Hafnarfjörður - Garðabær - 05.04.2013, Blaðsíða 6
6 5. apríl 2013
FYRIR FÓLKIð Í LANDINU
OPNUN
KOSNINGAMIÐSTÖÐVAR
Í KÓPAVOGI
Svavar Knútur spilar af einskærri snilld. Svandís Svavarsdóttir, umh-
verfisráðherra og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, sem skipar 2. sæti
á lista VG í Suðvesturkjördæmi, taka vel á móti gestum.
Vöfflur og rjúkandi kaffi.
Laugardaginn 6. apríl kl. 14 í Hamraborg 1-3 í Kópavogi
opnum við dyrnar og bjóðum vorið velkomið.
Komdu fagnandi á laugardaginn kl. 14
SVANDÍS RÓSA BJÖRK
ALLIR
VELKOMNIR
Viltu fá birta mynd af ný-fædda krílinu þínu í blað-inu? Sendu þá mynd af
barninu þínu ásamt upplýsingum
um fæðingardag, heimili, hæð,
þyngd og nöfn foreldra á netfangið
hafnarfjordurblad@gmail.com og
myndin mun birtast í blaðinu.
Lilja Margrét fæddist þann 14. janúar
síðastliðinn í Reykjavík.
Við fæðingu var hún 3040 grömm
og 47 cm að lengd.
Foreldrar Lilju Margrétar eru
Ingveldur Ægisdóttir og Baldvin
J. Baldvinsson og býr fjölskyldan í
Vogum.
Háskaleg
páskaeggjaleit
Páskarnir voru hreint út sagt dásamlegir hjá húsmóðurinni sem naut sín vel í afslöppun
í faðmi fjölskyldunnar. Hún lagði
sitt af mörkunum í páskaeggjaátinu
og er ekki frá því að vera súkkulaði-
húðuð með gott fitulag eftir hátíð-
irnar. Hvíldin um páskana var sér-
staklega kærkomin að þessu sinni
eftir hremmingarnar sem dundu
á henni þegar hún brá sér í kaup-
staðarferð í Smáralindina stuttu fyrir
páska. Það er svo sem ekki í frásögur
færandi þegar húsmóðirin bregður
sér af bæ en hins vegar tókst henni
að gera þessa ferð eftirminnilega,
bæði fyrir húsmóðurina sjálfa og
flesta viðstadda.
Leiðin lá fyrst í appelsínugulu
búðina þar sem Íslendingum
finnst víst skemmtilegast að versla.
Húsmóðirin hafði hugsað sér gott
til glóðarinnar og fjárfesti í dýrindis
sérvöldu, úrbeinuðu, fituhreinsuðu
og gæðakrydduðu páskalambi. Það
gekk áfallalaust fyrir sig og í fram-
haldi af því var meðlætið verslað inn.
Loftlúðrar hljóma
Fyrst húsmóðirin var á annað borð
komin í verslunarmiðstöðina, var
auðvitað tilvalið að spóka sig um,
skoða í nokkra búðarglugga og versla
eitt skópar, enda sjaldan sem tími
gefst til þess í annríki hversdagsins.
Á miðju torginu á neðri hæðinni
birtist skyndilega ungur maður
sem tilkynnti með gjallarhorni
að páskaeggjaleitin væri formlega
hafin. Loftlúður gall hátt við og á
svipstundu spratt fólk upp eins og
gorkúlur og hentist til og frá í leit
að páskaeggjum. Að sjálfsögðu sá
húsmóðirin sig knúna til að taka
þátt, enda er ekkert betra en að gæða
sér á súkkulaði eftir gott búðarráp.
Húsmóðirin undraðist ákafann sem
fólkið sýndi í leitinni og ákvað sjálf
að vera hógværari. Á efri hæðinni
sá hún að þó nokkrir höfðu krækt
sér í egg og leituðu af enn meiri
áfergju í þeirri von að hreppa fleiri
og stærri egg. Rétt við rúllustigann
sá húsmóðirin glitta í eitthvað glitr-
andi og girnilegt sem líktist stóru og
stæðilegu páskaeggi. Þegar hún kom
nær fékk hún staðfestingu á að svo
væri. Á fínlegan
og settlegan hátt
færðist húsmóð-
irin óðum nær
stóra egginu, fyrst
hún var búin að
koma augu á það
þá gat hún svo sem
alveg tekið það.
