Hafnarfjörður - Garðabær - 05.04.2013, Blaðsíða 2
2 5. apríl 2013
Flensborg keppir
til úrslita í MORFÍS
Mikill fögnuður braust út um Hamarinn þann 22. mars síðastliðinn. Lið
Flensborgarskóla tryggði sér þá sæti í
úrslitum í Mælsku- og rökræðukeppni
framhaldsskóla á Íslandi, MORFÍS.
Hafnfirðingarnir sigruðu lið Mennta-
skólans við Hamrahlíð með 24 stiga
mun í undanúrslitum sem fram fóru
í Hamarssal Flensborgarskólans að
viðstöddum hátt í 500 manns.
Umræðuefni kvöldsins var hvort
lífið væri tilgangslaust. Hinir lífs-
glöðu Flensborgarar voru andmæl-
endur þess og sýndu fram á með
glæsibrag að lífið hefur svo sannar-
lega tilgang.
Þetta er í fyrsta sinn sem Flens-
borgarar keppa til úrslita í MORFÍS.
Liðið skipa Aron Kristján Sigur-
jónsson, Katrín Ósk Ásgeirsdóttir,
Bergþór Þorvaldsson og Jón Gunnar
Ingólfsson. Úrslitin fara fram í Hörpu
föstudagskvöldið 12. apríl næstkom-
andi og mæta Flensborgararnir liði
Verzlunarskóla Íslands.
LHÞ
Skátaþing í Víðistaðaskóla
Skátaþing var haldið í Víðistaða-skóla 15. og 16. mars síðast-liðinn. Þingið er aðalfundur
Bandalags íslenskra skáta og er haldið
árlega. Skátafélagið Hraunbúar í
Hafnarfirði sá um skipulagningu á
skátaþinginu að þessu sinni sem 200
skátar hvaðanæva af landinu sóttu.
Bragi Björnsson, skátahöfðingi setti
þingið og fjallaði meðal annars um
mikilvægi þess að fullorðnir skátar
séu starfandi fyrir skátahreyfinguna.
Meðal heiðursgesta voru Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri
og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra. Katrín
minntist á að á tímum mikilla þjóðfé-
lagsbreytinga sé þörfin fyrir hreyfingu
líkt og skátahreyfinguna mikil. Hreyf-
ingu sem leggur áherslu á að þroska
börn og ungt fólk til að verða sjálf-
stæðir, virkir, hjálpsamir og ábyrgir
einstaklingar í samfélaginu og stuðla
þannig að betra samfélagi. Guðrún
þakkaði Hraunbúum fyrir að halda
forráðamönnum bæjarins við efnið
með því að bjóða þeim á viðburði
tengda skátastarfinu og gefa þar með
innsýn í það mikilvæga starf sem fer
fram í skátafélaginu.
Að þessu sinni bar þingið yfirskrift-
ina ,,Styrkjum innviðina.‘‘ Með því
er vísað í þá áherslu skátahreyfingar-
innar að styðja við innri þætti skáta-
starfsins með öflugri þjálfun foringja
og annarra leiðtoga auk þess að efla
foreldrasamstarf og benda á mikilvægi
eldri skáta í skátastarfinu.
LHÞ
Sumarstörf í Hafnarfirði:
Allir 14-17 ára fá vinnu
Reiknað er með að allir þeir 14 - 16 ára unglingar sem um sækja fái vinnu hjá Vinnuskólanum
í Hafnarfirði í sumar. Þá er stefnt að
því að allir 17 ára fái einnig vinnu. Í
þessum aldurshóp er reiknað með 900
starfsmönnum.
Þá verður ráðinn stór hópur starfs-
manna frá 18 ára aldri og eldri en þar er
um að ræða flokksstjóra í vinnuskóla,
leiðbeinendur á leikjanámskeiðum og
fleiri störf. Þar er um 200 störf að ræða.
Í ár verða vinnustundir 14 - 17 ára
sem hér segir:
14 ára 72 vinnustundir
15 ára 72 vinnustundir
16 ára 72 vinnustundir
17 ára 120 vinnustundir
Stærsti hluti starfsmanna Vinnu-
skólans mun starfa í almennum
vinnuhópum og fegrunarhópum en
einnig verða einhverjir starfsmenn á
leikjanámskeiðum, hjá íþróttafélögum,
morgunhópum, skólagörðum, fjöl-
miðlahóp og fleiru.
Umsóknarfrestur um störfin er til
12. apríl.
Ekki nýr skóli í
Engidal í bráð
Deildar meiningar eru um skipan mála í Víðistaðaskóla innan fræðsluráðs Hafnar-
fjarðar. Meirihluti nefndarinnar lagði
til að frá og með næsta skólaári verði
ráðnir tveir aðstoðarskólastjórar,
annar verði í starfsstöðinni í Engi-
dal og hinn við Víðistaðatún. Minni-
hlutinn vill ganga lengra og stofna
nýjan skóla í Engidal sem sameinist
leikskólanum sem starfræktur er í
sama húsi.
Eins og fram kom í frétt hér í blað-
inu í vetur þá óskuðu starfsmenn skól-
ans í Engidal eftir því að leikskóli og
grunnskóli yrði sameinaður í nýjan
skóla í Engidal.Þeirra mat var að sam-
eining skólanna tveggja, Víðistaða- og
Engidalsskóla hafi ekki gengið sem
skyldi stjórnunarlega. Einnig var
það mat starfsfólksins að samvinna
starfsfólks á milli starfsstöðva hafi
ekki gengið sem skyldi meðal annars
vegna fjarlægðar þeirra á milli.
Meirihluti nefndarinnar útilokar
ekki að sameining verði síðar á
skólum í Engidal en að svo komnu
máli stendur slíkt ekki til.
Teiknistofan Rúm
Okkar sérsvið er m.a:
• Gerð aðaluppdrátta og tilheyrandi deiliuppdrátta
• Uppsetning og vinnsla með BIM
• Ráðgjöf og þarfagreining vegna framkvæmda
• Gerð kostnaðaráætlun
• Eftirlit og stjórnun framkvæmda
email: Teiknistofa@gmail.com / Álfholt 26 / 220 hafnarfjörður / Sími 662-8904
Skólastjórastaða í Víðistaðaskóla:
Umsóknarfrestur
liðinn- sex sóttu um
Sex umsóknir bárust um starf skólastjóra Víðistaðaskóla en Sigurður Björgvinsson lætur
af störfum í vor. Umsækjendur eru:
Anna Bergsdóttir
Anna Kristín Guðmundsdóttir
Friðþjófur Helgi Karlsson
Hrönn Bergþórsdóttir
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir
Þorkell Ingimarsson
Mynd: Ingólfur Grétarsson.