Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.10.2014, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 2014 Sölufulltrúar Undirritaður lögmaður og löggiltur fasteignasali hefur áhuga á að fá til samstarfs við sig fólk til aðstoðar við sölu fasteigna (sölufulltrúa) - réttindi til sölu fasteigna æskileg en ekki skilyrði. Væntanlegir umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi lágmarksskilyrði: 1. Vera fjárráða 2. Vera reglusamir í hvívetna 3. Hafa ríka þjónustulund 4. Vera skipulagðir 5. Vera vel skrifandi og talandi á íslensku Í upphafi ráðningar verður haldið námskeið í undirbúningi töku fasteigna til sölumeð- ferðar, gagnaöflunar, gerðar söluyfirlita og uppsetningu kauptilboða skv. þeim reglum sem lögin um sölu fasteigna kveða á um. Boðið er upp á frábæra vinnuaðstöðu í björtum húsakynnum miðsvæðis á höfuð- borgarsvæðinu. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið: rettarbakki@gmail.com Kristján Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali. CenterHotels óska eftir að ráða starfsmann í sölu- og bókunardeild. Viðkomandi er ábyrgur gagnvart Sölu og bókunarstjóra fyrir daglegri umsjón einstaklingsbókana á hótelunum sem og uppfærslu verða og upplýsinga í öllum bókunarvélum og öðrum dreifileiðum á netinu. Hann hefur umsjón með og samræmir störf er snúa að einstaklingsbókunum og vinnur stöðugt við að ná markmiðum fyrirtækisins á sviði tekjustýringar og nýtingar. Starfsmaðurinn skal sýna frumkvæði í þeim málum er heyra undir deildina og hafa ávallt góða yfirsýn yfir bókanir fyrirtækisins. Leitum að fólki með reynslu af sambærilegum störfum, góða tungumálakunnáttu, góða tölvuþekkingu og skilning á markaðsmálum. Starfið heyrir undir Sölu og Bókunarstjóra CenterHotels og umsóknir óskast sendar á sales@centerhotels.com fyrir 10.október. Spennandi tækifæri Starfsmaður í Sölu- og Bókunardeild ER AUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? VIÐSKIPTA Úrvalsv i 11 , ís talan 3 985 1. ,5288 4,1515 ,90157 Fjó i i ki hl h fu v r r ut a arr r stærst Eignastýring, markaðsviðskipti g j gj a o fyrirtæk aráð öf. Framúrskarandi árangur ðí þágu vi skiptavin alla fimmtudaga VIÐSKIPTABLAÐ Í tilefni aldarafmælis skóla- hússins á Bjarnastöðum á Álftanesi verður dagskrá haldin í hátíðarsal íþrótta- hússins á Álftanesi í dag, laugardaginn 4. október, kl. 14-16. Fyrri hluti dagskrár- innar nefnist Bessastaðir og Bjarnastaðaskólinn. Þar flytja frú Vigdís Finnboga- dóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Pétur H. Ár- mannsson og Anna Ólafs- dóttir Björnsson erindi. Fyrrverandi nemendur Bjarnastaðaskóla koma að seinni hluta dagskrárinnar Minningar frá Bjarnastöð- um. Að lokinni dagskrá verður opið hús á Bjarna- stöðum þar sem sýndar verða myndir og munir sem tengjast skólanum. Skipuleggjendur dag- skrárinnar eru Félag áhugamanna um sögu Bessastaðaskóla, Fugla- og náttúruverndarfélag Álfta- ness í samstarfi við Garða- bæ. Skólahúsið á Bjarnastöð- um var reist árið 1914. Þar er eitt þeirra skólahúsa sem fyrsti íslenski arkitektinn, Rögnvaldur Ólafsson, teikn- aði ásamt aðstoðarmanni sínum, Einari Erlendssyni. Flest þeirra skólahúsa sem Rögnvaldur teiknaði eru nú horfin eða mikið breytt vegna viðbygginga. Skóla- húsið á Bjarnastöðum er eitt af þeim fáu sem haldið hafa ytra útliti og formi í nokkurn veginn upp- runalegri mynd. Skólahús til 1978 Fram til ársins 1978 var skólahald á Bjarnastöðum en skólahaldið færðist svo yfir í Álftanesskóla í nýja skólabyggingu. Innréttingu gamla skólahússins var þá breytt til að koma mætti skrifstofu Bessastaðahrepps fyrir í húsinu. Sveitarfélagið var seinna nefnt Álftanes og var sameinað Garðabæ fyrir nokkrum árum. Á síðustu mánuðum hefur verið unnið að viðhaldi innanhúss og gagngerum endurbótum ut- anhúss á Bjarnastöðum. Í framtíðinni er ætlunin að félög geti fengið aðstöðu á Bjarnastöðum til funda- halda og annars. sbs@mbl.is Hátíð í hundrað ára skóla  Bjarnastaðir í eina öld  Hátíð á Álftanesi  Hús fær nýtt hlutverk Bjarnastaðir Gamla skólahúsið sem hefur reyndar nýst á marga lund og var síðustu árin hreppsskrifstofa. Laun á opinberum markaði eru enn 17% lægri, en í einka- geiranum. Þetta kemur fram í nýrri launakönnun sem gerð var fyrir SFR – stéttarfélag í almannaþjónustu. Laun fólks í SFR og Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar voru lögð ti l grundvallar. Kom þar fram að meðalgrunnlaun SFR félaga eru rúmar 333 þús. kr. en grunnurinn hjá VR fólki er 505 þúsund kr. Þarna munar 172 þúsund kr. Þegar heild- arlaunin eru skoðuð er munur minni, eða 