Selfoss - 19.06.2014, Síða 4
4 19. júní 2014
Kosningarjetturinn sé aukinn
. . . og að fulltrúunum sje borgað kaup fyrir hvern dag,
svo að jafnt ríkir sem fátækir geti orðið fulltrúar.
Um tíma leit svo út, sem óeirðir myndu hefjast á Englandi, en þó hefur
ekki orðið neitt úr neinu enn sem
komið er. Svo er mál með vexti, að
þar er flokkur manna, og hann eigi
lítill, er vill að stjórnarskránni sje
breytt á þá leið, að kosningarjettur-
inn sé aukinn, og að fulltrúunum
sje borgað kaup fyrir hvern dag, svo
að jafnt ríkir sem fátækir geti orðið
fulltrúar. Ríkismennirnir mæla með
öllu á móti þessum breytingum, því
þeir eru hræddir um, að þar kunni
fleira eftir að fara. Flokksmenn þessir
rituðu bænarskrá til fulltrúa í neðri
málstofunni um þetta efni, og sagt
var að á hana hefðu ritað nöfn fimm
hundruð þúsundir manna, og 10.
apríl fór nefnd manna með hana,
og þrjú hundruð þúsundir manns
fylgdu henni af flokksmönnum svo
sem til skilningsauka málanna.
(Skírnir 22. árgangur 1848. Hér
sagt frá þar sem útgáfudaginn ber
upp á kvenréttindadaginn 19. júní)
Ekki bara kóteletta!
Margt var í boði á Kótel-ettunni í Árborg sem lauk um helgina. Tíð-
indamenn Selfoss-Suðurlandi tóku
þessar myndir:
Þorsteinn mundar hnífinn við
heilgrillað naut sem Landssam-
bnd kúabænda lagði til og félagar
í Meistarafélagi kjötiðnaðarmanna
framreiddu og gáfu gestum hátíðar-
innar að smakka.
Steinar grillaði lambakjöt í
mannskapinn í boði Landssam-
bands sauðfjárbænda.
Fallturninn er alltaf vinsæll hjá
æskulýðnum.
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut
54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri:
Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir.
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur
Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi.
SELFOSS
12. TBL. 3. ÁRGANGUR 2014
Selfoss inn á hvert heimili!
FISKUR Í ÚTLÖNDUM
Ég ákvað að fá línur frá Evu Maríu, dóttur minni sem býr í Hollandi um matargerðina
núna. Þar er komið sumar og mark-
aðarnir fullir af fersku grænmeti,
kryddi, blómum, kjöti og fiski. Á
rigningar- og kuldadögum fæ ég
sól í hjartað þegar ég hugsa þangað.
Þessi pistill kom frá Evu Maríu.
Á föstudögum er alltaf útimark-
aður í elstu götu bæjarins og þar
er hægt að kaupa góðan, ferskan
fisk. Sumir segja að það sé enginn
fiskur jafngóður og sá íslenski (og
neita jafnvel að smakka fisk í út-
löndum) en ég hef aldrei orðið fyrir
vonbrigðum með minn fisksala. Að
þessu sinni varð þorskhnakki fyrir
valinu, innfluttur frá Noregi, af-
skaplega fallegur, hvítur og stinnur.
Þar sem stefnan er tekin á Ítalíu í
sumarfríinu var tilvalið að baka hann
í ofni í ítölskum stíl og svona leit
hráefnislistinn út:
2 vænar þorskhnakkasteikur
2 tómatar eða box af kirsu-
berjatómötum
Lúka af ferskri basilíku
Nokkrar mini Mozzarella-
ostakúlur
3-4 tsk. grænt pestó
Safi úr hálfri sítrónu
Salt og pipar
Ólívuolía
Aðferð
Tómatarnir voru skornir í báta og
settir í botninn á eldföstu móti. Ég
ætlaði að nota kirsuberjatómata og
hélt að ég ætti svoleiðis en þeir voru
víst notaðir kvöldið áður. Þeir voru
kryddaðir með salti og pipar og gróf-
saxaðri basilíku og velt upp úr væn-
um slatta af olíu. Fiskstykkin voru
smurð með grænu pestó, sett ofan á
tómatana og hálf sítróna kreist yfir.
Ofan á fiskinn voru settar nokkrar
litlar mozzarella kúlur og allt sett í
ofn á 190°C í 20 mín.
Með svona mat er hægt að hafa
alls konar meðlæti, t.d. pasta, gott
salat eða brauð til að dýfa í safann
af fiskinum og tómötunum.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að
góðu. Kv, KS
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is
Til hamingju – enn á hlaupum!
Þessar hressu konur tóku þátt í kvennahlaupinu á Selfossi um síðustu helgi. Ragnheiður
Sóphóníasdóttir verður 84 ára hinn
26. ágúst og Sigríður Þorgeirsdóttir
varð 84 ára 16. júní s. l. Þær hafa
tekið þátt í hlaupinu frá upphafi
með örfáum undantekningum.
Safnabókin
2014 er
komin út
Í Safnabókinni má finna upplýs-ingar um meira en 160 söfn, setur, sýningar, þjóðgarða og
kirkjur um allt land. Á undanförn-
um árum hefur verið mikil gróska
í safnamenningu og fjölmörgum
verkefnum hefur verið hrundið af
stað í öllum landsfjórðungum, sem
tengjast menningu og sögu landsins.
Handhægt uppflettirit.
Róið óhrædd á ókunn mið
Menntaskólanum að Laugarvatni var slitið við hátíðlega athöfn
24. maí sl.35 stúdentar brautskráð-
ust,19 af félagsfræðabraut og 16
af náttúrufræðabraut. Halldór Páll
Halldórsson skólameistari hvatti
brautskráða til dáða: „Verið vakandi
yfir tækifærunum, róið óhrædd á
miðin jafnvel þó það séu ókunn mið.
En rasið ekki um ráð fram. Verið
undirbúin, verið lesin á umhverfi
og veður, verið lesin á fræði og fólk.
… Verið vinir, ávallt. Ekki þegar það
hentar ykkur og stundinni heldur
vinir í hjarta og huga. Verið ávallt
heiðarleg. Verið ávallt sönn.“
Þjóðbjörg Eiríksdóttir, frá
Gýgjarhólskoti í Biskupstung-
um, dúxaði við Menntaskólann
að Laugarvatni með 9,89 í með-
aleinkunn á stúdentsprófi. Er það
hæsta einkunn sem nemanda hefur
hlotnast frá upphafi.
Mynd: ML
Fyrsti fundur nýrrar sveitar-
stjórnar í Rangárþingi eystra
Ný sveitarstjórn skipti með sér verkum á fyrsta fundi eftir kosningar sem var
haldinn sl. mánudag. Lilja Einars-
dóttir er nýr oddviti. Benedikt
Benediktsson nýr vara oddviti.
Ísólfur Gylfi Pálmason formaður
byggðaráðs og sveitarstjóri. Aðrir
sveitarstjórnarmenn eru Aðalbjörg
Rún Ásgeirsdóttir, Kristín Þórðar-
dóttir, Birkir Arnar Tómasson og
Guðmundur Jónsson.
Hugleiðsla
fyrir alla
9. -13. júlí
Viltu fá hjálp til að finna innri styrk og ástríðu fyrir lífinu?
Heilsustofnun NFLÍ efnir til hug-
leiðslunámskeiðs í Hveragerði 9.
-13. júlí. „Námskeiðið mun gefa
þér einstaka reynslu af samspili
líkama og huga í hugleiðslu,“ segir
í kynningu.