Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Blaðsíða 1

Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Blaðsíða 1
Parketslípun sólpallaslípun | parketlagnir 551 1309 / 690 5115 golflist@golflist.is | www.golflist.is 99% RYKFRÍTT Hvaða Spirulina ert þú að taka? Árangur fer eftir gæðum Fjölvítamín náttúrunnar Næringarupptaka úr Lifestream Spírulína er meira og nýtist betur en úr nokkru öðru fæði. Fullkomið jafnvægi næringarefnanna gefur einbeitingu, langvarandi náttúrlega orku og er gott gegn streitu. Dregur úr ofvirkni, sykurlöngun og sleni. Styrkir ónæmikerfið, hentar börnum og fullorðnum. 13 vítamín og 16 steinefni · 18 aminósýrur · Blaðgræna · Omega GLA fitusýrur SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu í líkamanum. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Fríhöfninni, Víði og Hagkaup. Virkar frábærlega við flensu og kvefi Hraust og hress! Árangur strax! Súrefnistæmdar umbúðir vernda næringaefnin. Vottað lífrænt. 12 ÁRA VELGENGNI Á ÍSLANDI lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar 20. september 2013 19. tölublað 3. árgangur g a r ð a b æ r UMHVErFISVOTTUð PrENTUN Gleraugnaverslun Strandgötu, Hafnarfirði / Sími 555 7060 / www.sjonlinan.is Gleraugnaverslun Strandgötu, Hafnarfirði / Sími 555 7060 / www.sjonlinan.is Fjarðargötu 17 - Hafnarfirði Sími 520 2600 - Fax 520 2601 Netfang: as@as.is - Heimasíða: www.as.is OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-17 Í Lækjarskóla eru 487 nemendur Lækjarskóli, sem hét áður Barnaskóli Hafnarfjarðar og þar á undan Barna-skóli Garðahrepps, á sér samfellda sögu allt frá árinu 1877. Þá gáfu prófasts- hjónin á Görðum, Þórarinn Böðvarsson og Þórunn Jónsdóttir, stórfé til minningar um son sinn, Böðvar, til að koma á fót alþýðu- skóla. Þetta var heimajörðin Hvaleyri með öllum húsum og jarðarnytjum ásamt skóla- húsinu Flensborg með ofnum, borðum og bekkjum og öllu naglföstu; útihús úr timbri og afgirt tún. Í fyrstu skólanefndinni sátu ásamt Þórarni prófasti, sem var formaður, Christian Ziemsen verslunarstjóri í Hafnar- firði og Grímur Thomsen. Árið 1882 var stofnuð við skólann gagnfræðadeild, eða „real skóli“ eins og hann var kallaður, og er það upphaf núverandi Flensborgarskóla. Árið 1902 var reistur barnaskóli við Suður- götu sem var stækkaður 1921. Það sama ár var einnig reist íþróttahús þar skammt frá. Skólahúsið við Suðurgötu varð fljótlega of lítið svo skólanefnd ákvað 1926 að reisa nýtt skólahús. Hið nýja barnaskólahús við Skóla- braut var vígt 2. október 1927. Íþróttahúsið var flutt að Skólabraut árið 1934 og þjónaði skólanum áfram til 2005. Íþróttahúsið var stækkað 1959 þegar bætt var við búnings- og baðklefum og tveimur kennslustofum. Árið 1945-46 var byggt við hvorn enda skólans og síðast 1978-80 við bakhlið hans. Haustið 1961 tók Öldutúnsskóli til starfa í Hafnarfirði. Þá var Barnaskóli Hafnarfjarðar nefndur Lækjarskóli. Nýtt skólahús var byggt fyrir Lækjarskóla að Sólvangsvegi 4 og var fyrri áfangi tekinn í notkun 22. ágúst 2002 og seinni áfangi haustið eftir. Íþróttahús og sundlaug voru tekin í notkun haustið 2005. Skólinn hefur verið einsetinn frá upphafi, en hann er nú 136 ára. Hornsteinar skólans eru ábyrgð, virðing og öryggi. Við Lækjar- skóla er lögð áhersla á þroska hvers og eins, skólinn er virkur í atferlismótun barna með einhverfu, við skólann eru m.a. reknar deildir fyrir nemendur með þroskaraskanir og mót- tökudeild nýbúa. Þess má geta að hönnun skólans hefur vakið athygli og aðdáun langt út fyrir Hafnarfjörð. Um 50 nemendur hófu nám í haust í fyrsta skipti í grunnskóla, þ.e. í 1. bekk Lækjarskóla. Hér unir stærstur hluti þeirra glaður á skólalóðinni í frímínútum fyrir skömmu þrátt fyrir hálf hryssingslegt veður.

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.