Morgunblaðið - 08.10.2014, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
ÍÞRÓTTIR
Körfubolti Ingi Þór, þjálfari Íslandsmeistara Snæfells, sér fram á spennandi baráttu 5-6 liða um efstu sæti
Dominos-deildarinnar. Eðlilegt að Keflavík sé spáð titlinum. Fallslagurinn einvígi Hamars og Breiðabliks 4
Íþróttir
mbl.is
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
FH-ingurinn Atli Guðnason var besti leikmaður
Pepsi-deildar karla í knattspyrnu árið 2014 að
mati Morgunblaðsins en Atli fékk flest M í ein-
kunnargjöf Morgunblaðsins. Þetta er í þriðja sinn
sem Atli er útnefndur besti leikmaður deildar-
innar hjá Morgunblaðinu en hann hlaut þennan
titil árið 2009 og 2012.
„Það er gaman að fá viðurkenningar en ég átti
ekki von á þessu þar sem ég var varamaður í
nokkrum leikjum í sumar. Heilt yfir var ég nokk-
uð ánægður með eigin frammistöðu en það má
samt alltaf gera betur. Ég byrjaði tímabilið ekk-
ert sérstaklega vel en mér gekk vel síðari hluta
mótsins. Ég hefði svo sannarlega viljað setja eitt
mark í lokaleiknum og verða Íslandsmeistari og
þá hefði tímabilið verið fullkomið,“ sagði Atli við
Morgunblaðið en hann skoraði 10 mörk í 22 leikj-
um FH-inga í deildinni í sumar.
Næstum því tímabil hjá okkur
Atli segist enn vera að ná áttum og jafna sig eft-
ir vonbrigðin í úrslitaleiknum á móti Stjörnunni
þar sem Stjarnan fagnaði 2:1 sigri í Kaplakrika og
varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn.
„Ég held að við höfum jafnað stigametið hjá FH
og að ná ekki að vinna titilinn með því að fá 51 stig
er eiginlega sorglegt. Það var annað lið sem gerði
aðeins betur og Stjarnan hlýtur því að eiga Ís-
landsmeistaratitilinn skilinn. Þetta var svona
næstum því tímabil hjá okkur og þegar maður
skilur við það þá verður það að teljast vonbrigði
fyrir okkur. Við duttum út úr bikarnum í 32-liða
úrslitunum, áttum mikla möguleika á að komast í
lengra í Evrópudeildinni en hentum því frá okkur
með tapinu á móti Elfsborg og töpum svo á heima-
velli fyrir Stjörnunni í úrslitaleiknum um Íslands-
meistaratitilinn. Þegar kom að stærstu leikjunum
þá klikkuðum við og við erum hundsvekktir að ná
ekki stórum titli í hús annað árið í röð,“ sagði Atli.
Klúðruðum þessu sjálfir
Spurður hvað hafi að hans mati gert útslagið
um að Stjörnunni tókst að landa titlinum eftir-
sótta sagði Atli:
„Það voru bara við sjálfir og engir aðrir. Við
fengum fimm til sex góð tækifæri til að skora
mark í stöðunni 1:1. Það er hluti af leiknum að
dómarar geri mistök. Þeir gerðu augljóslega mis-
tök sem féllu okkur í mót en stundum fellur þetta
með manni og stundum á móti. Það var bara skrif-
að í skýin að Stjarnan ætti að verða Íslandsmeist-
ari. Það var eiginlega ekkert sem klikkaði hjá
þeim í sumar. Ef það var jafnt hjá þeim á 90. mín-
útu þá náðu þeir á einhvern hátt að lauma inn sig-
urmarkinu. Ef meistaraheppni er til þá er það í
þessu tilfelli,“ sagði Atli.
Atli varð 30 ára á dögunum og hélt upp á daginn
með eftirminnilegum hætti en hann skoraði
þrennu og lagði upp eitt mark í sigri á móti Val.
Nú þegar löngu og ströngu tímabili er lokið getur
Atli einbeitt sér að föðurhlutverkinu. Atli kennir
stærðfræði við Fjölbrautaskólann í Garðabæ en
hann er nú í feðraorlofi og sinnir 11 mánaða gam-
alli dóttur sinni. Ekki fá Atli og samherjar hans
langt frí því æfingar verða byrjaðar á nýjan leik
fyrr en varir.
Áfram með FH
„Við munum klárlega læra af þessu tímabili. Við
þurfum bara að gera aðeins betur heldur en í ár
þótt það verði erfitt. Ef okkur tekst það þá hljót-
um við að vinna,“ sagði Atli, sem verður áfram í
herbúðum FH, félagsins sem hann er uppalinn
hjá en um tíma lék hann sem lánsmaður með HK
og Fjölni. Frá árinu 2006 hefur Atli verið í stóru
hlutverki með FH-liðinu og hefur fjórum sinnum
orðið Íslandsmeistari með liðinu og tvívegis bik-
armeistari.
