Selfoss - 19.06.2014, Qupperneq 2
2 19. júní 2014
Kennir ýmissa grasa á blómatón-
leikum í Þorlákshöfn á mánudag
Mánudaginn 23. júní klukkan 20 verður efnt til blómatónleika í Þor-
lákskirkju í Þorlákshöfn. Fram koma
Einar Clausen, söngvari og Arnhild-
ur Valgarðsdóttir píanóleikari. Ein-
ar hefur starfað óslitið við tónlist
frá árinu 1990 og komið víða fram
sem einsöngvari bæði með kórum
og hljómsveitum. Arnhildur hefur
unnið með fjölmörgum tónlistar-
mönnum, stjórnað og spilað með
kórum, útsett, spilað inná diska,
komið fram í útvarpi og sjónvarpi,
samið kvikmyndatónlist og komið
fram á fjölmörgum tónleikum á Ís-
landi sem og erlendis.
Í samræmi við fjölbreytileika
náttúrunnar kennir ýmissa grasa í
efnisskrá tónleikanna. Öll fjalla lögin
um blóm, nefna má td Liljuna, Fífil-
inn, Fjóluna og Rósina. Einar, hinn
ástsæli og fjölhæfi söngvari, bregður
fyrir sig ýmsum tungumálum svo
sem þýsku, frönsku, færeysku, ensku
og íslensku.
Þeim fækkar sem muna eftir rigningunni 17. júní á Þingvöllum fyrir 70 árum. Þegar þjóðin sagði sig frá dönskum og lýsti yfir sjálfstæði. Danir gátu ekki sagt neitt enda ekki sjálfir til frásagnar
þar sem þýskir hernámu land og þjóð.
1944-2014 er ekki langur tími. Ekki í sögu þjóðar og varla heldur í
lýðveldissögu þjóðar. Okkur var kennt það í skóla að Danir hefðu farið
illa með okkur. Mergsogið og niðurlægt. Sem betur er það að koma
betur í ljós að það sé röng söguskoðun. Danir fóru að mestu mildum
höndum um þjóðina. Aðrir hafa leikið okkur harðar. Veðrið, vindar og
við sjálf. Í lok 18. aldar vorum við á útleið í bókstaflegum skilningi.
Þjóðinni blæddi út. Við vorum komin undir 40 þúsundið. Þá datt
íslenskri yfirstétt í hug að senda okkur á Jótlandsheiðar. Ef vera mætti
að við myndum frekar lifa af þar.
Þar sem ég rifjaði þessa sögu á vinabæjarmóti í Silkiborg í Danmörku
í vikunni, var engum hlustenda kunnugt um þetta háttalag okkar. Nú
þykja þetta ein helstu kennileiti danskra. Stoltir sýna þeir aðkomufólki
dásemdir heiðanna. Þeiri eiga meira að segja sérstakt Hedeselskab. Okkur
norrænu gestunum var sýndur sérstakur heiður með því að aka með
okkur um þessar óbyggðir sem heiðarnar alls ekki eru. Gestgjöfunum
var ekki kunnugt um tengingu okkar Íslendinga við hinar jósku heiðar.
Sagan hefði orðið önnur ef við hefðum lent þar til ævarandi dvalar og
til að tala jósku í ofanálag.
Nu sitjum við hér. Höldum utan um lýðræðið en þurfum ekki að berjast
við að komast af á ókunnum slóðum. Finnum samt að því ef aðrir kjósa
að setjast að á Íslandi. Þjóðernisremba fer okkur illa. Við höfum alltaf
gert kröfur til annarra að okkur sé sýndur sómi hvar sem Íslendinga er
að finna.
ÞHH
Hvað ef við
hefðum lent á
Jótlandsheiðum?
LEIÐARI
Finndu þinn innri kraft með hugleiðslu er megininntak
námskeiðsins sem mun hjálpa þér að finna tilgang, innri
styrk, aukna orku og ástríðu fyrir lífinu og æðra sjálfi.