398 þúsund kr. hjá SFR á móti 542 þúsund kr. hjá VR. Launamunur er mikill „Það er ekkert launungar- mál að grunnlaunum opin- berra starfsmanna er haldið niðri og þeim bætt lágu launin að hluta til með auka- greiðslum, s.s. óunninni yfir- vinnu, eins og rætt hefur verið um í fjölmiðlum að undan- förnu. Þrátt fyrir þetta stend- ur eftir að launamunur á milli opinberra starfsmanna og starfsmanna á almennum markaði er 17%,“ segir í frétt á vef SFR. Mat félagsins er að ekki þurfi því að koma á óvart, eins og könnunin leiðir í ljós, að VR-fólk sé ánægðara með sinn hlut en aðrir. Helmingur þess er ánægður með sitt en aðeins 18% SFR félaga. Þá er launamunur kynjanna hjá SFR mun hærri en á almenna markaðinum. Er rúm 13% hjá VR og 21% hjá SFR ef heildarlaun eru skoðuð. Alls ¾ hlutar SFR-fólks, eða um 76% telja starfsöryggi sitt standa í stað á milli ára. Flestir hafa þó upplifað að- haldsaðgerðir á vinnustaðn- um, eða um 90%. Í könnun þeirri sem Capa- cent gerði fyrir SFR, var spurt um ýmsa afmarkaða þætti í starfsumhverfi, svo sem álag sem 42% telja of mikið. Aðrir telja það hæfi- legt. Ef þetta er rýnt eftir flokkum kemur í ljós að stofn- anir í flokknum innheimtu- menn ríkissjóðs, almanna- tryggingar og lánasjóður eru sér á báti. Í þessum flokki eru Tryggingastofnun ríkisins, Sjúkratryggingar Íslands, Ríkisskattstjóri, Tollstjóri, sýslumenn og Lánasjóður ís- lenskra námsmanna. Fólk í heilbrigðisþjónustu telur álagið einnig mikið. Langar ekki í vinnu næsta dag Rúmur fimmtungur svar- enda á erfitt með að hætta að hugsa um vinnuna þegar heim er komið og svipað hlutfall segist úrvinda eftir daginn. Um 12% segjast oft hafa áhyggjur af því að upp komi vandamál í vinnunni sem þeir ráða ekki við og ámóta margir segja sig oft ekki langa í vinnu næsta dag. Karlar eiga erfið- ara en konur með að hætta að hugsa um vinnuna eftir að heim er komið. Almennt á þetta helst við við um fólk sem sinnir félagsþjónustu. sbs@mbl.is Grunnlaunum er haldið niðri  Miklu munar á kjörum SFR og VR-fólks  Starfsöryggi ágætt en álagið talsvert  Hugsa áfram um vinnuna þegar heim er komið Morgunblaðið/Golli Landspítalinn Margir félagsmenn SFR starfa á sjúkrahús- unum. Þar finnur starfsfólk fyrir álagi, eins og víðar. Runólfur Pálsson, yf- irlæknir nýrnalækn- inga á Landspítala og prófessor í lyflæknis- fræði við læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið kjörinn framtíð- arforseti Evrópusam- taka lyflækninga. Það þýðir að hann mun sitja í framkvæmda- stjórn samtakanna næstu tvö árin sem framtíðarforseti og taka síðan við sem forseti. Evrópusamtök lyflækna (European Federation of Internal Medicine, EFIM) eru fagsamtök, það er samband félaga lyflækna í Evrópulöndum. Þau halda ár- legt vísindaþing, standa fyrir skóla fyrir unga og verðandi lyflækna og gefa út tvö tímarit, þar á meðal European Journal of Internal Medicine. Skrifstofa samtak- anna er í Brussel. Félag íslenskra lyf- lækna er aðili að samtökunum en Run- ólfur hefur verið formaður þess frá 2001. Runólfur lauk embættisprófi frá læknadeild Háskóla Íslands 1985 og stundaði síðar sérfræðinám í lyf- og nýrnalækningum. Hefur starfað á Land- spítala frá 1998. Runólfur kjörinn framtíðarforseti Runólfur Ólafsson Þrír stundakennarar hafa fengið fasta stöðu aðjúnkts á viðskiptasviði Háskólans á Bifröst. Þetta eru Brynjar Þór Þorsteinsson, Haraldur Daði Ragnarsson og Ragn- ar Már Vilhjálmsson. Brynjar Þór Þorsteinsson er með M.Sc. í alþjóða- viðskiptum frá CBS við- skiptaháskólanum í Kaup- mannahöfn og B.Sc.gráðu í viðskiptafræði frá Bifröst. Hefur verið stundakennari á Bifröst síðan 2012 og kennt markaðsfræði, þjónustu- stjórnun og samningatækni. Er og yfirmaður markaðs- og samskiptamála Háskólans á Bifröst. Haraldur Daði Ragn- arsson er með M.Sc. í hag- fræði og stjórnun sem og í al- þjóðaviðskiptum og stjórn- málafræði frá CBS við- skiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hefur kennt á Bifröst og við HR og á að baki fjölbreyttan feril í atvinnulífinu. Ragnar Már Vilhjálmsson, þriðji mað- urinn í þessum hópi, hefur verið stunda- kennari við Háskólann á Bifröst síðan árið 2004. Hefur kennt ýmsa áfanga í markaðsfræðum og leiðbeint fjölda nemenda við ritgerðaskrif. Frá 1997 hefur Ragnar Már starfað við markaðs- stjórn og á og rekur í dag ráðgjafafyr- irtækið Manhattan Marketing, við þriðja mann. Þrír nýir fá fasta stöðu á Bifröst Bifröst Mikilvæg stofnun í Borgarfjarðarhéraði. Haraldur Daði Ragnarsson Brynjar Þór Þorsteinsson Ragnar Már Vilhjálmsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.