Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Blaðsíða 8

Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Blaðsíða 8
8 20. september 2013 Harðfiskur Gullfisks í Hafnarfirði: Hollur og magur millibiti, laus við öll aukaefni og viðbætt salt Fyrirtækið Gullfiskur var stofnað í byrjun árs 1990 og fyrstu árin var fyrirtækið staðsett í Breiðadal í Önundarfirði. Til að byrja með voru allar afurðir fyrirtækisins þurrkaðar í hjöllum í Breiðadal og var uppistaða framleiðslunnar ýsa og steinbítur. Árið 1999 flutti fyrirtækið í glæsilegt húsnæði að Eyrartröð 11 í Hafnarfirði og hafist var handa við að þróa og hanna sérstaka þurrkklefa sem þurrkað gæti fiskafurðir sem stæð- ust ströngustu gæðakröfur. Samhliða þróun klefanna framleiddi Gullfiskur harðfisk fyrir innanlandsmarkað, bæði ýsu og steinbít. Árið 1999 voru klefarnir gangsettir og jafnframt var hafist handa við að þróa nýja vöru- línu sem samanstóð af þurrkuðu fisk- snakki. Fyrstu pokarnir litu dagsins ljós síðla árs 1999 og frá þeim tíma hafa Gullskífurnar frá Gullfiski verið vinsælar. Allur fiskur sem verkaður er í Gull- fiski er keyptur á fiskmörkuðum. Lögð er höfuðáhersla á að kaupa nýjan línu- fisk og þá sérstaklega frá Vestfjörðum og Snæfellsnesi. Til að fá sem best hráefni er einungis keyptur undir- málsfiskur, en stærð fisksins skiptir máli við þurrkun og einnig bragðgæði. Fiskurinn sem keyptur er kemur til vinnslu daginn eftir kaupin og er hann þá strax fullunninn. Fiskurinn er flak- aður og síðan roðflettur, ef þurrka á roðlausa ýsu og að síðustu er honum raðað á sérstakar þurrkgrindur. Grindunum er loks komið fyrir í frysti og þaðan fara allar grindurnar í þurrkklefann. Meðalþurrktími er í kringum 4-6 sólarhringar. Frá því að þurrkklefarnir voru gangsettir hefur stöðug vöruþróun verið í gangi í fyrirtækinu. Með til- komu klefanna hefur svigrúm fyr- irtækisins aukist mikið hvað varðar vöruþróun og nú þegar er verið að leggja lokahönd á vöruþróun þurrk- aðra sjávarafurða sem bætast við vörulínu fyrirtækisins. Á fyrri hluta ársins 2000 hófst útflutningur á þurrk- uðum afurðum fyrirtækisins. Hefur sókn á nýja markaði gengið sam- kvæmt áætlun og í hverjum mánuði hefur útflutningurinn aukist jafnt og þétt. Gullfiskur er ungt og framsækið fyrirtæki sem hefur á að skipa góðu starfsfólki, hátæknibúnaði til nota við þurrkun matvæla og þjónustu- hlutverki sem miðar að því að sinna þörfum viðskiptavina til fullnustu. Valitor flytur starfsemi sína af Laugarveginum í Dalshraunið Valitor, stærsta greiðslu-lausnafyrirtæki landsins, flytur höfuðstöðvar sínar frá Reykjavík til Hafnarfjarðar í haust, en verktaki á að vera búinn að skila sínu verki 1. október nk. Valitor og Reitir fasteignafélag hafa í þessu skyni undirritað langtíma leigusamning um rúmlega 3.500 fermetra húsnæði við Dalshraun 3 í Hafnarfirði. Um er að ræða þrjár efstu hæðirnar í þessari nýbyggingu sem mun hýsa nýjar höf- uðstöðvar Valitor hér á landi í fram- tíðinni. Núverandi höfuðstöðvar eru á Laugavegi 77 en auk þess rekur fyrirtækið starfsstöð í Danmörku og opnar á næstunni skrifstofu í London. Starfsmenn Valitor eru um 160 talsins. Umsvif Valitor hafa aukist verulega á síðustu árum og verður nýtt aðsetur sniðið að nýjum áherslum í þjónustu og vöruþróun en hlutverk Valitor er að skapa viðskiptavinum sínum ný tækifæri í krafti framúrskarandi tæknilausna. Dalshraun 3 er glæsileg nýbygging með góðu aðgengi og rúm- góðum húsakynnum sem verða inn- réttuð að nútímakröfum um vistvænt og hvetjandi starfsumhverfi. Byggingin stendur við hlið Actavis hússins við fjölfarin gatnamót en báðar þessar eignir eru í eignasafni Reita. Á næstu mánuðum munu Reitir fullklára húsið og laga að þörfum Valitor. Sú byggingarframkvæmd er ein sú um- fangsmesta sem vitað er um að ráðist verði í á þessu svæði næstu misserin. Á efri hæðum þessa glæsilega húss reita við Dalshraun 3 verður starfsemi Valitors. séð yfir vinnslusal Gullfisks, en þar starfa um 15 manns. tryggvi tryggvason, framkvæmdastjóri og Halldór Halldórsson, fjármálastjóri Gullfisks. Lifandi grafík! Stríðsárin á Íslandi voru sér-kennileg að mörgu leiti. Hingað kom breskur her, og síðan am- erískir dátar, og settust niður um allt land. Minjar um þessa tíma má enn finna víða, líklega helst úti á landi, en einnig hér á höfuðborgarsvæðinu, þó þeim stöðum fari fækkandi. Þessar stríðsminjar eru stundum notaðar til að teikna á, grafíklistin grípur suma heljartökum, og stundum fá viðkomandi útrás þar sem engum er þægð í því. Þetta sérkennilega grafík er á vegg skammt suður af Hrafnistu í Hafnarfirði, við Ljósuklif, og ætti ekki að trufla sálarró neins, eða hvað?

x

Hafnarfjörður - Garðabær

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hafnarfjörður - Garðabær
https://timarit.is/publication/1080

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.