Morgunblaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 7
Verðbréfasali smellir mynd af bíl sem ef til vill er langtímamarkmið hans – Ferrari LaFerrari. geta komist sem næst því að líkja eftir mótorhjóli með mannslíkam- anum. „Þetta var flókið myndaspil að raða saman. Lögun, styrkleiki og líkamsfærni hverrar konu auð- veldaði að byggja sérhvern hluta vélfáksins,“ segir Trina Merry. Fjórir förðunarmeistarar aðstoð- uðu hana við að draga fram hina einstöku smærri þætti hjólsins, eins og dekkin. Eitt módelanna sex, Lana Baumgartner, segir að þetta hafi verið óvenjuleg lífsreynsla. „Að umbreyta litlum hópi áhugasamra kvenna í mynd af mótorhjóli virtist á vissu stigi tiltölulega útilokað. Niðurstaðan styður hins vegar kenninguna um að allt sé hægt, hafi menn trú á því. agas@mbl.is MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 2014 BÍLAR 7 fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík, Selfossi og Barðanum Skútuvogi Nú þegar veturinn er genginn í garð munu langar frostnætur reyna Tudor er hannaður til þess að þola það álag sem slíkar nætur skapa. Forðastu óvæntar uppákomur. Tudor - betra start! Betra start fyrir þig og þína Þá sem dreymt hefur um að feta í fótspor James Bond í myndinni „The Spy Who Loved Me“ og fara í bíltúr neðansjávar gætu nú látið drauma sína ræt- ast. Það þarf þó sæg af seðlum til að kaupa neðansjávarbíl. Slíkt farartæki er nú fáanlegt á netsölunni Hammacher Schlemmer og er það sagt standa Lotus Esprit bíl Bonds fyllilega á sporði. Hann líkist þó meira sportbílnum Lotus Elise. Kafbíllinn kostar ekki lítið, eða tvær milljónir dollara, um 240 milljónir króna. Hermt er að hönnuðir hans hafi notið inn- blásturs frá Bond-myndinni ofangreindu. Og ekki er furða þótt hann líkist Lotus Elise því hann er byggður upp af und- irvagni hans. En hvað getur þessi kafbíll svo? Er hann til einhverra stór- ferðalaga í undirdjúpunum eftir að malbikinu á þurru landi sleppir? Hann flýtur fyrst um sinn eftir að út á lög er komið en sígur svo niður fyrir yfirborð- ið fyrir tilstilli ökumanns sem togar í sérstaka köfunarstöng. Þannig kemst hann niður á allt að 10 metra dýpi. Til að knýja kafbílinn áfram í undirdjúpunum dælir sérstakur 54 kílóvatta rafmagnsmótor þrýstivatni út um tvær túður á afturenda hans. Hraðinn er ekki sérlega mikill eða tveir hnútar, sem svarar tæplega fjögurra km/klst hraða. Mótorinn fær afl frá sex 48 volta litíumjóna raf- geymi. Öllu hraðar kemst kaf- bíllinn á þurru landi, eða allt að 120 km/klst. Loks hefur hann 130 km drægi, en um rafbíl er að ræða. Vilji menn njóta útsýnisins neðansjávar fremur en að hafa hugann við stjórn bílsins þá eru í honum leysigeislaskynjarar sem stýrt geta honum sjálfkrafa undir yfirborðinu. Ennfremur eru nægar súrefnisbirgðir í köf- unarbúnaði fyrir ferðalangana tvo til klukkustundar vistar neð- ansjávar. Þarna er ef til vill komin jóla- gjöfin fyrir þá sem skortir eig- inlega ekki neitt. agas@mbl.is Kafbíllinn nær allt að 120 km/klst hraða á landi. Sportbíll fyrir undirdjúpin Súrefnisbirgðir eru til einnar stundar aksturs í hafdjúpunum. Subaru WRX STI sigraði í Tann- istest 2015 (Nordic Car of the Year Jury, tannistest.com) þegar hann þreytti nýverið elgsprófið fræga á 74 km hraða. Sigurveg- arinn er m.a. búinn nýju örygg- iskerfi Subaru, Active Torque Vectoring System, sem kemur í veg fyrir undirstýringu í snögg- um beygjum, en út á það gengur einmitt elgsprófið. Sama búnað er m.a. að finna í nýjum Subaru Outback sem væntanlegur er hjá BL á næsta ári, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. BMW í öðru sæti Í öðru sæti í prófinu varð BMW 220d Coupé á 73 km/klst og þriðja sæti Audi TT á 72 km/ klst. Í elgsprófinu er ekið ákveð- ið á þurru og hörðu undirlagi og síðan beygt snögglega til vinstri, eins og elgur hefði stokkið í veg fyrir hann. Við það lyftist vinstra afturhjól bílsins frá veginum og hann getur oltið sé beygt nægi- lega snöggt. Prófið kom fram 1997 þegar sænski reynsluök- umaðurinn, Robert Collin, annar tveggja ritstjóra Teknikens Värld beitti því fyrstur í reynsluakstri á nýjum bíl sem frægt varð. Stöðugleiki Subaru Hið samhverfa fjórhjóladrif Subaru og lágur þyngd- arpunktur sem orsakast af liggj- andi strokkum boxervélanna hafa lengi verið meginskýringar þess hve Subarubílar þykja stöðugir við erfiðar og hálar að- stæður. Þegar elgsprófinu er beitt á Subaru, sem búinn er nýja ör- yggiskerfinu Active Torque Vec- toring System, setur kerfið ákveðinn bremsuþrýsting á það framhjól sem er í innanverðri beygjunni. Við það togast aft- urhorn bílsins sömum megin niður aftur til að koma í veg fyrir að bíllinn velti. Þegar allir þessir meginkostir Subaru koma sam- an – fjórhjóladrif, afar lágur þyngdarpunktur og öryggiskerfi Active Torque Vectoring System – skapast aksturseiginleikar sem tryggðu Subaru sigur í áð- urnefndu elgsprófi, eins og fram kemur í tilkynningunni. jonagnar@mbl.is Subaru sigrar með nýju öryggiskerfi Subaru WRX STI er gerðarlegasti sportbíll, eins og sjá má á þessum sem var til sýnis á alþjóðlegu bílasýningunni í París í októberbyrjun þessa árs. Subaru stöðug- astur á elgsprófinu Bilasmáauglýsingar ÍSLENSKIR TRÚLOFUNAR- OG GIFTINGAHRINGAR 3.5mm 14k gullpar, 70.900,- með áletrun. Einnig pör úr titanium, silfri og fl. Sérsmíði, framleiðsla og viðgerðarþjónusta. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, www.erna.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.