Morgunblaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014 BÍLAR 3 Þ að mun lítið vanta upp á lúxus og stællegan staðalbúnað í vænt- anlegri viðhafnarútgáfu af Panamera sem Porsche hyggst senda frá sér. Bíllinn mun heita Porsche Panamera Exclusive Series og verður hann aðeins smíðaður í 100 eintök- um. Bíllinn er byggður á Panamera Turbo S Executive, sem er til þessa flottasta útfærslan af Panamera, 570 hestöfl með breiðu hjólhafi og sérstaklega ríflegu rými fyrir farþega í aft- ursæti. Þessi álitlegi lúxusvagn verður heimsfrumsýndur á al- þjóðlegu bílasýningunni í Los Angeles sem verður opnuð al- menningi föstudaginn 21. nóv- ember næstkomandi. Tvílit yfirbygging Exclusive Series-bílarnir munu, fyrstir Panamera-bíla, skarta tvítóna lit þar sem dimm- brúnn tónn er á framhurðunum í bland við svartan aðallitinn. Eftir því sem aftar dregur á hlið bíls- ins dofnar sá brúni út og til að ná þessari tæknilega flóknu málningarvinnu réttri dugar ekk- ert minna en að handmála hvern og einn hinna hundrað bíla. 20 tommu felgur spilla svo ekki fyr- ir hliðarsvipnum nema síður sé. Innra byrðið er síst lakara en það ytra, þar sem sætin eru klædd Poltrona Frau-leðri og sætin eru öll loftræst; skjald- armerki Porsche er gatað í sæt- isbökin til að tryggja loftflæði um líkama þeirra sem eru svo lánsamir að fá að ferðast um í Panamera Exclusive Series. Fyrir þá sem virkilega vilja njóta ferð- arinnar er hægt að kaupa sem viðbót 5 tösku ferðasett sem passar í skottið – úr sama önd- vegisleðrinu að sjálfsögðu. jonagnar@mbl.is Porsche kynnir lúxusbíl í takmörkuðu upplagi Panamera í viðhafnarútgáfu Það er ekki í kot vísað innandyra í Exclusive Series. Línurnar eru laglegar og tvítóna liturinn kemur glettilega vel út.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.