við
höldum okkar jól eins og aðrir og
skreytum búðina en svo seljum við
þetta dót sem við skreytum með því
það er að berast allt árið.“ Þetta seg-
ir Friðrik Ragnarsson, verslunar-
stjóri í Góða hirðinum, en rekstur
nytjamarkaðarins hefur vaxið ár frá
ári og nú er svo komið að hann hefur
lagt undir sig allt húsnæðið í Fells-
múla 28.
Að sögn Friðriks er sumarið gjöf-
ulasti tíminn í versluninni, þá kemur
mest inn af vörum og þá nær salan
sömuleiðis hámarki. Umræddur
varningur berst frá endurvinnslu-
stöðvum Sorpu en Friðrik segir
starfsmenn Góða hirðisins tæma um
20 gáma á viku og giskar á að um sé
að ræða í kringum 40 tonn. Hann
segir lager verslunarinnar lítinn og
vörurnar renni jafnóðum í gegn.
En hvað selst hraðast?
„Smávaran, t.d. borðbúnaður og
annað, er helmingurinn af sölunni,“
svarar Friðrik. „Myndir, styttur,
glervasar, borðbúnaður, pottar og
pönnur. Þetta hefur alltaf verið
helmingurinn af sölunni í gegnum
árin. Svo koma bækur þar á eftir,“
segir hann, en allt sem heiti antík
njóti einnig mikilla vinsælda.
Gullmolar inn á milli
Friðrik segir verðlagið í Góða
hirðinum hafa haldið sér í gegnum
árin og sé mun lægra en t.d. á not-
uðum vörum á netinu. Í „betri stofu“
verslunarinnar er eilítið meira lagt á
hlutina en inn á milli þess gíf-
urlega magns vara sem ber-
ast Góða hirðinum má oft
finna fjársjóði.
„Það koma oft gullmolar,“
segir Friðrik, en þeim sé
safnað yfir einhvern
tíma og þeir síðan settir
á uppboð einu sinni til tvisvar á ári.
Á einu slíku voru m.a. boðin upp
verk eftir Guðmund frá Miðdal. En
heldur hann að fólk sé að gefa þessa
hluti frá sér meðvitað eða óvart?
„Fólk er bara að gefa. En ég held
að í mörgum tilfellum sé það þannig
að fólk hefur ekki hugmynd um
verðmætið í þessu. Og ungt fólk í
dag hefur engan áhuga á þessu, ekki
nokkurn einasta,“ svarar Friðrik.
Aðspurður segist Friðrik oft fá þá
spurningu hvort starfsmenn Góða
hirðisins taki upp „nýjar“ vörur á
ákveðnum dögum en hann segir þær
settar inn í búð jafnóðum og þær
berast. „Við fáum oft þessa spurn-
ingu. Þetta var kannski áður, fyrir
mína tíð, en þetta er ekki svoleiðis
núna.“
Góði hirðirinn vex og dafnar
Nytjamarkaður
Sorpu gengur vel
og hefur stækkað
Morgunblaðið/Þórður
Vinsæll Friðrik segir röð myndast við verslunina hvern einasta dag. Allur ágóði af sölu í Góða hirðinum rennur til
góðgerðarmála. Frá 1999 hafa 177 milljónir króna verið veittar í styrki til góðgerðarsamtaka og góðra málefna.
„Þetta er yfirleitt
sami hópurinn, svona
40-50 manns, sem
bíður hérna fyrir ut-
an,“ segir Friðrik um
röðina sem myndast
við verslunina fyrir
opnun á degi hverjum.
Aðspurður segir hann
að líklega séu ein-
hverjir í þessum hópi
sem versli í Góða hirð-
inum en selji vörurnar síðan
áfram.
„Ég reikna nú með því, ýmist
selur þetta í Kolaportinu eða á
netinu. Ég hef nú svo sem ekk-
ert velt því sérstaklega fyrir
mér, enda er okkur alveg sama
hver kaupir vöruna þannig séð.
Við höfum náttúrlega bara
áhuga á að koma henni aftur í
umferð og það er bara vel,“ seg-
ir hann.
Sumir að kaupa til að selja
VILJA BARA KOMA HLUTUNUM AFTUR Í UMFERÐ
Leikstjórinn Jón
Gunnar Þórðarson
heldur fyrirlestur
í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri undir yfir-
skriftinni Rann-
sóknarvinna
leikstjórans. Þar
fjallar hann um
rannsóknarvinn-
una er liggur að
baki þremur sýn-
ingum sem hann hefur sett upp; Lilju,
Djáknanum og Makbeð.
Rannsóknarvinna
leikstjórans rædd
Jón Gunnar
Þórðarson