Hugleiðslunámskeið 9.-13. júlí
Hugleiðsla fyrir alla
Nánari upplýsingar í síma 483 0300 eða á heilsu@hnlfi.is
- berum ábyrgð á eigin heilsu
Námskeiðið mun gefa þér einstaka reynslu af hugleiðslu, hvort sem þú ert byrjandi
eða hefur stundað hugleiðslu reglubundið. Auk dagskrár er innifalið: Gisting, ljúffengur
og hollur matur, aðgangur að líkamsrækt, sundlaugum og baðhúsinu Kjarnalundi,
skipulögð ganga, slökunartímar og vatnsleikfimi eða leikfimi.
Leiðbeinandi er Tristan Gribbin, hugleiðslukennari.
Fimm daga námskeiðið, frá miðvikudegi til sunnudags, 9.-13. júlí
kostar 119.900 kr. fyrir einbýli en 109.900 kr. á mann í tvíbýli.
Þriggja daga námskeiðið, frá föstudegi til sunnudags, 11.-13. júlí
kostar 65.000 kr. í einbýli en 59.000 kr. á mann í tvíbýli.
Tilboð 5,5 milljónum
yfir kostnaðaráætlun
Á fundi sveitarstjórnar Hruna-mannahrepps 5. júní sl. voru
tilboð í byggingu íþróttahús tekin
fyrir.
Tvö tilboð bárust í þau tvö verk
sem boðin voru út. Í uppsteypu og
lagnir bárust tilboð frá Pálmatré ehf
að fjárhæð kr. 28.471.840 og Jáverk
ehf að fjárhæð kr. 28.886.645.
Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr.
27.366.000. Í reisingu hússins bárust
til boð frá Pálmatré ehf að fjárhæð kr.
49.761.050 og frá Jáverk ehf að fjár-
hæð kr. 32.649.584. Kostnaðaráætl-
un hljóðaði upp á kr. 28.627.400.
Sveitarstjórn samþykkir að fela sveit-
arstjóra að ganga til samninga við
lægstbjóðendur í verkin.
17. júní í Grímsnes-
og Grafningshreppi
17. júní var haldinn hátíðlegur í Grímsnes- og Grafningshreppi eins og annars staðar á landinu.
Skrúðganga hélt frá versluninni Borg
og gengið var að félagsheimilinu þar
sem fram fór stutt athöfn. Guð-
mundur Ármann forstöðumaður
Sólheima hélt hátíðarræðu og var
tíðrætt um frelsi í víðum skilningi
þess orðs og hvernig frelsið getur
verið fjötrum háð.
Fjallkonan Kristín Hlíf Ríkharðs-
dóttir flutti með glæsibrag ljóðið
„Blessið þá hönd“ eftir séra Sigurð
Einarsson í Holti. Að athöfn lokinni
var boðið upp á grillaðar pylsur í
boði hreppsnefndarinnar og björg-
unarsveitin hafði komið upp leik-
tækjum fyrir börnin, sem skemmtu
sér vel.
Á Selfossi var að venju hátíðar-
dagskrá í Sigtúnsgarðinum þar sem
þessi mynd var tekin, en smáfólkið
klæddi sig eftir veðri þ. e. rigningu.
Einar Clausen, söngvari og Arnhildur Valgarðsdóttir píanóleikari.
Frumleg og fjölbreytt
ADHD samtökin efna til vit-undarvakningar í júní undir
einkunnarorðunum: „Frumleg og
fjölbreytt – Óheft og allskonar. Vertu
þú sjálfur – Gerðu það sem þú vilt“
Armbönd eru seld til styrktar
samtökunum um leið og vakin
er athygli á starfi samtakanna og
stöðu einstaklinga með ADHD.
Nú verða boðin til sölu fjöl-
breytt armbönd úr leðri, skreytt
perlum og táknum en þau eiga
að minna okkur á fjölbreytileika
mannlífsins. Jafnframt eiga þau
að vísa til þess að öll eigum við
okkar góðu hliðar, erum hlaðin
kostum hvert á sinn hátt og því
ber að fagna fjölbreytileikanum.
Salan hófst sl. mánudag 16. júní
en íþróttafélög, einstaklingar og
fleiri selja armböndin um land
allt. Þá verður hægt að kaupa arm-
böndin á vef ADHD samtakanna,
www. adhd.is