„Ég er með samning til loka næsta árs en ég
veit að það eru nokkuð margir leikmenn samn-
ingslausir hjá okkur núna. Menn munu setjast
niður á næstu dögum og fara yfir stöðuna og ég
held að flestir þeirra sem eru með lausa samninga
vilji vera áfram. FH er frábær klúbbur og að-
staðan sú besta á landinu í dag og á bara eftir að
verða betri þegar fótboltahúsin verða risin.“
Atli segir að stundin inni í búningsklefanum eft-
ir tapleikinn á móti Stjörnunni hafi verið erfið.
„Eðlilega var þungt andrúmsloftið inni í klef-
anum. Menn litu hver á annan og spurðu hvernig
gátum við klúðrað þess. Það voru allar forsendur
fyrir því að vinna leikinn og sérstaklega eftir að
Veigar var rekinn útaf.
Bökkuðum allt of mikið
Innst inni þá held ég að menn hafi hugsað að
þetta hafi verið okkur sjálfum að kenna. Því oftar
sem við klikkuðum úr færunum þá drógum við
okkur smátt og smátt aftar á völlinn og það þrátt
fyrir að vera manni fleiri. Við bökkuðum allt of
mikið og buðum bara hættunni heim. Reynt lið
eins og FH hefði bara átt að halda boltanum og
með því hefðu Stjörnumenn farið út úr stöðum
sínum. Við áttum að skora sigurmarkið í stað þess
að reyna að halda fengnum hlut,“ sagði Atli, sem
er ekki búinn að sjá leikinn. „Ég mun ekki horfa á
leikinn. Ég sá einhver brot úr leiknum en gafst
upp á því að horfa.“
Má alltaf gera betur
Atli Guðnason úr FH besti leikmaðurinn 2014 Fékk flest M í einkunnagjöf
Morgunblaðsins Enn að ná áttum og jafna sig eftir vonbrigðin á laugardaginn
Morgunblaðið/Eggert
M Atli Guðnason leikmaður FH fékk flest M í einkunnagjöf Morgunblaðsins í Pepsi-deild karla í knatt-
spyrnu á nýafstöðnu Íslandsmóti. FH fékk jafnframt flest M samanlagt í einkunnagjöfinni í sumar.
8. október 1989
Atli Eðvaldsson, landsliðsfyrirliði
í knattspyrnu, spilar fyrstur Ís-
lendinga deildaleik
með tyrknesku liði
og skorar eitt
marka Genclerbir-
ligi í sigurleik gegn
Bursaspor, 3:1.
Hann samdi við fé-
lagið skömmu áður
eftir að hafa leikið með Val um
sumarið.
8. október 1994
Ísland bíður lægri hlut fyrir Eng-
landi, 1:2, í fyrri leik liðanna í 8-
liða úrslitum Evrópumóts
kvenna í knattspyrnu á Laugar-
dalsvellinum en þar spila liðin
jafnframt til úrslita um sæti á
HM 1995. Margrét Ólafsdóttir
skorar mark Íslands og jafnar þá
metin en með sigrinum stendur
England vel að vígi fyrir seinni
leikinn í Brighton.
Á ÞESSUM DEGI
Miðasala á Evr-
ópumótið í hóp-
fimleikum sem
hefst næsta mið-
vikudag í Laug-
ardalshöll hefur
ekki bara gengið
vel, heldur hefur
Fimleika-
sambandi Íslands
tekist að fá 350
sjálfboðaliða til
að starfa við mótið, þar af 32 heil-
brigðisstarfsmenn sem verða við
öllu búnir meðan á mótinu stendur.
Sex af þeim eru læknar.
„Það verða alltaf minnst tveir
sjúkraþjálfarar og einn læknir í
Laugardalshöll á meðan mótið
stendur yfir,“ sagði Kristján Er-
lendsson, yfirlæknir mótsins, en
hann er jafnframt fyrrverandi for-
maður FSÍ.
Foreldrar og gamlir iðkendur
Kristján segir að vel hafi gengið
að fá sjálfboðaliða. „Já, það gekk
bara vel. Þetta eru í mörgum til-
vikum foreldrar fimleikafólks og
svo nokkrir fyrrverandi iðkendur.“
„Það er ekki beint gerð nein
krafa á okkur frá Evrópska fim-
leikasambandinu, en við viljum hafa
alla heilbrigðisþjónustu eins góða
og hægt er og erum við öllum búin.
Á undanförnum árum hafa menn
ekki alltaf staðið sína plikt. Við vilj-
um því gera þetta almennilega og
getum vonandi gefið tóninn fyrir
mótshaldara í framtíðinni,“ sagði
Kristján sem vonast þó vitanlega
eftir því að sem minnst verði að
gera hjá honum og hans teymi á
Evrópumótinu sem hefst eftir viku.
thorkell@mbl.is
32 heilbrigð-
isstarfsmenn
sjálfboðaliðar
Kristján
Erlendsson