Hróðugur
karlmaður með
fangið fullt af
litlum eggjum sem
hann hafði smalað
saman í leitinni
var á ákafri leit í
nálægð við húsmóðurina. Sér til
skelfingar sá húsmóðirin að páska-
eggjasmalinn hafði einnig rekið
augun í eggið. Eggjasmalinn gaut
augunum að húsmóðurinni og stóra
egginu til skiptis eins og hann væri
að meta fjarlægð milli húsmóður og
eggs. Hann var sjálfur í meiri fjar-
lægð og hafði því minni líkur á að
ná stóra egginu á undan. Húsmóð-
irin sá að smalinn greikkaði sporið
og gerði því að sjálfsögðu slíkt hið
sama. Smalinn fór að hlaupa og
húsmóðirin líka. Því miður var
smalinn stórstígari og nálgaðist því
eggið ört. Öll fínlegheit og hógværð
húsmóðurinnar flaug út í buskann
svipað og nýfleygir ungar að vori og
nú voru góð ráð dýr – eggið skyldi
verða hennar.
Innkoma með glæsibrag
Með páskalamb og meðlæti í einum
poka og glænýja skó í öðrum gaf hún
allt í botn og hljóp á harðaspretti á
háu hælunum sínum. Húsmóðirin
kom að egginu rétt á undan smal-
anum, hrifsaði eggið og hrósaði
happi. Það happ varði stutt vegna
þess að rúllustiginn var í næsta
nágrenni og ómögulegt að stöðva
sig nógu fljótt. Afleiðingin var sú
að húsmóðirin féll kylliflöt í rúllu-
stigann sem var á leiðinni niður.
Við stigann á neðri hæðinni stóð
maðurinn með gjallarhornið og til-
kynnti að stóra eggið væri fundið
og væri á leiðinni niður stigann.
Á svipstundu beindust fjöldamörg
augu að húsmóðurinni sem óðum
nálgaðist fyrstu hæð, liggjandi á
maganum. Mikið lófatak braust út
og ljósmyndari tók myndir í gríð
og erg af hinum glæsta sigurvegara
sem bögglaðist á fætur. Haltrandi
út í bíl með þriggja kílóa páskaegg í
hendinni reyndi húsmóðirin að búa
yfir einhverri reisn. Það var með
góðri samvisku
sem húsmóðirin
gæddi sér á bragð-
góðu egginu um
páskana og var
það næstum því
raunarinnar virði.
Húsmóð-
irin hafnfirska
deilir ævintýrum
hversdagsins
með lesendum
Hafnarfjarðar og
er ein af þeim
seinheppnari sem
sögur fara af
HAFNFiRSKA HÚSMóÐiRiNVElKOMiN í HEiMiNN
Stofnun samtaka áhugafólks um MATARHEILL
Þessa dagana vinnur áhugafólk að stofnun samtakanna MATARHEILL.
Samtökin verða opinn vettvangur þeirra
sem leita lausna við matarvanda sem
heilbrigðisvanda. Matarheill mun standa
vörð um réttindi fólks með matarfíkn
og annarra sem eiga við matarvanda
að stríða, hvetja til fræðslu og vinna að
forvörnum. Samtökin munu vinna að
viðurkenningu á matarfíkn sem sjúk-
dómi og stuðla að meðferðarúrræðum
við hæfi.
Málþing um matarfíkn og átvanda
verður haldið í tilefni stofnfundarins
föstudaginn 12. apríl frá kl. 13:00-16:00
í stofu V101 í Háskólanum í Reykjavík.
Ávörp, erindi, gjörningur og umræður.
Sérstakir gestir:
Dr. Vera Tarman, MD, FCFP, CASAM,
MSc, er yfirlæknir Renascent, sem er
stærsta meðferðarstöð við vímuefna- og
áfengisfíkn í Kanada.
Phil Werdell, MA, er stofnandi með-
ferðarstöðvarinnar ACORN.
Samtökin MATARHEILL verða
stofnuð í kjölfar málþingsins, kl. 16:00.
Að stofnun samtakanna koma einstak-
lingar sem náð hafa tökum á matarvanda
sínum, aðstandendur MFM-miðstöðvar-
innar (meðferðar- og fræðslumiðstöðvar
vegna matarfíknar og átraskana) og fleiri.
Samtökin eru öllum opin.
Allir sem láta sig málið varða eru
hvattir til að mæta á málþingið. Til að
gerast stofnfélagi samtakanna er hægt
er að skrá sig á www.matarheill.is eða á
stofnfundinum.
Nánari upplýsingar má nálgast á www.
matarheill.is og hjá:
Esther Helga Guðmundsdóttir, 699
2676, esther@matarfikn.is
Þorsteinn Gunnarsson, 696 9234,
thorsteinng@grindavik.is
Eða senda tölvupóst á: matarheill@
matarheill.is