Hafnarfjörður - Garðabær - 20.09.2013, Qupperneq 10
TÍMAREIMAR – BREMSUR – BILANAGREINING - OLÍUSKIPTI
ÁSAMT ÖLLUM ALMENNUM BÍLAVIÐGERÐUM
Tjónaviðgerðir fyrir öll
tryggingafélöginBílaspítalinn – Kaplahrauni 1 – Hafnarfirði Sími 565 4332 – bsp@bsp.is
CABAS tjónaskoðun
10 20. september 2013
Ný kynslóð
sólarkrema
Lækjargötu 34 • Hafnarfirði • Opið þriðjudaga kl 14 - 18
Sími 565 0500 • 897-1923
Swiss Nature fást á vefsíðunni www.scincare.is eða í k
Matthías V. Baldursson ráðinn
tónlistarstjóri Ástjarnarkirkju
Matthías V. Baldursson hefur verið ráðinn tónlistarstjóri við Ástjarnarkirkju. Hann
hefur lagt stund á tónlist frá unga aldri
og leikur á ýmis hljóðfæri. Á kom-
andi vetri mun kór kirkjunnar leggja
áherslu á að flytja hressa gospeltónlist
ásamt fallegum lofgjörðarlögum sem
margir ættu að kannast við auk hefð-
bundinna sálma. Hann útskrifaðist frá
kennaradeild FÍH lauk burtfararprófi
á saxófon frá sama skóla og hann því
stundum kallaður Matti sax. Vorið
2012 útskrifaðist hann sem kirkju-
organisti frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar.
Matthías stofnaði poppkór Íslands
,,Vocal project” árið 2010 og hefur
stjórnað honum síðan. Einnig starfar
hann sem aðstoðarskólastjóri í tón-
listarskólanum Tónsölum í Kópavogi
þar sem hann hefur unnið frá 2007.
Guðrún Þorgrímsdóttir hefur tekið
til starfa við barna- og æskulýðsstarf
kirkjunnar. Guðrún er guðfræði-
nemi við Háskóla Íslands en hefur
einnig stundað nám í Biblíufræðum
á Englandi. Hún hefur mikla reynslu
af æskulýðsstarfi bæði hérlendis og á
erlendri grundu. Sóknarprestur við
Ástjarnarkirkju er sr. Kjartan Jónsson.
rými er ekki mikið til helgihalds í
bráðabirgðahúsnæði Ástjarnar-
kirkju, en þar er heimilislegt og
notalegt andrúmsloft.
matthías V. baldursson.
Gjöf frá Cuxhaven:
Uppsetning siglingamerkis
og staðsetning könnuð
Lagt fram erindi Cuxhaven-félagsins um uppsetningu "Kugelbake" (siglingarmerkis)
frá stjórn vinabæjarfélagsins Cux-
haven-Hafnarfjörður í Hafnarfirði,
varðandi fyrirhugaða 25 ára afmæl-
isgjöf frá vinabæjarfélaginu í Cux-
haven. Skipulags- og byggingarráð
Hafnarfjarðar fól skipulags- og
byggingarsviði að skoða og vinna
tillögu að því hvernig hægt sé að
koma merkinu fyrir á lóðamörkum
við gömlu Flensborgarlóðina/hafnar-
búðirna. Þannig gæti merkið markað
innkomu að hafnarsvæðinu með af-
gerandi hætti og notið sín sem tákn-
rænn innsiglingaviti um vinarbæjar-
samband Hafnarfjarðar og Cuxhaven.
Í bréfi frá Gísla Ó. Valdimarssyni,
formanni stjórnar vinabæjarfélagsins
Cuxhaven til Guðrúnar Ágústu Guð-
mundsdóttur, bæjarstjóra, segir m.a.:
,,Þann 17. september
Næstkomandi verða liðin 25 ár frá
því að Hafnarfjörður og Cuxhaven í
Þýskalandi stofnuðu til vinbæjarsam-
starfs. Samkomulagið var undirritað í
Cuxhaven þann 17. september 1988.
Vinabæjarfélagið í Cuxhaven hefur
unnið að þeirri hugmynd að færa
Hafnarfjarðarbæ 4 metra háa timbur
eftirgerð af „Kugelbake.“ Eftirgerðin
hefur sérstaklega verið smíðuð í til-
efni af því að 25 ár eru liðin frá því
að stofnað var til vinabæjarsamstarfs
á milli Cuxhaven og Hafnarfjarðar.
Mannvirkið „Kugelbake“ var byggt
úr timbri sem 30 metra hátt ,,sigl-
ingarmerki“ árið 1703 og reist við
ströndina í Cuxhaven.
Árið 1853 var „Kugelbake“ endur-
nýjað og þjónaði þá sem „ljósaviti,“
þar sem „ljós logi“ brann um nætur
efst í vitanum til að leiðsinna sjófar-
endum og skipaumferð. Staðsetning
„Kugelbake“ í Cuxhaven er nyrsti
staður í Neðra Saxlandi í Þýskalandi
og staðsetur jafnframt mörkin á milli
Norðursjávar og Elbe, sem er áin og
siglingarleiðin til Hamborgar. Frá
1913 hefur „Kugelbake“ verið borg-
armerki Cuxhaven, líkt og Vitinn er
bæjarmerki Hafnarfjarðar. Vinabæj-
arfélögin í Cuxhaven og í Hafnarf-
irði vona að Hafnarfjarðarbær hafi
tækifæri til að finna timbureftirgerð
„Kugelbake“ góðan stað við ströndina
í Hafnarfirði, í samstarfi við bæði fé-
lögin.
Í nóvember 2012, þegar Cux-
havenborg afhenti árlegt jólatré í 24.
skipti við Hafnarfjarðarhöfn , ræddu
fulltrúar vinabæjarfélagsins í Cux-
haven um „sinn óskastað“ við miðbæ
Hafnarfjarðar. Umræddur staður er
á Fjarðartorgi, hringtorginu á gatna-
mótum Fjarðargötu við Lækjargötu.
Sem fylgiskjöl með þessu bréfi
eru ljósmyndir til upplýsingar, sem
Már Sveinbjörnsson hafnarstjóri
hefur unnið, þar sem leitast er við
að sýna 4 metra háa timbureftirgerð
„Kugelbake“ í réttum hlutföllum á
Fjarðartorgi. Stjórn vinbæjarfélags-
ins í Hafnarfirði óskar eftir samstarfi
við Hafnarfjarðarbæ um staðarval og
uppsetningu á 4 metra hárri timbur
eftirgerð af „Kugelbake.“
Góðar gjafir hafa komið frá Cuxhaven gegnum tíðina. Nú vill vinarbærinn gefa ,,Kugelbake“ siglingamerki. Hér er
,,Kugelbake” sett inn á mynd af torgi til skýringar.