Morgunblaðið - 12.11.2014, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 2. N Ó V E M B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 265. tölublað 102. árgangur
EINAR SEMUR
TÓNLIST
FYRIR BÖRN
STÚDENTA-
LEIKHÚSIÐ OG
STUNDARFRIÐUR
DR. GUNNI OG
SKÆRT LÚÐAR
HLJÓMA
FRUMSÝNING 10 SAFNDISKUR 30HÖFUNDUR 33
Kaupi fleiri raftæki
» Gestur Hjaltason, fram-
kvæmdastjóri Elko, telur leið-
réttinguna kunna að auka
eftirspurn eftir raftækjum.
» Áhrifin verði þó mun minni
en vegna lækkunar vörugjalda.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Leiðréttingin mun auka eftirspurn
eftir neysluvörum, þar með talið
dýrum vörum eins og bifreiðum.
Um þetta eru viðmælendur
blaðsins í atvinnulífinu sammála.
Haukur Oddsson, forstjóri Borg-
unar, telur að leiðréttingin muni
eiga þátt í mikilli jólaverslun í ár.
„Fólk sér að það hefur aukið
greiðslurými og byrjar að eyða.
Ég á von á því að jólaverslunin
verði meiri en við höfum séð í
langan tíma. Það mun væntanlega
þurfa að fara aftur til 2007 til að
finna meiri jólaverslun ef fram
heldur sem horfir,“ segir Haukur.
Grétar Jónasson, framkvæmda-
stjóri Félags fasteignasala, segir
markaðinn hafa verið í frosti á
síðustu vikum. „Það verður að
ætla að leiðréttingin muni örva
fasteignamarkaðinn,“ segir Grét-
ar.
Özur Lárusson, framkvæmda-
stjóri Bílgreinasambandsins, seg-
ir bílasala telja að leiðréttingin
muni örva sölu en hins vegar ekki
leiða til sölusprengju. Sigurjón
Örn Þórsson, framkvæmdastjóri
Kringlunnar, segir kaupmenn bú-
ast við meiri sölu.
MBúast við meiri »4
Leiðrétting auki kaupgleði
Fasteignasalar, kaupmenn og bílasalar telja leiðréttinguna munu auka einkaneyslu
Dýrar vörur seljist betur Forstjóri Borgunar spáir mestu jólaverslun frá 2007
Íslendingar telja samkynhneigða
foreldra í sambúð betri uppalendur
en einstæða foreldra. Þetta eru nið-
urstöður alþjóðlegrar könnunar
þar sem spurt var um kyn, kyn-
hneigð og barnauppeldi.
Könnunin er gerð í 48 löndum og
voru niðurstöðurnar kynntar í
Þjóðarspegli Félagsvísindastofn-
unar Háskóla Íslands í lok síðasta
mánaðar. Þar kom m.a. fram að
70% svarenda hér á landi telja eitt
foreldri geta alið upp barn jafn vel
og tveir foreldrar. Talsvert fleiri,
eða yfir 80%, töldu samkynhneigð
pör, burtséð frá því hvort um er að
ræða homma eða lesbíur, geta alið
barn upp jafn vel og gagnkyn-
hneigðir foreldrar.
Þorgerður Einarsdóttir, ein
þeirra sem stóðu að könnuninni,
segir að niðurstöðurnar komi nokk-
uð á óvart, hér á landi sé sterkari
hefð fyrir því heldur en víða annars
staðar að börn alist upp hjá ein-
stæðu foreldri. Niðurstöður sýna
líka að Íslendingar eru talsvert já-
kvæðari en ýmsar aðrar þjóðir
gagnvart öðrum fjölskyldugerðum
en þeirri hefðbundnu. »12
Tvær mömmur betri
uppalendur en ein
Nemendur Hagaskóla stóðu sig vel á öðru und-
anúrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni
grunnskólanema í Reykjavík, sem fór fram í
Borgarleikhúsinu í gærkvöldi.
24 skólar taka þátt í keppninni í ár og fóru
fyrstu undanúrslit fram á mánudaginn. Þá kom-
ust Austurbæjarskóli og Laugalækjarskóli
áfram með sín atriði. Í gærkvöldi komust svo
Kelduskóli í Vík og Seljaskóli áfram.
Þriðja undanúrslitakvöldið er í kvöld og síðan
keppa átta skólar til úrslita í Skrekk mánudag-
inn 17. nóvember.
Meyjar og peyjar sýna hæfileika sína í Skrekk
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hæfileikakeppni grunnskólanema í Reykjavík fer fram í Borgarleikhúsinu
Í íþróttaheim-
inum hér á landi
leikur samfélags-
miðillinn Twitter
æ stærra hlut-
verk en þar fara
fram mikil sam-
skipti á milli
íþróttaáhuga-
fólks.
Knattspyrnuþjálfari segir að sér
finnist það gefa íþróttaviðburðum
sem hann er að horfa á aukið gildi
að geta fylgst með umræðunni á
Twitter. Umfjöllun um hlutverk
Twitter í íþróttalífinu má finna í
Morgunblaðinu í dag. » Íþróttir
Twitter spilar stóra
rullu í íþróttunum
Sala á nýjum lúxusbílum á fyrstu 45
vikum ársins var 43,7% meiri en á
sama tímabili í fyrra, jókst úr 492
bílum í 707. Þar
af hefur salan
til einstaklinga
farið úr 316
lúxusbílum í
356, sem er
12,7% aukning.
Með lúxusbílum
er átt við vörumerkin Audi, BMW,
LandRover, Lexus, Mercedes Benz,
Porsche, Tesla og Volvo. Meðalverð
slíkra bifreiða er um 8,5 milljónir
kr., samkvæmt greiningu Brim-
borgar, og hafa því selst lúxusbílar
fyrir sex milljarða í ár.
Athygli vekur að sala á lúx-
usbílum til fyrirtækja eykst um
63,6%. Á fyrstu 45 vikum ársins
keyptu fyrirtæki þannig 175 lúxus-
bíla en 107 í fyrra. Til samanburðar
keyptu fyrirtækin samtals 204 lúx-
usbíla árin 2009, 2010, 2011 og
2012. Salan er þó langt undir með-
altali áranna 1999 til 2008, sem var
um 422 lúxusbílar á ári. Árin 2006,
2007 og 2008 keyptu fyrirtæki 600,
619 og 653 lúxusbíla á fyrstu 45 vik-
um hvers árs.
Bílaleigur eru hér ekki með-
taldar. Alls keyptu þær 176 lúx-
usbíla á fyrstu 45 vikum ársins en
69 í fyrra og er það 155% aukning.
»4
Sprenging í sölu
á lúxusbílum til
fyrirtækja
Gísli Freyr Valdórsson, fyrrverandi
aðstoðarmaður Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur innanríkisráðherra, ját-
aði fyrir henni síðdegis í gær að hafa
afhent fjölmiðlum skjal úr ráðuneyt-
inu varðandi hælisleitanda í nóvem-
ber 2013. Hann greindi frá þessu á
fundi sem hann óskaði eftir með ráð-
herranum eftir að réttarhöldum í
máli ríkissaksóknara gegn honum
hafði verið frestað í gær. Þetta kom
fram í fréttatilkynningu sem innan-
ríkisráðherra sendi fjölmiðlum. Í
framhaldi af játningunni var Gísla
Frey þegar vikið frá störfum.
„Trúnaðarbrot Gísla Freys gagn-
vart mér, ráðuneytinu og almenningi
öllum er algjört og alvarlegt. Gísli
Freyr hefur ítrekað haldið fram sak-
leysi sínu, ekki aðeins gagnvart yf-
irvöldum og fjölmiðlum, heldur einn-
ig gagnvart samstarfsfólki sínu og
yfirmönnum í ráðuneytinu,“ sagði í
tilkynningu Hönnu Birnu.
Afhenti upplýsingar í góðri trú
„Þegar ég afhenti fjölmiðlum upp-
lýsingarnar var það gert í góðri trú.
Þá gerði ég mér ekki grein fyrir al-
varleika málsins, hvað þá að um lög-
brot var að ræða. Það var dóm-
greindarbrestur af minni hálfu,“
sagði í tilkynningu frá Gísla Frey í
gærkvöldi. „Mistök mín fólust í því
að telja eðlilegt að upplýsa almenn-
ing á Íslandi betur um efni málsins
frá fleiri hliðum en komið höfðu
fram.
Daginn eftir gerði ég mér grein
fyrir að ég hafði tekið ranga ákvörð-
un. Í stað þess að vera maður til að
viðurkenna mistök mín strax sagði
ég ráðherra ósatt þegar hún spurði
mig hvort ég hefði sent fjölmiðlum
upplýsingarnar.“ »2
Játaði að hafa afhent skjalið
Gísli Freyr gerði sér ekki grein fyrir alvöru málsins